Framleiðsla og sala á búvörum
Þriðjudaginn 08. nóvember 1988

     Skúli Alexandersson:
    Virðulegi forseti. Eins og kom fram í ræðu hv. 4. þm. Austurl. stóð hann að því að semja búvörulögin 1985 og koma þeim í gegnum þingið. Þetta var eitt af verkum fyrstu frjálshyggjustjórnarinnar, þ.e. ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar, og þetta áttu að vera þau lög sem áttu að færa bændum betri tíma, taka á stjórnun búvöruframleiðslunnar og leysa, eftir því sem hér var talað þegar var verið að koma þessum lögum í gegnum þingið, meginhluta vanda landbúnaðarins.
    Svo virðist nú sem flestir af stuðningsmönnum þessarar ríkisstjórnar hafi verið á þeirri skoðun, aðrir en 4. þm. Austurl. Hann kom hér inn í deildina í fyrra með þetta frv. sem hér er til umræðu og benti á ákveðna galla á þessari smíð sinni. Þarna þyrfti að laga, eins og hér hefur komið fram, það ætti að gefa sauðfjárbændum sömu möguleika í sambandi við greiðslu á afurðum og mjólkurframleiðendum. Ekki veit ég af hverju það fór á þann veg, þegar verið var að semja búvörulögin og tíunda ágæti þeirra hér í deildinni og hér í þinginu, að menn sáu þetta ekki þá. En það er náttúrlega oft þannig að menn sjá ekki hlutina fyrr en þeir koma í framkvæmd og þannig var með hv. 4. þm. Austurl.
    En í ræðu hans núna kemur fram --- ég man ekki eftir því að hafa heyrt það í framsöguræðu hans í fyrra --- að framleiðslustjórnin í sauðfjárafurðunum hafi eftir allt saman verið á þann veg að staða sauðfjárframleiðandans sé miklu betri en hún hafi verið fyrir setningu laganna. Reyndar var hann ekki með neinn samanburð í sambandi við mjólkurframleiðendur en hann undirstrikaði það í ræðu sinni að nú væri staða sauðfjárbænda þannig að þeir væru með 30% betri afkomu en áður, 30% betri afkomu en fyrir setningu búvörulaganna. En hann var reyndar með smáaukasetningu, þ.e. fyrir fjármagnskostnað. Hvaða kostnaður skyldi það nú vera? Það er sá kostnaður sem er að drepa allan atvinnurekstur í landinu. Ætli hann bitni ekki á þessum bændum eins og öðrum framleiðendum í landinu? Þegar fjármagnskostnaður verður settur inn, þá er ég ansi hræddur um það að staða sauðfjárbænda verði ekkert sérstök og það verði erfitt að flagga með einhverri 30% betri stöðu þeirra nú heldur en þegar búvörulögin voru sett.
    Hv. þm. taldi þetta einstakt sanngirnismál. Það má vel vera og að mörgu leyti er það það. En það er kannski ekki svo einfalt að það eigi að segja að þessi framleiðsla eigi endilega að njóta alveg nákvæmlega sömu kjara og önnur, þ.e. að möguleiki sé á því að standa að greiðslu sauðfjárafurðanna á sama máta og mjólkurafurðanna. Þar eru ýmsir hlutir sem eru sjálfsagt erfiðari þó að flm. hafi haldið að öll tæknivandamál í sambandi við það væru ekki lengur til staðar. Þetta komum við til með að skoða allt saman í þeirri ágætu nefnd sem málið kemur til, þ.e. landbn. þessarar hv. deildar, og ég skal sjá til þess að þá verði ekki síður um þetta fjallað en á síðasta ári.
    En þegar hv. þm. segir að miðað við þá afgreiðslu

sem þetta mál fékk á síðasta þingi hljóti það að fá fullnaðarafgreiðslu, að mér skildist, á þessu þingi. ( EgJ: Ég sagði það nú ekki.) Eða a.m.k. miklu betri afgreiðslu. ( Gripið fram í: Það er komin betri stjórn.) Já, það er komin betri stjórn. Sjálfsagt er það það sem hann gerir ráð fyrir. (Gripið fram í.) Við erum alveg sammála því, jú, jú. En ég held að það væri rétt að lofa hv. þm. að heyra hvernig málið var afgreitt hér á síðasta þingi þó að það sé hér sem fskj. með frv. Það var afgreitt á þennan veg, með leyfi forseta:
    ,,Frávísunartillaga forsrh. á síðasta þingi.
    Frv. þetta felur í sér staðfestingu á markmiðum búvörulaganna um staðgreiðslu sauðfjárafurða, hliðstætt því sem gildir í mjólkurframleiðslu. Þessi breyting ætti að vera auðveld í framkvæmd og ætti tæpast að leiða til umtalsverðs kostnaðarauka vegna minni lánsþarfar (staðgreiðslulána) milli áranna 1988 og 1989. Hér er því um mál að ræða sem ríkisstjórnin mun beita sér fyrir að komi til framkvæmda fyrir næstu sláturtíð.
    Þar sem ríkisstjórnin hefur í athugun fleiri breytingar á tilhögun á greiðslum fyrir sauðfjárafurðir sem munu tryggja enn frekar afkomu sauðfjárbænda er lagt til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.`` (Gripið fram í.) Ég held að ríkisstjórnin hafi setið alveg fram undir sláturtíð. ( GA: Hvaða sláturtíð?) Venjulega sauðfjársláturtíð og þess vegna hefði þessi ríkisstjórn, sem ég reikna með að hv. flm. hafi talið hina merkustu og bestu stjórn, átt að vera búin að koma þessu í höfn. Ekki aðeins það að hún ætlaði að gera þessa hluti, að koma lagi á greiðslur til bænda, heldur ætlaði hún að gera eins og þar segir: Ríkisstjórnin hefur í athugun fleiri aðgerðir. Það væri nú gaman að heyra það frá hv. flm., stuðningsmanni síðustu ríkisstjórnar, hverjar þessar fleiri aðgerðir voru. Þeim hefur kannski verið komið í framkvæmd. Ekki hefur það verið neitt í sambandi við refinn eða svoleiðis, það hefur verið basl í þeim málum. Það hefur kannski verið bara fyrst og fremst í sambandi við sauðfjárafurðirnar. Og hvernig í ósköpunum getur hann búist við því að núv. ríkisstjórn fari að taka á þessum málum með einhverjum ákveðnari tökum en sú ríkisstjórn sem hann var sjálfur
stuðningsmaður að, nema kannski það sé þannig að flest hafi verið á þann veg hjá síðustu ríkisstjórn að það hafi verið frekar afslappt sem hún ætlaði sér að gera og hún misst það út úr höndunum hjá sér og komið fáu af því til leiðar?
    En við skulum sjá. Þetta verður tekið til umfjöllunar í landbn. og kemur hingað aftur að þeirri könnun lokinni. Mér finnst að mörgu leyti að málið sé á þann veg, þar sem nú er ríkisstjórn nýsest að völdum, nýsest í stólana, að það væri ekki mjög óeðlileg afgreiðsla á þessu máli að vísa því til ríkisstjórnarinnar þegar þar að kemur. ( Gripið fram í: Er það ekki hjá henni?)