Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Hæstv. forseti. Ég hef nú tekið fyrirspurnatíma samkvæmt nýjum þingsköpum þannig að þeir væru til að svara beinum fyrirspurnum en ekki til að hefja almenna efnislega umræðu um mál. Ég held að það sé ekki tími til þess að fara í heild sinni yfir þetta mál. En vegna þess sem hér hefur verið spurt um sérstaklega get ég upplýst að það er rangt, sem haldið var fram af hv. 5. þm. Reykv., að Ferðaskrifstofa ríkisins hafi verið stórgróðafyrirtæki öll undanfarin ár. Því miður mun hafa verið tap á rekstrinum síðastliðið ár, svo dæmi sé tekið. Í öðru lagi svaraði ég því alveg skýrt að matsverð fyrirtækisins var 30,4 millj. kr. og það var lagt til grundvallar við þessa sölu. Söluverðmæti 28,4 millj. kr. Síðan var það enn lækkað með því að skilja eftir hluta af því sem skuld hjá ríkissjóði, þannig að útgefið heildarhlutafé í Ferðaskrifstofu Íslands hf. varð að endingu 21 millj. kr. Ég vona að þetta svari hv. þingmanni skýrt.
Ég endurtek það sem ég hér áðan sagði: Málið er til skoðunar, hefur verið það síðan ég kom að í ráðuneytinu og viðræður standa nú yfir við starfsfólkið, m.a. til að tryggja þann vilja að hér verði fyrst og fremst um samstarf starfsfólksins, ríkisins og þá hugsanlega aðila eins og ferðamálasamtaka landshlutanna að ræða.
Ég tel rétt að menn geri sér grein fyrir því að hér er um nokkuð sérstakan rekstur að ræða. Ferðaskrifstofan hefur nýtt sér m.a. húseignir heimavistarskólanna í landinu og notið þar góðs af samstarfi við sveitarfélög og opinbera aðila, þannig að tillit þarf að taka til þess.
Ég vona að frá þessu máli verði gengið á allra næstu dögum með þeim hætti sem ég hef hér gert grein fyrir. Það kann að koma til álita að taka upp í stofnsamþykktir félagsins ákvæði sem tryggja það betur en nú er að um samstarf þessara aðila og þessara aðila einna verði að ræða í rekstri Ferðaskrifstofu Íslands hf. Og það er einlæg von mín að þeim draugagangi sem staðið hefur um þetta fyrirtæki um langt árabil, með eilífum hugdettum um að selja það eða breyta því, ljúki og verði ekki upptekinn aftur á næstu áratugum.