Stofnlánadeild landbúnaðarins
Þriðjudaginn 08. nóvember 1988

     Flm. (Egill Jónsson):
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. landbrh. fyrir að hafa lýst afstöðu sinni í þessu máli m.a. vegna þess að með hans orðum skýrist betur afstaðan til þessa máls. Það er rétt sem fram kom í ræðu hæstv. landbrh. að vanskil við deildina hafa aukist eins og grg. frv. sýnir. Ein meginröksemdin fyrir þessari breytingu er einmitt sú að það er nú orðið grundvallaratriði fyrir deildina að fá skilvísar greiðslur. Í þessu felst annar megintilgangur frv. sem er að í staðinn fyrir að upp safnist vanskil séu þau greidd inn á stofnfjárreikning sérhvers bónda. Þessi ábending er þannig fullkomlega í takt við meginanda frv.
    Annað atriði sem hæstv. landbrh. minntist á eru veð og veðleysi innan landbúnaðarins og að deildin hætti miklu í þeim efnum. Það væri kannski rétt að fá það upplýst með einni lítilli fsp. hvernig þau viðskipti hafa gengið fyrir sig á milli bændastéttarinnar og Stofnlánadeildarinnar. Ætli hún hafi nú tapað mörgum krónum í viðskiptum sínum við bændur landsins? Það hygg ég ekki vera. Það er því ekki ástæða til þess að fara að mála þann skratta á vegginn þegar fjallað er um þessi efni.
    Landbrh. getur þess að í grg. komi ekki skýrlega fram hver afkoma deildarinnar er og það er hárrétt, m.a. vegna þess að fram hafa komið mikilvægar upplýsingar frá því að ég samdi frv. og lét ég því það nægja, sem kom hér fram í máli mínu áðan, að eiginfjárstaða deildarinnar, varasjóður hennar, nemur nú tæplega 1 milljarði kr. En ég hygg að ekki hafi verið til margar krónur í varasjóði Stofnlánadeildar landbúnaðarins fyrir örfáum árum síðan.
    Að lokum, hæstv. landbrh., þá er landbrh. með föðurlega varfærni í þessum efnum. Hann segir að ekki megi skerða tekjur deildarinnar eða það þurfi a.m.k. að athuga það mjög vandlega til þess að rekstur hennar og afkoma verði ekki gerð óbærileg. Hann minnir einnig réttilega á að á deildina hafa verið færðar vissar kvaðir og ég óttast reyndar að það muni verða gert í vaxandi mæli hér eftir einmitt vegna þess hversu deildin er vel sett. Þess vegna muni þetta fjármagn sem greitt er til deildarinnar, sem eru launagjöld frá bændum landsins, þar með bindast býsna fast eftir því sem tímar líða. En vegna þess að hæstv. landbrh. var með varnaðarorð um að nú þyrftu menn að skoða málin vel og rasa ekki um ráð fram, þá vill nú svo til að hæstv. landbrh. hefur fyrir sitt leyti tekið ákvörðun í þessum efnum. Það eru fyrir því lög að ríkissjóður eigi að greiða ákveðið fjármagn til Stofnlánadeildarinnar, m.a. sem mótframlag. Hér segir í fjárlagafrv. um Stofnlánadeild landbúnaðarins sem hæstv. landbrh. ber ábyrgð á:
    ,,Ekki er ætlað fyrir fjárveitingum til hinnar almennu starfsemi Stofnlánadeildarinnar í þessu frv. Í lánsfjárlögum mun verða leitað heimilda til þess að víkja frá gildandi lögum um framlag til deildarinnar.``
    Þetta er reyndar ekki nýtt ákvæði, þetta er á bls. 158, hæstv. landbrh. Þetta er ekki nýtt. Ríkisvaldið hefur vikið sér undan því að greiða þetta fjármagn til Stofnlánadeildarinnar og hæstv. landbrh. hefur ekki

þurft að taka sér mjög langan tíma til þess að fá sannfærandi niðurstöðu um það að óhætt væri að haga þessum greiðslum með sama hætti og verið hefur, þ.e. skerða þetta fjármagn. Það hefur ekki tekið býsna langan tíma fyrir ríkisstjórnina að koma sér niður á það.
    Það er svo annað mál að ég tek undir allar góðar ábendingar og varnaðarorð frá hæstv. landbrh. í þessum efnum og tel þær raunar vera mjög af hinu góða. Fjarri því að ég meti það sem slæmt innlegg í þessa umræðu., enda munu menn þá geta sannfært sig um það sjálfir sem ég hef nú lýst, að það standa ekki efni til þessarar skattheimtu lengur af bændastéttinni. En þess á mót er fullkomlega eðlilegt, eins og frv. gerir ráð fyrir, að gera ráðstafanir til þess að greiðslur til hennar berist jafnvel með enn skilvísari hætti en verið hefur og því eru gerðar tillögur um það í frv. að komið verði á fót sérstökum stofnfjárreikningum sem sérhver bóndi hefur fyrir viðskipti sín við Stofnlánadeildina. Það er að sjálfsögðu mjög til þess að létta og greiða rekstur deildarinnar eins og gert var með Stofnfjársjóð fiskiskipa, en þar hef ég fengið þær upplýsingar að mjög hafi skipt um til hins betra með viðskipti sjávarútvegsins við opinbera sjóði eftir að hann var tekinn upp. Þetta er hliðstæð framkvæmd og þangað er fyrirmyndin sótt.