Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde):
Virðulegi forseti. Í októbermánuði 1987 gaf þáv. ríkisstjórn út yfirlýsingu um ráðstafanir í efnahagsmálum. Þar var m.a. svofellt ákvæði, með leyfi forseta:
,,Einstaklingum og fyrirtækjum verður heimilað að eignast erlend verðbréf. Heimildir íslenskra fyrirtækja til að fjárfesta í atvinnurekstri erlendis og styrkja þannig viðskiptastöðu sína verða rýmkaðar. Íslendingum verður heimilað að kaupa skuldabréf ríkisins og annarra íslenskra aðila sem til sölu eru á verðbréfamörkuðum erlendis. Þá verða opnaðar heimildir til kaupa á öðrum tryggðum verðbréfum.``
Nú eru liðnir rúmir 13 mánuðir frá því að þetta áform var tilkynnt. Mér finnst ástæða til þess að grennslast fyrir um það hjá hæstv. viðskrh. hvað líði framkvæmd þessara fyrirætlana, ekki síst hvort nokkur breyting hefur orðið á afstöðu ríkisstjórnarinnar með tilkomu Alþb. í ríkisstjórn. Fsp. er svofelld:
,,Hvað líður undirbúningi að því að heimila innlendum aðilum kaup á erlendum verðbréfum?
Hyggst ráðherra áfram beita sér fyrir því að heimildir íslenskra fyrirtækja til að fjárfesta í atvinnurekstri erlendis og styrkja þannig viðskiptastöðu sína verði rýmkaðar eins og segir í yfirlýsingu fyrri ríkisstjórnar frá 12. okt. 1987?``