Námslán
Fimmtudaginn 10. nóvember 1988

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Virðulegi forseti. Að því er varðar 1. tölul. vil ég svara því til að ætlun mín er að skipa á næstunni vinnuhóp til að fara yfir úthlutunarreglur og fleiri þætti Lánasjóðs ísl. námsmanna. Í framhaldi af því gæti komið til greina að láta fara fram endurskoðun á lögunum um námslán og námsstyrki, en þau lög eru hins vegar, eins og ég hef áður tekið fram, samningur milli námsmannahreyfinganna og ríkisvaldsins þannig að endurskoðun á lögunum færi ekki fram öðruvísi en í samvinnu við námsmannahreyfingu og niðurstöður yrðu að vera sameiginlegar ef nokkur kostur er. Þannig er ekki ætlunin að setja nú þegar af stað heildarendurskoðun á lögunum um námslán og námsstyrki heldur að vinna í úthlutunarreglum.
    Varðandi 2. tölul. þar sem spurt er hvort ráðherrann ætli að beita sér fyrir því við afgreiðslu fjárlaga að skerðingin verði afnumin sem hv. fyrirspyrjandi vitnaði hér í áðan, er því til að svara að stjórnarflokkarnir hafa fyrir sitt leyti tekið ákvörðun um þann ramma sem við er að miða við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1989. Það getur auðvitað breyst við meðferð fjárlagafrv., en það getur ekki verið ákvörðun menntmrh. eins heldur hlýtur það að vera sameiginleg ákvörðun allra stjórnarflokkanna, bæði varðandi þennan lið og aðra.
    Varðandi 3. liðinn tel ég að það sé einboðið að það verði að fara fram ný framfærslukönnun til að kanna raunverulegan framfærslukostnað námsmanna hérlendis og erlendis. Það er alveg rétt, sem hv. þm. Finnur Ingólfsson sagði, að framfærslukostnaðurinn er örugglega rangmetinn nú orðið, alveg sérstaklega húsnæðisliðurinn, t.d. fyrir þá sem eru á Íslandi, þannig að það er augljóst að þarna verður að fara fram könnun. Spurningin er hins vegar hvernig þeirri könnun verður fyrir komið. Það er upplagt verkefni fyrir þann vinnuhóp sem ég hef hugsað mér að skipa að líta á hvernig könnun yrði framkvæmd, könnun af því tagi sem hv. þm. nefnir í 3. tölulið.
    Stefna menntmrn. og ríkisstjórnarinnar varðandi málefni Lánasjóðs ísl. námsmanna er auðvitað sú að afnema skerðinguna. Það getur hins vegar tekið tíma og ræðst af aðstæðum, m.a. í fjárlögum á hverjum tíma.