Flm. (Egill Jónsson):
Virðulegur forseti. Þetta mál var á dagskrá á síðasta fundi en var frestað, m.a. að ósk landbrh. svo að hann gæti verið viðstaddur umræðuna. En eitthvað hefur hindrað hann í að koma hingað þrátt fyrir að ég viti um áhuga hans á því að fylgjast með þessari umræðu sem ég reyndar tel nú vera mjög af hinu góða.
Það er skemmst frá því að segja að frv. sama efnis og það sem nú er til umræðu var einnig rætt hér á síðasta þingi. Þá fór fram um það býsna mikil umræða, ekki einungis hér í deildinni heldur enn fremur í landbn. Ed. Svo vildi til að í rauninni voru menn afar stutt frá því að ná málinu fram og það tel ég að hafi gerst með þeirri tillögu sem þáv. forsrh. lagði fram hér við afgreiðslu málsins og byggðist m.a. á tilvísan til þess að þáv. landbrh. hefði fleiri tillögur í undirbúningi að því er varðaði breytingar á búvörulögunum, og þá með það að fororði að breyta þeim til hins betri vegar fyrir bændur landsins. Af þessu hefur ekki orðið. Fyrrv. ríkisstjórn slapp um bakdyrnar frá því að framkvæma þetta gefna loforð sem við urðum sammála um í þessari deild og það er ástæðan fyrir því að ég flyt málið hér öðru sinni.
Ég hef í þessu þskj. látið prenta sem fylgiskjal nál. sem landbn. Ed. lagði fram í fyrra, þannig að fyrir liggja að því er varðar skýringar á þessu máli afar mikilvægar upplýsingar sem hljóta að gera það að verkum til viðbótar við það að hér er stutt síðan málið var rætt ítarlega, að eins ítarleg framsaga og ella þyrfti að vera er núna við þessar aðstæður frá minni hendi að því er ég tel óþörf. Ég ætla með tilliti til þessara skýringa þess vegna að stikla á stóru.
Ákvörðun búvörulaganna að því er varðaði sauðfjárbændur og afkomu þeirra hefur hlotið mikla umræðu hér á Alþingi og m.a. hafa þar víða komið fram áhyggjur manna af afkomu þeirra bænda sem þá búgrein stunda. Það er alveg deginum ljósara að í búvörulögunum voru teknar upp harðar ákvarðanir að því er varðaði framleiðslustjórn á sauðfjárafurðum. Til þess að mæta þeim ákvörðunum m.a. var leitast við að gera aðrar breytingar sem mundu verða til þess að treysta afkomu sauðfjárbænda. Þessar ákvarðanir voru einkum tvær. Annars vegar var það, eins og gert var gagnvart mjólkurframleiðslunni, að kveðið var á um það að bændur ættu að fá tiltekið umsamið heildarmagn sauðfjárafurða greitt með skilvísum hætti. Þetta var önnur meginákvörðunin. Hin var svo sú að verðlagning sauðfjárafurða byggðist á sérstökum grundvelli en áður hafði verið sameiginlegur grundvöllur fyrir tvær höfuðgreinar í landbúnaðarframleiðslunni, sauðfjár- og nautgripaafurðir.
Þessar ákvarðanir voru gífurlega þýðingarmiklar og svo vill nú til að áhrif þeirra liggja fyrir. Alveg gagnstætt því sem fram hefur komið í hinni almennu umræðu hafa sauðfjárbændur verið að treysta stöðu sína fjárhagslega á síðustu árum. Nýjustu upplýsingar sem ég hef handbærar um þau efni eru að fjölskyldutekjur fyrir fjármagnskostnað hafi hækkað á
síðustu þremur árum um 30%. Ástæðurnar fyrir þessu eru þær að nýr verðlagsgrundvöllur skilar réttari viðmiðun en áður var, bændur fá afurðir sínar greiddar með skilvísari hætti en áður var, og síðan, sem er ákaflega mikil söguleg niðurstaða, hafa bændur breytt búskaparháttum þannig að stærri hluti af heildarverðmætunum kemur nú til greiðslu heldur en áður hefur verið.
Ég fylgdist með setningu búvörulaganna, var einn í þeirri nefnd sem það verk vann. Þar áður hafði ég nú verið ráðunautur alla mína starfsævi. Ég hefði aldrei látið mér detta til hugar að bændastéttin hefði þau sögulegu viðbrögð fram að færa gagnvart breyttum framleiðslumarkmiðum eins og komið hefur fram á síðustu árum. Það er svo annað mál, og ég tek skýrt undir það, að þar með er ekki vandi sauðfjárræktarinnar í landinu leystur. Það er þveröfugt. En þau efni ætla ég ekki að ræða í þessari umræðu heldur hitt, sem er meginefni frv., að á grundvelli þeirrar reynslu sem fengist hefur verði stigið skref til viðbótar við það sem áður hefur verið gert til þess að treysta enn betur þær ákvarðanir sem voru teknar með búvörulögunum og samningnum við ríkisvaldið um greiðslu til sauðfjárbænda.
Um greiðslutilhögun á sauðfjárafurðum gilda aðrar reglur en varðandi greiðslu á mjólkurafurðum. Á því er sú einfalda skýring að þegar lögin voru sett þá lá það ekki fyrir hvernig hægt væri að koma slíku uppgjöri fram tæknilega. Ekki að það væri spurning um fjármagn, heldur hvernig væri hægt að koma því fram tæknilega. En nú hafa mál skipast þannig ár frá ári að framkvæmdin hefur sífellt orðið að þessu leyti auðveldari. Á þetta þó alveg sérstaklega við með greiðslu á sauðfjárafurðum í síðustu sláturtíð því að nú liggur alveg ljóst fyrir að það eru engar tilfærslur í því uppgjöri á milli bænda, hver og einn sauðfjárframleiðandi fær einungis sinn fullvirðisrétt. Þar af leiðandi er hér ekki fyrir hendi nokkurt einasta tæknilegt vandamál.
Í grg. með frv. og í nál. landbn. Ed. Alþingis frá því í fyrra eins og það liggur hér fyrir sem fskj. við frv., þá er það að sjálfsögðu sannað með algjörlega óyggjandi hætti að afurðastöðvar hafa fengið nálega 100% af því
fjármagni sem þær hafa þurft að skila sem greiðslum til bændanna. Það kann vel að vera og ég geri ráð fyrir því að það hafi breyst á þessu ári. Ástæðan fyrir því að ég ræði það ekki sérstaklega núna er sú að ég hef lagt fram í Sþ. fsp. til hæstv. landbrh., sem ég dreg ekki í efa að hann muni svara með málefnalegum hætti, um það hvaða reglur það séu sem Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur lagaskyldu til að setja skv. 29. gr. búvörulaganna, og hvort þeim reglum verði ekki framfylgt. Ég veit vel að þar munu koma fram mikilvægar upplýsingar og ég efa ekki vilja hæstv. landbrh. til að upplýsa það mál með réttum hætti.
En þessi er ástæðan fyrir því að ég dreg einmitt þetta atriði ekki núna sérstaklega inn í umræðuna, en undirstrika það sem ég sagði áðan að það hefur ekki
staðið á fjármagni frá ríkisvaldinu til að þessar greiðslur gætu borist bændum með skilvísum hætti. Ég minni á það að sem rök fyrir þessari fullyrðingu minni hef ég m.a. stuðst við grg. frá landbrn., reyndar miklu víðar að, sem er hér birt í fylgigögnum.
Ég skal nú, virðulegi forseti, stytta mál mitt. Þetta frv. gengur til landbn. sem lýtur að sjálfsögðu hinni bestu stjórn og ég er sannfærður um það að málið fær þar eðlilega og góða afgreiðslu. En mér er það hins vegar alveg óskiljanlegt ef Alþingi, miðað við þann stuðning sem þetta mál fékk í fyrra hvaðanæva að úr öllum flokkum, kemst ekki að sanngjarnri niðurstöðu í þessu máli. Ég þarf ekki að vera að gera samanburð á kjörum annarra stétta eða réttindum annarra stétta, en það á náttúrlega að gilda nákvæmlega það sama gagnvart þeim tveimur greinum, sem eru höfuðgreinarnar í íslenskum landbúnaði, sauðfjárrækt og nautgriparækt. Auðvitað á að gilda nákvæmlega það sama í þessum efnum. En eins og menn vita hafa ekki verið nein vandamál í sambandi við mjólkurframleiðsluna og tillögur mínar hér eru nákvæmlega sama eðlis, það verði tekin upp nákvæmlega sömu vinnubrögð gagnvart sauðfjárbændum og bændum sem stunda mjólkurframleiðslu. Þeir búa við sams konar aðstæður. Þar er í báðum tilvikum um að ræða harðar stjórnunaraðgerðir á framleiðslu þeirra og þar er í báðum tilvikum byggt á búvörusamningi, samkomulagi milli bændasamtakanna og ríkisvaldsins. Og því í ósköpunum skyldi þá ekki eitt eiga að ganga yfir bændur í þessum efnum án tillits til þess hvort þeir stunda sauðfjárrækt eða mjólkurframleiðslu?
Hér er um að ræða alveg einstakt sanngirnismál og, eins og ég sagði í umræðunni á sl. vori, eitthvert það augljósasta sanngirnismál sem ég veit um að hefur komið til umræðu á Alþingi síðan ég tók hér sæti.
Virðulegi forseti. Ég óska eftir því að þetta mál gangi til landbn. að lokinni þessari umræðu.