Þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu
Miðvikudaginn 09. nóvember 1988

     Flm. (Halldór Blöndal):
    Hæstv. forseti. Eins og hv. þm. rekur minni til var víðtæk samstaða um það hér á Alþingi á vormánuðum 1985 má ég segja að fjár skyldi aflað til húsnæðismála á því ári og árinu 1986 með sérstökum eignarskattsauka og var ákveðið í þeim lögum að ellilífeyrisþegar skyldu undanþegnir eignarskattsauka en ekki öryrkjar. Í lögunum um þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu var það ákvæði tekið orðrétt upp.
    Ég held ég geti fullyrt að á sínum tíma var það af athugunarleysi en ekki af ásetningi sem öryrkjum var sleppt úr upptalningunni. Ég hygg að fyrir þingmönnum hafi vakað á sínum tíma að sama reglan skyldi gilda um öryrkja og ellilífeyrisþega. Það kom svo í ljós 16. mars 1987, þegar ríkisskattanefnd felldi úrskurð um þetta atriði, að kærandinn, sem var 75% öryrki og naut örorkulífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins, sömu upphæðar og ellilífeyrisþegar, skyldi greiða eignarskattsaukann. Ég tel að þetta sé óeðlilegt og tel að í þessum lögum eins og öðrum sambærilegum eigi sama regla að gilda um öryrkja og ellilífeyrisþega.
    Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa um þetta mörg orð. Frv. var lagt fram á síðustu dögum þingsins sl. vor og kom ekki einu sinni til umræðu, ef ég man rétt, og gat af þeim sökum ekki fengið þinglega meðferð. En ég vil vænta þess að fjh.- og viðskn. geti afgreitt þetta mál fljótlega þannig að það geti komið til framkvæmda þar sem ég býst ekki við að efniságreiningur sé um það hér í þinginu.
    Ég legg til, herra forseti, að málinu verði vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn.