Nýtt hús fyrir Alþingi Íslendinga
Mánudaginn 07. nóvember 1988

     Þorv. Garðar Kristjánsson:
    Hæstv. forseti. Það er aðeins til þess að fyrirbyggja misskilning. Það hefur komið hér fram sú skoðun að ráðhúsið útiloki þá byggingu sem Alþingi hefur látið teikna. Þetta er algjör misskilningur. Þegar þetta hús var teiknað þá var gert ráð fyrir ráðhúsinu þar sem verið er að byggja það núna. Öll vinna við teikningu og allt sem hefur verið gert í þeim málum hefur verið gert í fullu samráði við skipulagsyfirvöld borgarinnar sem ekki hafa gert athugasemd við framkvæmd málsins.