Iðnráðgjafar
Fimmtudaginn 10. nóvember 1988

     Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra hefur hér kynnt sín viðhorf til þessa máls. Ég hef fengið vitneskju um hans hugmyndir í þessu sambandi alveg nýverið, en þær fela það í sér að Byggðastofnun verði falið að taka við þessu máli, atvinnuráðgjöf í landshlutunum, og fjárveitingar til þeirrar starfsemi komi af fjárveitingum til Byggðastofnunar í framtíðinni. Ég er ekki sáttur við þessa hugmynd hæstv. ráðherra og vil að það komi hér fram. Ég tel að Byggðastofnun hafi þegar ærnum hlutverkum að sinna og það sé ekki skynsamlegt að bæta þar við með þeim hætti sem hér er að stefnt eða ráðherrann hefur nefnt.
    Ég bendi á að fjárveitingar til Byggðastofnunar hafa nú verið við nögl skornar miðað við það hlutverk sem henni hefur verið ætlað og það verði nokkuð á óvissuna að róa í sambandi við fjárveitingar. Ég held líka að það skipti miklu máli að hér sé um að ræða stuðning við frumkvæði heima fyrir. Það var í upphaflegum lögum hugmynd ríkisins, framkvæmdarvaldsins, að þetta yrði stuðningur við frumkvæði heima fyrir og vaxið hafa upp iðnþróunarfélög í flestum landshlutum sem standa eiga að hluta af þessari starfsemi og styðja við hana. Ég held að það væri ekki skynsamlegt að lama þetta frumkvæði heimamanna. Byggðastofnun er ansi miðstýrt fyrirtæki þó að verið sé að koma upp stjórnsýslumiðstöðvum á stöku stað úti um landið. Ég vil ráða hæstv. ráðherra að líta á þessi mál á grundvelli fenginnar góðrar reynslu af starfsemi iðnráðgjafa, en helstu annmarkarnir hafa verið þeir að það hefur aðeins verið einn maður á stóru svæði til að annast þau miklu verkefni sem þarna er um að ræða.
    Hitt er svo annað mál að vel kemur til greina að útvíkka ráðgjafarhlutverk iðnráðgjafanna og það hefur raunar verið gert í reynd og ég er alveg reiðubúinn að skoða það mál að tengja saman ráðgjöf í þágu annarra atvinnugreina en iðnaðarins eins, því að þetta getur vissulega farið saman og mörkin eru ekki mjög skýr á milli. En það þarf samt að fara mjög vel ofan í saumana þannig að það sé um aukningu að ræða, það sé um aukinn stuðning að ræða við þessa starfsemi um leið og allrar skynsamlegrar hagræðingar er gætt í því efni. Atvinnuþróunarstofur í landshlutunum gætu verið skynsamlegt markmið þar sem stutt væri við þessa ráðgjafastarfsemi hvort sem um er að ræða iðnað, sjávarútveg eða landbúnað.