Flm. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég vil þakka þeim sem tekið hafa hér til máls fyrir jákvæðar undirtektir við þetta mál og út af þeim athugasemdum sem fram hafa komið, t.d. frá hv. 1. þm. Vesturl., er sjálfsagt og eðlilegt að gæta þess í meðferð málsins þegar það kemur til nefndar. Ég get ekki séð að hætta sé á því en rétt er að gæta þess enn betur því að til þess er ekki ætlast. Það er heldur ekki ætlast til þess að því fjármagni sem hefur verið ráðstafað áður sé skilað aftur. Ég tel því að landsbyggðin eigi verulegar fjárhæðir inni.
Hv. 12. þm. Reykv. gerði hér aðallega tvær athugasemdir. Ég held að við þurfum ekki að gera ráð fyrir að það verði miklir erfiðleikar í sambandi við skiptingu. Það hefur ekki hvarflað að mér að fara að setja upp nýtt apparat í sex kjördæmum landsins. Þetta virðist mjög auðvelt í framkvæmd. Ég vil í því sambandi benda á það að Húsnæðisstofnun gerði úttekt á búsetu umsækjenda og veðstöðum lána sem sýnir hvar umsækjendur ætla að byggja eða kaupa. Úttekt þessi er dags. 12. okt. 1988, enda lögðum við áherslu á að vera með sem nýjastar upplýsingar því að nokkrar breytingar hafa orðið frá því fyrr á þessu ári og nauðsynlegt er að þær liggi fyrir. Þessi úttekt byggir á upplýsingum um 6722 umsækjendur. Niðurstaða hennar kemur fram í athugasemdum með frv. og er í stuttu máli sú að um 80% þeirra umsækjenda sem búa utan Reykjavíkur og Reykjaness eru að kaupa eða byggja í kjördæmum utan Reykjavíkur og Reykjaness. Það kemur fram í töflu með grg. að fjöldi umsækjenda í Reykjavík er 3033 og að af veðstöðum eru 2838 í Reykjavík og 160 í Reykjanesi, enda er stutt að fara þar yfir landamærin eins og skiljanlegt er, en umsóknir með veðstaði í öðrum kjördæmum eru 35. Umsækjendur af Reykjanesi eru 1755. Af veðstöðum eru 150 í Reykjavík, 1595 á Reykjanesi og aðeins 10 í öðrum kjördæmum. Önnur kjördæmi, þ.e. öll landsbyggðarkjördæmin, eru með 1934 umsækjendur. Þar af eru 189 umsóknir með veðstað í Reykjavík og 88 á Reykjanesi, en 1657 umsóknir með veðstaði í þessum landsbyggðarkjördæmum. Þetta eru heimildir sem við fengum og voru unnar í húsnæðismálastjórn. Ég held að þær sýni að ekki er eins mikið um það og margur hefur látið í veðri vaka að fólk af landsbyggðinni byggi eða kaupi íbúðir hér á höfuðborgarsvæðinu. Þó að nokkuð mikið sé um þetta, eins og fram kemur í þessum tölum, hafa sumir viljað halda því fram að þetta væri í meira mæli og því var fengur að því að þetta skyldi unnið af Húsnæðisstofnun.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri. Ég endurtek þakkir mínar til þeirra hv. þingmanna sem hér hafa talað og mér finnst sjálfsagt og eðlilegt að skoða þær athugasemdir eða ábendingar sem fram komu í þeirri nefnd sem fær frv. til meðferðar. Við flm. erum opnir fyrir því að gera þær breytingar á frv. sem eru til góðs fyrir landsbyggðina og í fullu samræmi við að ekki er verið með þessu að ganga á hlut þess fólks sem býr á höfuðborgarsvæðinu, síður
en svo. Eins og ég sagði í upphafi máls míns fylgja því stóraukin útgjöld ef enn þá meiri tilflutningar verða til þessa svæðis og það sleppur ekki heldur við útgjöld við slíka tilflutninga. Þess vegna tel ég að miklu skynsamlegra og eðlilegra sé að koma þannig til móts við og hvetja fólk til þess að fjárfesta hvert á sínu svæði eins og frv. þetta gerir ráð fyrir og ég held að enginn þurfi að óttast að það þurfi að verða neitt bákn í kringum þá breytingu.