Sjávarútvegsskóli
Fimmtudaginn 10. nóvember 1988

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Hæstv. forseti. Ég tók þannig til orða áðan að ég gæti ekki svarað fsp. hv. þm. á þessu stigi með jái. Til að skýra það aðeins betur og koma í veg fyrir misskilning vil ég benda á að í fsp. stendur: ,,Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að stofnaður verði sérstakur sjávarútvegsskóli á framhaldsskólastigi eins og starfshópur sá gerði tillögur um?``
    Ég treysti mér ekki til að slá því föstu að þessi skóli eigi að vera nákvæmlega eins og starfshópurinn gerði tillögu um, m.a. vegna seinni ákvarðana sem Alþingi hefur tekið varðandi framhaldsskólann. Ég vil vinna að málinu og segja að ég er fullkomlega sammála hv. þm. og það er ástæðan fyrir því að ég vil skoða málið í heild. Það á auðvitað að koma í veg fyrir tvíverknað og margverknað og stórfelldan aukakostnað sem hlýst af því að menn eru að gera sömu hlutina svo að segja á sama svæðinu. Ég tel að hér sé hreyft mjög þörfu máli og ég tel að ef við eigum að ná tökum á því að reisa þær hugsjónir sem alþýðufræðslan byggðist á í verki eigi einmitt að byrja í sjávarútveginum. Hvar ef ekki þar?