Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að fara að efna til neinna deilna við hv. 1. þm. Vesturl. um húsnæðismál almennt. Hann sagði hins vegar að í máli mínu hefði komið fram misskilningur. Það held ég að sé nú ekki rétt. Það húsnæðiskerfi sem komið var á laggirnar 1986 byggðist á því, eins og hv. þm. sagði, að lífeyrissjóðirnir legðu til í það allt að 55% af sínum ráðstöfunartekjum. Þetta var gert í framhaldi af samkomulagi aðila vinnumarkaðarins í kjarasamningum sem þáv. ríkisstjórn og þingmeirihluti féllust á. Það breytir vitaskuld engu um það að með þessu nýja fyrirkomulagi komu allt í einu margir milljarðar inn í húsnæðiskerfið og í sama mund var öllum lofað lánum með niðurgreiddum vöxtum. Hver sem hafa vildi og hver sem sótti um lán í þessu nýja kerfi fékk lánsloforð og það fór nú svo að þeir sem voru hér á höfuðborgarsvæðinu voru nokkuð fljótari til að sækja um lán heldur en þeir utan af landi, enda var það staðreyndin að um eða yfir 80% af öllum lánsumsóknum voru héðan af þessu svæði. Allir þessir aðilar fengu lánsloforð meðan kerfið gekk og þessi mikla lánabylgja varð a.m.k. til þess að ýta mjög undir það þensluástand sem hér var á byggingarmarkaðinum og í verði húsnæðis. Þetta hafði þannig áhrif á verðbólguþróun og það þensluástand sem uppi var í landinu á árunum 1986 og 1987 og jafnvel fram á þetta ár.
Þetta er enginn misskilningur af minni hálfu. Auðvitað varð þetta kerfi til þess að hjálpa mörgum til þess að fá lán. Og það varð til þess að margir gátu byggt sem ella hefðu verið í erfiðleikum með sín húsnæðismál. Það haggar hins vegar ekki því að þegar svo stórar sveiflur verða í einum þætti efnahagslífsins eins og hér er um að ræða, þ.e. í húsnæðiskerfinu, stórar sveiflur koma allt í einu fram, hefur það ekki bara áhrif þar. Það hefur auðvitað stórkostleg áhrif í öllu efnahagskerfinu. Við erum kannski ekki búnir að bíta úr nálinni með það hvernig sú þensla spratt upp hér á þessu svæði sem raun varð á á þessum árum og ég hef hér vikið að.
Hv. þm. sagði að kerfið væri ekki sprungið. Kerfið var auðvitað sprungið þegar undir árslok 1987. Þá var orðinn tveggja til þriggja ára biðtími eftir lánum, eftir örfárra missira sögu þessa kerfis. Síðan var á síðasta þingi verið að lappa upp á þetta kerfi til þess að reyna að koma því fram að stytta þennan biðtíma og til þess að reyna að koma því fram að kerfið gæti gengið. Ég segi lappa upp á það vegna þess að biðtíminn er auðvitað allt of langur enn þá miðað við það mikla fjármagn sem í þetta kerfi fer.
Ég ætla aðeins að láta þessi orð fylgja með vegna þess að ummæli hv. 1. þm. Vesturl. eru auðvitað alveg út í bláinn. Í þessum orðum mínum, sem voru afskaplega hógvær og fá, fólust engar sérstakar ádeilur á þennan hv. þm., fyrrv. hæstv. félmrh., en í þeim fólst vitaskuld sannleikur.