Húsnæðisstofnun ríkisins
Þriðjudaginn 08. nóvember 1988

     Flm. (Matthías Bjarnason):
    Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Hv. 11. þm. Reykn. var að tæpa á átthagafjötrum. Ég held að það hafi ekki sést á tilflutningi á undanförnum árum og áratugum að fólk hafi verið fjötrað niður í vissum átthögum. Það hafa því verið ansi miklir tilflutningar hér og það er ekkert nýtt að það komi skipulag á meðferð fjármála og úthlutun fjár. Ég held því að þessi athugasemd hafi verið byggð á afar miklum misskilningi. En það voru þó öllu frekar þau orð sem 5. þm. Norðurl. v. sagði. Hann var mjög undrandi á því að tveir þm. Sjálfstfl. skyldu flytja frv. sem þetta því að þeir væru fulltrúar markaðshyggjunnar, skildist mér, þar sem markaðurinn ætti að ráða. Það var löngu áður en hv. þm. fæddist sem Sjálfstfl. hafði forustu um setningu fjölmargra laga um félagslegar umbætur. Og hann hefur allt fram til þessa dags staðið að því. Þingmenn Sjálfstfl. hafa flutt mörg mál einir, þeir hafa flutt mál í samvinnu við aðra og í samstarfsríkisstjórnum. Ég nefni alveg sérstaklega allar þær umbætur sem orðið hafa á sviði tryggingamála, á sviði heilbrigðismála og heilsugæslu í landinu, fjölmörg atriði á sviði menntamála og samgöngumála. Þó ég nefni ekki fleiri málaflokka er hér um fleiri málaflokka að ræða. Sjálfstfl. hefur verið vakandi fyrir því að byggja upp eins réttlátt þjóðfélag og tök eru á hverju sinni og koma með margvíslegar félagslegar umbætur. Ég verð að segja það og það með ljúfu geði að það hafa verið fulltrúar úr flestum eða öllum stjórnmálaflokkum á hverjum tíma sem hafa tekið virkan þátt í félagslegri uppbyggingu vítt og breitt um landið. En þessi athugasemd hún kom mér a.m.k. til þess að gera hér athugasemd. Ég hef aldrei, þau ár sem ég hef setið hér á hv. Alþingi, verið talsmaður þess að einhver markaðshyggja eða peningamenn fengju einir að ráða og segja til um hvað gera skal. Og ég vænti þess að á því verði ekki breyting til hins verra heldur vil ég vona að áfram verði haldið umbótum á sviði félagsmála og framfara fyrir landsmenn alla.