Fjárlög 1989
Fimmtudaginn 10. nóvember 1988

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. til fjárlaga sem lagt hefur verið fram á þskj. 75. Í kjölfar fjárlagafrv. verða lögð fram önnur frv. sem ætlað er að hafa áhrif á bæði tekjur og gjöld ríkissjóðs og mæla fyrir um lántökur.
    Fjárlagafrv. fyrir árið 1989 flytur engan gleðiboðskap. Það byggir á viðurkenningu á því að nú kreppi að í íslenskum þjóðarbúskap. Nauðsynlegt er að hverfa af þeirri braut viðskiptahalla og erlendrar skuldasöfnunar sem einkennt hefur undanfarin ár. Til að þetta megi takast verða bæði þingið og þjóðin öll að sameinast um að breyta þeirri stefnu sem fylgt hefur verið að undanförnu. Það frv. sem hér liggur fyrir er mikilvægur liður í slíkri stefnubreytingu.
    Þróun efnahagsmála á yfirstandandi ári einkennist annars vegar af endalokum góðærisins, sem landsmenn hafa búið við síðan á árinu 1986, og hins vegar af djúpri kreppu í hagstjórn sem ríkti á síðustu mánuðum fyrri ríkisstjórnar.
    Hagvaxtarskeiði síðustu ára er lokið í bili. Útlit er fyrir að afli dragist saman um 2% í ár og þjóðartekjur um svipað. Innlend eftirspurn hefur einnig minnkað, sérstaklega á síðustu mánuðum. Neysla og fjárfesting þjóðarbúsins mun í heild minnka um nær 1% en þjóðarútgjöld í heild enn minna vegna aukinna birgða í útflutningsgreinum.
    Þrátt fyrir nokkurn samdrátt afla og þjóðartekna á þessu ári er ekki enn hægt að tala um að ytri skilyrði þjóðarbúsins séu verulega óhagstæð. Þjóðartekjur á mann verða í ár þær næsthæstu í sögu þjóðarinnar. Það hefði vissulega mátt ráða við aðsteðjandi vanda í þjóðarbúinu ef ekki hefði komið til sú kreppa í hagstjórninni sem einkenndi síðustu ríkisstjórn. Sá vandi á rætur að rekja til ofþenslu og rangra fjárfestinga, einkum á höfuðborgarsvæðinu, og til mikils misvægis í tekju- og kostnaðarþróun í útflutningsgreinunum, þar sem ekki tókst að skjóta stoðum undir fastgengisstefnuna með aðhaldi í ríkisfjármálum og peningamálum.
    Af þessum ástæðum og vegna þeirra skipulagsbresta, sem einkenna marga atvinnuvegi okkar og koma m.a. fram í stöðugri tilhneigingu til offjárfestingar, blasti við stöðvun margra útflutningsfyrirtækja og atvinnuleysi fjölda fólks um allt land þegar núv. ríkisstjórn tók við. Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar miðuðu þess vegna að því að rétta við stöðu útflutningsgreinanna og forða atvinnuleysi, samtímis sem verðbólgan er hamin.
    Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin beitti sér fyrir í upphafi voru eftirfarandi:
    Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins var gert kleift með lántöku að greiða allt að 5% verðuppbót á freðfisk með sambærilegum áhrifum á afkomu.
    Verðstöðvun var framlengd til 28. febr. 1989 en laun, almennt fiskverð og launaliður í verðlagsgrundvelli búvöru munu haldast óbreytt til 15. febr. 1989.
    Niðurgreiðslur voru auknar í byrjun október, þannig að búvöruverð helst óbreytt til loka

verðstöðvunartímabilsins.
    Ríkisstjórnin beitti sér fyrir lækkun nafnvaxta og raunvaxta í upphafi október. Nafnvextirnir lækkuðu í kringum 5% en raunvextirnir yfirleitt um 0,4--0,7%.
    Þessar aðgerðir hafa þegar skilað umtalsverðum árangri. Atvinnuleysi hefur verið forðað og horfur eru á að verðbólgan verði komin niður fyrir 10% í árslok. Og nýjustu tölur um verðlagsþróun undanfarið munu á næstu dögum staðfesta enn frekar þann spádóm.
    Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru þó að sumu leyti bráðabirgðaaðgerðir. Þær voru hins vegar nauðsynlegar til að skapa svigrúm fyrir varanlegri aðgerðum. Raunverulegur árangur næst ekki með kollsteypum, heldur fyrst og fremst með samræmdri stjórn ríkisfjármála, peningamála og gengismála. Það fjárlagafrv. sem hér liggur fyrir er einn mikilvægasti hlekkurinn í þeirri keðju. Áður en gerð verður nánari grein fyrir þeirri stefnu sem í frv. felst mun ég fjalla um afkomu ríkissjóðs á yfirstandandi ári og kynna nýjustu tölur eins og þær hafa birst í októbermánuði.
    Við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1988 var gert ráð fyrir að rekstur og greiðsluafkoma yrði því sem næst í jafnvægi.
    Fyrir mitt ár fór hins vegar að gæta samdráttar í veltu innan lands og hefur sú þróun farið vaxandi eftir því sem liðið hefur á árið. Þessi samdráttur kemur eðli málsins samkvæmt einkum fram í minnkandi tekjum af söluskatti, tollum og öðrum veltusköttum. Jafnframt virðist innheimtan sjálf hafa gengið verr upp á síðkastið sem er ákveðin vísbending um vaxandi greiðsluerfiðleika í rekstri fyrirtækja.
    Samkvæmt endurskoðaðri áætlun, sem ég kynnti Alþingi fyrir nokkrum vikum síðan, munu heildartekjur ríkissjóðs á árinu 1988 verða tæplega 66,4 milljarðar kr. Samkvæmt því nemur tekjutap ríkissjóðs á þessu ári 1--1 1 / 2 milljarði kr. frá forsendum fjárlaga fyrir árið 1988. Óbeinir skattar hafa þó dregist mun meira saman eða um 3--3 1 / 2 milljarð kr. Sá samdráttur á sér einkum stað í tekjum af aðflutningsgjöldum og söluskatti. Á móti vega auknar
tekjur af beinum sköttum. Sú þróun skýrist fyrst og fremst af tvennu, betri innheimtu á tekjuskatti einstaklinga, svo og breytingum á tekjuskatti fyrirtækja.
    Á gjaldahlið fjárlaganna hafa orðið verulegar breytingar frá forsendum fjárlaga. Annars vegar hafa útgjöld verið aukin til að styrkja stöðu atvinnuveganna og greiða niður verðlag nauðsynjavara til neytenda. Hins vegar hafa verðlagsbreytingar raskað forsendum fjárlaga. Samkvæmt endurskoðaðri áætlun eru heildarútgjöld nú talin verða tæplega 69,5 milljarðar kr. Hækkun almennra rekstrarútgjalda frá fjárlagaáætlun nemur 2 milljörðum kr. eða um 7,5%. Það er svipað og almennar launa- og verðlagsbreytingar gefa tilefni til. Sama á við um lífeyris- og sjúkratryggingar. Þær hækka um tæplega 1100 millj. kr. frá fjárlögum. Þá hækka niðurgreiðslur um 560 millj. kr., m.a. til að draga úr áhrifum söluskatts á búvöruverð. Langstærsta frávikið frá fjárlagaáætlun er hins vegar í vaxtagjöldum ríkissjóðs

en þau hafa farið 1,7 milljörðum kr. umfram áætlun. Að stærstum hluta vegna aukinna vaxtagreiðslna af yfirdrætti í Seðlabanka en þær fara 1200 millj. kr. fram úr fjárlagaáætlun. Önnur vaxtagjöld hækka í samræmi við það sem innlendar og erlendar verðbreytingar hafa farið umfram forsendur fjárlaga.
    Eins og fram hefur komið hér að framan gerði sú áætlun, sem ég kynnti Alþingi fyrir nokkru síðan, ráð fyrir því að tekjuhalli á ríkissjóði verði ekki undir 3 milljörðum kr. Bráðabirgðatölur fyrir októbermánuð gefa hins vegar til kynna að sú aukning innheimtu, sem venjulega verður á síðustu mánuðum ársins, geti orðið mun minni í ár. Tekjuhalli ríkissjóðs gæti því á árinu 1988 orðið nær 4 milljörðum kr. en 3 milljörðum.
    Innheimta á tekjum ríkissjóðs í októbermánuði virðist samkvæmt bráðabirgðatölum vera 600--700 millj. kr. undir þeirri áætlun sem síðast var gerð. Það felur í sér að sú viðbót, sem reiknað var með að mundi í októbermánuði koma til með að vega að hluta upp tekjutap á fyrstu níu mánuðum ársins, er röskum hálfum milljarði undir því sem menn töldu fyrir nokkrum vikum síðan að gæti orðið.
    Til samanburðar má geta þess að tekjur ríkissjóðs í októbermánuði munu samkvæmt bráðabirgðauppgjöri verða lægri í krónutölu en í marsmánuði á þessu ári. Þetta kemur að langmestu leyti fram í veltusköttum, einkum söluskatti sem er um 350--400 millj. kr. undir endurskoðaðri áætlun í októbermánuði.
    Þetta eru ískyggilegar tölur. Þær fela í sér að sá samdráttur í tekjum ríkissjóðs, sem hefur verið umræðuefni undanfarnar vikur og mánuði hér á Alþingi og í þjóðfélaginu, muni verða enn meiri en svartsýnustu raddir töldu að hann mundi verða. Þegar ég kynnti Alþingi áætlunina fyrir nokkrum vikum síðan vék ég að því að óvarlegt væri að ætla að hallinn á ríkissjóði yrði undir 3--4 milljörðum kr. Á þessari stundu, í ljósi þeirra nýju talna um útkomuna í októbermánuði sem ég hef nú kynnt, er mér nær að segja hér á þessari stundu að nauðsynlegt sé að Alþingi allt og þjóðin búi sig undir það að útkoman verði nær 4 milljarða kr. halla á rekstri ríkissjóðs á árinu 1988.
    Sá samdráttur sem við höfum séð á undanförnum mánuðum heldur því áfram með sívaxandi þunga. Hann endurspeglast m.a. í vanda atvinnufyrirtækjanna í landinu og vaxandi fjölda gjaldþrota þar sem nánast er tilkynnt um ný og ný gjaldþrot í hverri viku. Hann endurspeglast einnig í gífurlegum vanskilum á söluskatti. Í upphafi þessa mánaðar námu heildarvanskil á söluskatti rúmum 3 milljörðum kr.
    Virðulegi forseti. Því miður bendir flest til þess að sá samdráttur þjóðartekna sem hófst á þessu ári muni halda áfram á því næsta. Spáð er að afli minnki um 4,5% á árinu 1989 og þjóðartekjur minnki um 3%. Neysla og fjárfesting þjóðarbúsins í heild er talin minnka um 2,8%, en þar hafa þau áform sem kynnt eru í frv. einnig áhrif. Því er spáð að einkaneysla minnki um 3,5%, að samneysla aukist um 0,5% og að fjárfesting dragist saman um 3,2%. Nánast engin dæmi

eru um svo litla aukningu samneyslunnar á undanförnum áratugum, enda mun samneysla á mann minnka á næsta ári.
    Þrátt fyrir að útflutningstekjur dragist saman um nær 2,5% á næsta ári er ekki gert ráð fyrir því á þessu stigi að viðskiptahallinn aukist frá því í ár. Hann yrði a.m.k. 12,4 milljarðar kr. eða 4,5% af landsframleiðslu en gæti þó hæglega, ef ýmsar forsendur bresta, orðið enn meiri. Þar af stafa um 10 milljarðar kr. af vaxtagreiðslum af erlendum lánum. Þær horfur um samdrátt í tekjum og eftirspurn á næsta ári, sem hér hefur verið gerð grein fyrir, hafa óhjákvæmilega áhrif á stöðu ríkissjóðs á næsta ári og gerð þess frv. sem hér er lagt fram.
    Við upphaf fjárlagagerðar nýrrar ríkisstjórnar blasti við að halli ríkissjóðs yrði verulegur á næsta ári að óbreyttum tekjum og þeim útgjaldaáformum sem lágu fyrir í Fjárlaga- og hagsýslustofnun. Ríkisstjórnin setti sér í upphafi það markmið að samþykkja fjárlög með afgangi. Þetta var talið nauðsynlegt til að vinna gegn þenslu og stuðla að lækkun verðbólgu og lækkun vaxta. Til að ná slíku markmiði var nauðsynlegt að skera niður fyrirliggjandi útgjaldaáform og afla ríkissjóði aukinna tekna.
    Þær raddir hafa heyrst að nú séu aðstæður breyttar og því ekki ástæða til að samþykkja fjárlög með eins miklum afgangi og gert er ráð fyrir í fjárlagafrv. Því er til að svara að þótt samdráttur á innlendri eftirspurn eigi sér nú stað verður hallinn á viðskiptum við útlönd umtalsverður, bæði í ár og á því næsta miðað við núverandi horfur. Innlend eftirspurn er því að lækka frá stigi sem alls ekki fékk staðist til lengdar og til að koma í veg fyrir aukningu viðskiptahallans er nauðsynlegt að ríkissjóður verði rekinn með afgangi á næsta ári.
    Auk þess skal áréttað að það er markmið þessarar ríkisstjórnar að ná niður raunvöxtum. Þeir háu raunvextir, sem verið hafa hér á landi að undanförnu, fá ekki staðist til lengdar. Háir raunvextir eru ekki hvað síst því að kenna að stefnan í ríkisfjármálum hefur á undanförnum árum stuðlað að þenslu og mikilli eftirspurn á lánsfjármarkaðinum á sama tíma og stefnan í peningamálum hefur verið aðhaldssamari. Má í þessu sambandi nefna að hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs nam um 2,7% af landsframleiðslu á árinu 1987 og er talin munu vera 1,4% af landsframleiðslu í ár. Ef varanleg lækkun á raunvöxtum á að nást er nauðsynlegt að breyta þessu þannig að stefnan í ríkisfjármálum verði aðhaldssamari og minna þurfi því að leggja á stjórn peningamála. Reynslan sýnir auk þess að vextirnir eru veikara tæki til að stýra heildareftirspurn í hagkerfinu en breytingar á tekjum og gjöldum ríkissjóðs. Tekjuafgangur ríkissjóðs er því mikilvægt tæki til þess að ná niður vöxtunum.
    Verði samdráttur í tekjum og eftirspurn í hagkerfinu meiri en nú er spáð, og það getur vissulega gerst, munu tekjur ríkissjóðs minnka sjálfkrafa og tekjujöfnuðurinn að sama skapi verða verri. Loks er rétt að geta þess í þessu samhengi að auðveldara verður að bregðast við vandamálum sem

kunna að koma upp vegna samdráttar á næsta ári ef ríkissjóður hefur það svigrúm sem felst í tekjuafgangi á fjárlögum.
    Að venju byggir fjárlagafrv. á áætlunum um þróun helstu hagstærða á næsta ári. Óvissan í því efni nú er í reynd með mesta móti. Engu að síður er þeirri reglu fylgt að fjárlagafrv. byggir í öllum meginatriðum á forsendum þjóðhagsáætlunar fyrir árið 1989, enda er sú regla bundin í lög. Heildartölur frv. eru settar fram á áætluðu meðalverðlagi 1989. Hins vegar eru launa- og rekstrargjöld einstakra stofnana færð á áætluðu verðlagi í janúar 1989 en mismunurinn færður til gjalda á sérstökum fjárlagalið. Í samræmi við þjóðhagsáætlun er í frv. gengið út frá því að framfærslukostnaður hækki um 12% á milli ára. Launabreytingar eru áætlaðar 8% á milli ára og hækkun vísitölu byggingarkostnaðar 10%. Áætlað er að meðalverð á erlendum gjaldeyri muni hækka um 7% á milli ára, en öll sú hækkun er þegar fram komin. Að teknu tilliti til erlendra verðbreytinga hækkar innflutningsverð í íslenskum krónum svipað og innlent verðlag.
    Virðulegi forseti. Þessar forsendur fjárlagafrv. hafa verið gagnrýndar töluvert að undanförnu. Því hefur verið haldið fram að þær standist ekki og þar með sé grundvellinum kippt undan frv. Ef tekið er tillit til erlendrar verðbólgu fela þessar forsendur í sér að á næsta ári verði raungengi krónunnar svipað og það er á þessum ársfjórðungi og lækki lítillega á milli ára. Hvað raunlaun varðar gera þessar forsendur ráð fyrir óbreyttum raunlaunum frá því sem þau verða á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Þannig er það misræmi, sem kemur fram í þróun verðlags, gengis og launa, að mestu fram komið nú þegar. Enda þótt þróun verðlags og launa á næsta ári verði á annan hátt en hér er miðað við, kollvarpast fjárlagafrv. alls ekki af þeim sökum. Skýringin er það innbyrðis samhengi sem byggt er inn í frv. Ef verðbólga verður almennt meiri mun tekjuafgangurinn vaxa vegna krónutöluframlaga í frv. Ef kaupgreiðslur hækka umfram það sem hér er gert ráð fyrir aukast launaútgjöld ríkisins. Á móti kemur að eftirspurn og umsvif í hagkerfinu aukast og verðbólga einnig. Skattatekjur af bæði veltu- og tekjusköttum aukast. Tekjuafgangurinn getur því orðið meiri en á móti verður viðskiptahallinn við útlönd einnig meiri. Ef raungengi krónunnar lækkar meira en hér er gert ráð fyrir munu raunverulegar tekjur, eftirspurn og innflutningur verða minni auk þess sem vaxtagjöld aukast. Tekjuafgangurinn minnkar eða hverfur alveg, en það mun koma lítið að sök þar sem á móti kemur að viðskiptahallinn verður minni. Vegna þessa rökræna samhengis frv. sjálfs er á þessu stigi máls engin ástæða til annars en að byggja á þeim forsendum sem hér hafa verið raktar.
    Fjárlagafrv. fyrir árið 1989 markast annars vegar af þeim aðstæðum sem hér hefur verið lýst og hins vegar af þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta og koma í veg fyrir aukinn viðskiptahalla á næsta ári þrátt fyrir samdrátt útflutningstekna. Megineinkenni frv. eru því þessi:

Frv. er lagt fram með tæplega 1200 millj. kr. tekjuafgangi. Dregið er verulega úr opinberri fjárfestingu. Aðhald er veitt í útgjöldum ríkissjóðs á sama tíma og haldið er uppi óbreyttu þjónustustigi á sviði velferðarmála. Ríkissjóður greiðir niður skuldir í stað þess að bæta við þær, eins og gert hefur verið á undanförnum árum. Stórlega er dregið úr erlendum lántökum opinberra aðila.
    Meginatriði fjárlagafrv. fyrir árið 1989 er að með því er gerð tilraun til
að snúa við blaðinu frá þeim hallarekstri sem einkennt hefur ríkissjóð á síðustu árum. Ætlunin er að snúa um 3 milljarða kr. halla á árinu 1988 í rúmlega 1 milljarðs kr. afgang á árinu 1989. Þessi umbreyting svarar til um 1,5% af landsframleiðslu og það er rétt að árétta hér að það verður vissulega erfitt verkefni að tryggja framkvæmd þessa markmiðs. Tekjuafgangur ríkissjóðs er áætlaður 1 milljarður 184 millj. kr. en það samsvarar 1,6% af ríkisútgjöldum og 0,5% af landsframleiðslu. Til að þetta sé mögulegt er nauðsynlegt að stöðva nær alveg vöxt ríkisútgjalda og afla ríkissjóði nýrra tekna, eins og ég mun nánar fjalla um hér á eftir. Ríkisútgjöldin hækka aðeins um 0,3% af landsframleiðslu milli áranna 1988 og 1989, eða úr 27,4% í 27,7%. Ef ekki hefði komið til framleiðslusamdráttur á næsta ári hefði hlutfallið í raun lækkað um 0,1%, þ.e. ríkisútgjöld lækka að raungildi mælt á mælikvarða verðlags landsframleiðslu en aukast hins vegar lítillega ef miðað er við áætlaða verðlagsþróun einstakra þátta ríkisútgjalda. Tekjur ríkissjóðs aukast umn 1,25% að raungildi frá fjárlögum 1988 eða um tæplega 1 milljarð kr., en aukningin er auðvitað þó nokkru meiri út frá áætlaðri útkomu ríkissjóðs á þessu ári. Skýringin felst í þeim tekjubresti sem orðið hefur á árinu og mun að öllum líkindum halda áfram á þeim mánuðum sem eftir eru. Á þessu stigi er áætlað að heildartekjur ríkissjóðs muni verða um 28,1% af landsframleiðslu á næsta ári.
    Í frv. er verulega dregið úr fjárfestingu og lántökum hins opinbera á næsta ári. Opinber fjárfesting í heild lækkar að raungildi um 3%, en þá er þess að gæta að töluverð aukning verður í fjárfestingu í rafvirkjunum og fjárfesting sveitarfélaga er einnig talin með hér. Fjárfestingar ríkissjóðs sjálfs dragast hins vegar mun meira saman eða um 7% að raungildi. Fjárfesting B-hluta fyrirtækja mun líklega dragast enn meira saman þar sem hún er nær óbreytt í krónutölu frá fjárlögum fyrir 1988 og felur það því í sér rúmlega 10% samdrátt að raungildi.
    Samkvæmt þessu frv. mun ríkissjóður engin erlend lán taka á næsta ári. Þvert á móti mun hann greiða niður erlend lán sem nemur 1,5 milljörðum kr. Í heild mun ríkissjóður greiða niður skuldir sem nema 1,9 milljörðum kr. Til samanburðar má nefna að á þessu ári er áætlað að 3,5 milljarðar kr. bætist við skuldir ríkissjóðs og að viðbótin hafi verið 2,6 milljarðar 1986 og 5,5 milljarðar 1987, sem þó voru ár góðærisins. Hefði önnur stefna ríkt á þessum góðærisárum stæðum við ekki í þeim sporum sem við stöndum nú. Erlendar lántökur opinberra aðila og

opinberra lánasjóða minnka verulega eða úr 8,9 milljörðum í ár í 5,9 milljarða á næsta ári. Hér er um að ræða 40% lækkun í erlendri mynt.
    Virðulegi forseti. Fjárlagafrv. fyrir 1989 einkennist af því að gerð er tilraun til að stöðva útgjaldaþenslu ríkisins án þess þó að skerða margvíslega þjónustu á sviði velferðarmála, menningarstarfsemi, félagsmála og umhverfisverndar. Ýmis framlög til framkvæmda eru skorin niður og rekstri í ríkisstofnunum og fyrirtækjum er veitt meira aðhald. Aukin tekjuöflun ríkissjóðs miðast við að þeir sem hafa mestar tekjur og eignir og hafa ráðstafað mestu í lúxuseyðslu og fjárfestingu á undanförnum árum beri stærstan hluta aukinnar skattbyrðar. Hins vegar mun skattbyrði fólks með lægri tekjur og skattbyrði barnmargra fjölskyldna ekki hækka. Tekjuöflunin á einnig að halda aftur af innflutningi og fjárfestingu. Fjárlagafrv. fyrir árið 1989 byggir þannig á því að fulls félagslegs réttlætis sé gætt, þótt nú þurfi um hríð að leggja auknar byrðar á landsmenn.
    Gjöld ríkissjóðs í frv. til fjárlaga fyrir 1989 eru alls 76,1 milljarður kr. Gjaldaáætlun þess er eins og tekjuáætlunin miðuð við meðalverðlag ársins 1989. Eins og að framan greinir er í öllum meginatriðum gengið út frá sömu forsendum og gert er í þjóðhagsáætlun. Þess ber að gæta að þó hækkun einstakra útgjaldategunda, svo sem launa og verðlags, sé mismunandi á milli ára, eins og að framan greinir, er ekki gert ráð fyrir mismunandi breytingum á þessum stærðum á árinu 1989.
    Áætlað er að útgjöld A-hluta ríkissjóðs verði 76,1 milljarður kr. Af ríkisútgjöldunum er almennur rekstur ríkisstofnana um 29,9 milljarðar kr. Auk þeirra má telja sjúkratryggingar að mestu til samneyslu og eru þessir liðir samtals um 35,7 milljarðar samkvæmt áætluninni og munu hækka um 8,6% á milli ára. Er samneyslan því nær óbreytt að raungildi og er hún tæplega 47% ríkisútgjaldanna.
    Neyslu- og rekstrartilfærslur aðrar en sjúkratryggingar eru 22,9 milljarðar kr. Hækkunin frá fyrra ári er um 10,4%. Þessar tilfærslur eru um 30% útgjaldanna. Stærsti liðurinn er lífeyristryggingar, um 10,8 milljarðar. Aðrir stórir liðir eru niðurgreiðslur á vöruverði og útflutningsbætur, samtals um 5,1 milljarður, framlag til Lánasjóðs ísl. námsmanna, um 1,6 milljarðar, og endurgreiðslur á söluskatti og jöfnunargjaldi í sjávarútvegi og iðnaði, um 1,2 milljarðar.
    Vaxtagreiðslur eru nú áætlaðar 7,35 milljarðar eða um 13,1% hærri en þær verða á yfirstandandi ári. Frá fjárlögum 1988 er hækkunin hins vegar um 53%.
Vaxtagreiðslur verða þannig nær 9,7% ríkisútgjaldanna á næsta ári samanborið við 9,4% á þessu ári. Þessar auknu vaxtagreiðslur stafa fyrst og fremst af þrennu: Í fyrsta lagi af gengisbreytingu sem hækkar vaxtagreiðslur á erlendum lánum. Í öðru lagi af aukinni innlausn spariskírteina ríkissjóðs. Og í þriðja lagi af viðbótarlántöku sem nauðsynleg er til þess að jafna yfirdráttarskuld ríkissjóðs við Seðlabankann vegna halla á þessu ári.

    Framlög til fjárfestingar og fjármagnstilfærslur til sveitarfélaga og fjárfestingarsjóða eru áætluð um 8,7 milljarðar kr. og hækka um 10,2% frá þessu ári. Hækkunin er um 800 millj. kr. Nýr liður í frv. er 500 millj. kr. framlag ríkissjóðs til Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina. Auk þess eru hér talin 400 millj. kr. aukin útgjöld Vegagerðar ríkisins. Að þessum liðum frátöldum er framlag til fjárfestingar því nær óbreytt að krónutölu sem þýðir í reynd 10% samdráttur.
    Útgjöld A-hluta fjárlaga munu samkvæmt frv. hækka úr 27,4% í 27,7% af landsframleiðslu eða um 0,3%, eins og að framan greinir. Hækkunin á raungildi útgjalda er lítil eða um 0,8%. Sú hækkun er einkum fólgin í hækkun vaxta, hækkun tilfærsluliða eins og lífeyristrygginga og tilkomu nýrra liða eins og framlagi til Atvinnutryggingarsjóðs. Aðrir liðir, svo sem hin eiginlega samneysla og fjárfesting á vegum ríkisins, dragast hins vegar saman að raungildi á milli ára.
    Slíku marki, sem nauðsynlegt var talið með tilliti til stöðu efnahagsmála, varð ekki náð án ákvarðana um aðhald, bæði á sviði rekstrar og framkvæmda. Ber þá einnig að hafa í huga að samneyslan hefur síðustu árin vaxið minna en aðrir þættir þjóðarútgjalda þrátt fyrir sívaxandi kröfur um aukna þjónustu á ýmsum sviðum.
    Þessari lækkun útgjalda er náð með ýmsum hætti. Dregið er úr framlögum til framkvæmda. Lækkun á þeim lið næst með því að nýjum byggingaráformum er slegið á frest og verkum í framkvæmd er dreift á lengri tíma en áður er fyrirhugað. Tekjum af Happdrætti Háskóla Íslands er ætlað að standa undir öllum framkvæmdum þeirra stofnana sem lögin kveða á um. Framlög til framkvæmda á vegum sveitarfélaga eða sérstakra framkvæmdasjóða eru lítt breytt að krónutölu frá yfirstandandi ári og því lægri að raungildi. Sama viðmiðun var höfð varðandi framlög til endurgreiðslu á söluskatti í sjávarútvegi og jöfnunargjaldi í iðnaði.
    Starfsmannahald ríkisins hefur farið vaxandi ár frá ári um langt skeið. Auk eðlilegra breytinga vegna nýrra viðfangsefna og aukinnar þjónustu er þessi vöxtur einnig tilkominn vegna skorts á aðhaldi og endurmati á verkefnum stofnana og hvernig þeim er sinnt. Hverri stofnun er nauðsyn á að endurmeta starfsemi sína af og til og laga það sem úrskeiðis kann að hafa gengið og hagræða því sem betur má fara. Í ljósi þessarar þróunar hefur verið ákveðið að frá og með næsta ári verði stefnt að því að draga úr vinnuaflsnotkun ríkisins með markvissum aðgerðum á næstu árum. Fyrir árið 1989 er miðað við að þessi samdráttur geti orðið um 2,5%. Með tilliti til þeirrar fjölgunar sem orðið hefur á síðustu árum er hér ekki um stórfelldan samdrátt að ræða. Ætlunin er að veita þróun í þessum efnum nauðsynlegt aðhald og stuðla að því að bætt skipulag og aukin tækni leiði til framleiðniaukningar sem komi veittri þjónustu til góða og dragi úr kostnaði. Með núverandi launabókhaldi ríkisins eru öll tök á að fylgjast mjög nákvæmlega með framvindu vinnuaflsnotkunar í hverri einstakri

stofnun og einstöku ráðuneyti. Á næstunni verða skipulagðar vinnuaðferðir og verklagsreglur í samvinnu við fagráðuneytin í þeim tilgangi að tryggt verði að þau markmið sem fjárlagafrv. setur megi nást. Einnig eru miklar vonir bundnar við samvinnu fjmrn., fjvn. og Ríkisendurskoðunar á þessu sviði.
    Á vegum ríkisins starfa nokkrar þjónustustofnanir sem gert er ráð fyrir að afli tekna fyrir kostnaði með sölu á þjónustu sinni. Hingað til hefur ekki verið tekið tillit til alls kostnaðar. Stærsti liður þess sem litið hefur verið fram hjá er án efa þær skuldbindingar sem lenda á ríkissjóði vegna lífeyrismála. Vegna verðtryggingar sem ríkissjóður ábyrgist hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins má reikna með að raunverulegur launakostnaður sé a.m.k. 15% hærri en sá kostnaður sem bókfærður hefur verið hjá einstökum stofnunum ár hvert. Enn fremur starfa sumar af þessum stofnunum í húsnæði sem lagt er til án endurgjalds og án leigugreiðslna. Fleiri kostnaðarþætti mætti tína til. Með hliðsjón af þessum atriðum er í fjárlagafrv. nú farið út á þá braut að þessar stofnanir afli sér tekna sem eru hærri en bókfærður kostnaður sem nemur 20% af launum. Tekur þetta til nokkurra stofnana í þessu frv. og stefnt er að því að framvegis nái það til fleiri stofnana.
    Í frv. er gert ráð fyrir að starfsemi ýmissa stofnana og einstök verkefni á vegum annarra verði tekin til sérstakrar athugunar með tilliti til hagræðingar. Kemur til álita að leggja einhverja starfsemi niður og hagræða annarri, m.a. með því að fela öðrum aðilum en nú er framkvæmdina. Sem dæmi um þetta má nefna skipaútgerð á vegum Landhelgisgæslu og vitaþjónustu á vegum Vitastofnunar. Enn fremur Skipaútgerð ríkisins, löggæslu og tollgæslu á
Keflavíkurflugvelli og starfsemi Sölu varnarliðseigna. Í öllum þessum tilvikum og einnig fleiri er ætlað að ná megi verulegum sparnaði án þess að lögð sé niður nauðsynleg þjónusta og er þá miðað við að staðið sé við þær skuldbindingar sem á viðkomandi starfsemi hvíla.
    Á síðasta Alþingi voru samþykkt ný lög um framhaldsskóla. Samkvæmt þeim lögum skyldi rekstrarkostnaður framhaldsskóla falla að fullu á ríkissjóð frá næstkomandi áramótum. Breyting þessi var gerð án þess að gera ráðstafanir í öðrum fjármálalegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga þrátt fyrir að hér sé um að ræða eitt þeirra atriða sem lengi hefur verið fjallað um á þeim vettvangi og vænta má að brátt verði þar til lykta leitt. Af þessum sökum m.a. hefur verið ákveðið að fjármálakafli laga um framhaldsskóla komi ekki til framkvæmda á næsta ári.
    Af einstökum aðgerðum til lækkunar á útgjöldum skal hér að lokum minnst á fyrirhugaðan sparnað í heilbrigðiskerfinu. Í frv. er gert ráð fyrir að lyfjakostnaður verði lækkaður verulega með breyttum reglum um lyfjanotkun, lyfjasölu og verðákvörðun á lyfjum. Enn fremur er gert ráð fyrir að lækka megi kostnað vegna þjónustu sérfræðilækna, annars vegar með því að taka upp að nýju svokallað tilvísunarkerfi og hins vegar með breyttum samningsákvæðum og

bættu skipulagi. Þá er gert ráð fyrir að kostnað við rannsóknarstofur megi lækka verulega með því að rekstur þeirra sé í meira mæli á vegum sjúkrahúsa en verið hefur.
    Þær áformuðu aðgerðir sem lýst hefur verið hér að framan leiddu til þess að útgjaldaáætlanir stofnana og ráðuneyta voru lækkaðar um nálega 1700 millj. kr. frá því sem álitið var að stefndi í án sérstakra takmarkandi ráðstafana. Framkvæmd þessara ráðstafana er veigamikil forsenda þess að fjárlagafrv. þetta nái tilætluðum árangri í efnahagslegu hlutverki næsta árs og mun fjmrn. í samvinnu við hlutaðeigandi fagráðuneyti og í samvinnu við fjvn. og Alþingi leggja allt kapp á að svo megi verða.
    Heildartekjur ríkissjóðs á næsta ári eru samkvæmt fjárlagafrv. áætlaðar rúmlega 77,3 milljarðar kr. eða tæplega 1200 millj. kr. meiri en áætluð heildarútgjöld ríkissjóðs. Þótt tekist hafi að halda útgjaldaþenslu í skefjum næst markmið ríkisstjórnarinnar um verulegan tekjuafgang á næsta ári ekki nema með því að grípa til aukinnar tekjuöflunar. Jafnframt er ljóst að vegna samdráttar í veltu innan lands munu nokkrir stórir tekjustofnar ekki skila jafnmiklu í ríkissjóð á næsta ári og í ár. Þetta tvennt kallar óhjákvæmilega á ýmsar breytingar og er í fjárlagafrv. gert ráð fyrir verulegri uppstokkun á tekjuöflunarkerfi ríkissjóðs á næsta ári.
    Hér skulum við aðeins staldra við. Það er auðvitað ljóst að skattahækkanir eru aldrei vinsælar. Jafnframt eru menn misjafnlega aflögufærir. Þess vegna er rétt að það komi mjög skýrt fram að í þessu fjárlagafrv. er lögð áhersla á að þeir aðilar, sem eiga miklar eignir og eru með háar tekjur, beri meiri hluta aukinnar skattheimtu. Auk þess er með þessum breytingum hamlað gegn innflutningi og fjárfestingu.
    Ég á von á því að í umræðum hér í dag, eins og í umræðum undanfarna daga, m.a. um stefnuræðu forsrh., muni ýmsir hv. alþm. gagnrýna þessa tekjuöflun og þær skattahækkanir sem í henni felast. Ég vil í þessu sambandi hins vegar vekja athygli á því að Ísland er í langneðsta flokki landa í Vestur-Evrópu og á Vesturlöndum hvað snertir skatta sem hluta af landsframleiðslu. Árið 1985 var þetta hlutfall í Svíþjóð 50,5%, í Hollandi 45%, í Vestur-Þýskalandi 37,8%, í Noregi 47,8%. Fleiri tölur frá fleiri löndum mætti nefna þessu til staðfestingar. Hlutfallið á Íslandi, hlutfall skatta af landsframleiðslu á árinu 1985, var hins vegar aðeins 31,4% eða u.þ.b. 10--15% lægra en í velflestum þeim löndum sem ég gat um hér áðan. Það eru aðeins lönd eins og Portúgal, Spánn og Tyrkland í Vestur-Evrópu sem eru með lægra hlutfall skatta af landsframleiðslu heldur en Ísland. Þessar tölur endurspegla auðvitað þá staðreynd að það hefði verið nauðsynlegt í góðæri undanfarinna ára að hækka þetta hlutfall sem mikilvæga aðgerð í hagstjórninni og koma þannig að stórum hluta í veg fyrir þá erfiðleika sem við stöndum frammi fyrir í dag.
    Helstu breytingar á tekjuhlið fjárlagafrv. eru eftirfarandi:
    Í fyrsta lagi. Hækkun á ýmsum óbeinum sköttum,

svo sem vörugjaldi, bensíngjaldi og innflutningsgjaldi af bílum. Auk þess að styrkja fjárhag ríkissjóðs draga þessar aðgerðir úr innflutningi og þar með úr viðskiptahalla.
    Í öðru lagi er gert ráð fyrir hækkun eignarskatta. Þyngst vegur þar hærra skattþrep fyrir þá einstaklinga sem eiga skuldlausa eign yfir ákveðnum mörkum, t.d. yfir 12 millj. kr. hjá hjónum. Auk þess komi almenn hækkun á eignarskatti einstaklinga og fyrirtækja, úr 0,95% í 1%.
    Í þriðja lagi er stefnt að margvíslegum breytingum á tekjusköttum fyrirtækja. Gert er ráð fyrir að herða ákvæði skattalaga þess efnis að tekjur í formi hlunninda, hvort sem það eru bílaafnot, úttektir á reikning fyrirtækis eða lánafyrirgreiðsla, komi til skattlagningar. Jafnframt verða heimildir fyrirtækja til þess að leggja hluta af hagnaði sínum inn á sérreikninga skertar. Loks verða afskriftareglur fyrirtækja endurskoðaðar.
    Í fjórða lagi er stefnt að breytingum á tekjusköttum einstaklinga. Fyrirhugað er að hækka skatthlutfallið en jafnframt hækka persónuafslátt þannig að skattbyrði lægri tekna breytist lítið sem ekkert. Þá hækki barnabætur sérstaklega. Einnig er til athugunar að taka upp sérstakt skattþrep á háar tekjur, en fjölmargir, bæði utan þings og innan, og minni ég þar m.a. á nýlega samþykkt þings BSRB, hafa óskað eftir því að athugun sé gerð á kostum þess og göllum að taka upp sérstakt hátekjuþrep. Ég hef þess vegna talið mér skylt að láta framkvæma þá vinnu í fjmrn. og mun kynna hana hv. Alþingi innan tíðar. Enn fremur er gert ráð fyrir skrefi í þá átt að samræma skattlagningu tekna, hvort sem þær eru laun, raunvextir, arður eða söluhagnaður.
    Í fimmta lagi er stefnt að frekari samræmingu í skattlagningu peningastofnana með því að gera veðdeildir og fjárfestingarlánasjóði tekjuskattsskyld með sama hætti og bankar eru nú. Einnig er gert ráð fyrir að orkufyrirtækin verði skattlögð með almennum hætti. Mörg þeirra hafa skilað og skila verulegum hagnaði sem byggður er á möguleikum þeirra til að nýta sameiginlegar auðlindir landsmanna allra.
    Í sjötta lagi er rétt að nefna áform ríkisstjórnarinnar um að leggja 12% söluskatt á happdrættismiða. Um þetta mál hafa orðið talsverðar umræður, en þær hafa að langmestu ef ekki öllu leyti verið byggðar á misskilningi sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Upp á síðkastið hefur sala á skrapmiðum og hvers konar getraunaseðlum farið mjög vaxandi. Á næsta ári er talið að þjóðin muni eyða u.þ.b. 4 milljörðum kr. í kaup á happdrættismiðum. Þetta er fjórum sinnum hærri fjárhæð en fer í framkvæmdir við Blönduvirkjun á næsta ári og er hún þó stærsta framkvæmd Íslands á því ári.
    Ætlunin er að sala á þessum happdrættismiðum öllum verði söluskattsskyld líkt og gildir um hvers konar sölustarfsemi. Það er hins vegar ekki verið að leggja sérstakan skatt á sjálf happdrættin, aðeins miðaverðið, og það er mjög ólíklegt að 12% söluskattur, sem er u.þ.b. 6 kr. á hvern 50 kr.

skrapmiða, verði til að draga mikið úr miðasölunni. Að gera því skóna, eins og sumir hafa gert hér úr ræðustól með dramatískum tilþrifum, að þessi skattlagning sé aðför að íþróttafólki, fötluðum og gamalmennum er málflutningur sem er algjörlega út í hött. Þvert á móti er verið að afla tekna til að auðvelda fjármögnun svo að hægt sé að standa undir þeirri miklu kostnaðaraukningu ríkisins sem óhjákvæmilega verður vegna framkvæmda á vegum happdrættisaðilanna sjálfra. Það þarf væntanlega ekki að útskýra það fyrir hv. alþm. að það stoðar lítt að reisa hús ef ekki er hægt að fjármagna hlut ríkisins í þeirri starfsemi sem á að fara fram innan hinna nýju veggja.
    Auðvitað gæti einnig komið til greina, í stað þess að leggja á slíkan lágan söluskatt, að happdrættisaðilarnir sjálfir tækju að sér að fjármagna stærri hlut í þessari starfsemi. Mér finnst hins vegar eðlilegra að fara þessa söluskattsleið. Hitt er ljóst að það verður ekki hægt að halda áfram lengi á þeirri braut að í gangi sé sjálfvirkt stórbyggingakerfi á vegum fjölmargra aðila, og nefni ég þar m.a. Háskóla Íslands þar sem ég þekki vel til, og síðan sé komið til ríkisins með sífellt stærri kröfur um fjárframlög til aukinnar starfsemi innan hinna nýju veggja.
    Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið er gert ráð fyrir að heildarútgjöld ríkissjóðs verði rúmlega 76 milljarðar kr. á næsta ári í stað um 69,5 milljarða á þessu ári. Hækkunin stafar nær eingöngu af verðbreytingum á milli ára. Þrátt fyrir viðbótarútgjöld í tengslum við efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem m.a. fólust í auknum niðurgreiðslum á vöruverði til neytenda, sérstakri hækkun á lífeyrisgreiðslum og framlagi Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina, er gert ráð fyrir að útgjöld ríkisins verði lítt breytt að raungildi á næsta ári.
    Tekjur ríkissjóðs munu hækka meira en gjöldin, enda er gert ráð fyrir, eins og ég hef áður greint, að snúa hartnær 3 milljarða kr. hallarekstri, og jafnvel stærri hallarekstri, á árinu 1988 í rúmlega 1 milljarðs kr. rekstrarafgang á árinu 1989.
    Með hliðsjón af því að tekjur ríkissjóðs á þessu ári hafa orðið miklu minni en reiknað var með er ljóst að markmið ríkisstjórnarinnar um verulegan rekstrarafgang á næsta ári felur óhjákvæmilega í sér nokkra hækkun tekna að raungildi frá áætlaðri niðurstöðu fyrir árið 1988, eða sem nemur 3 1 / 2 --4%. Hins vegar er raunhækkun tekna frá fjárlögum 1988 ekki nema 1 1 / 4 %. Mismunurinn liggur í tekjubresti ríkissjóðs á þessu ári.
    Virðulegi forseti. Áætlað er að lánveitingar ríkissjóðs muni nema 1265 millj. kr. á næsta ári, en þar af renna 915 millj. kr. til Lánasjóðs ísl. námsmanna og 350 millj. kr. til flugstöðvar í Keflavík. Að teknu tilliti til hluta- og stofnfjárframlaga, sem eru áætluð 115 millj. kr., innheimtra afborgana veittra lána, sem nema 2590 millj. kr., útstreymis á viðskiptareikningum, sem er áætlað 500 millj. kr., og 1184 millj. kr. tekjuafgangs, mun ríkissjóður greiða niður skuldir sem nemur 1,9

milljörðum kr. á næsta ári. Þar af verða erlendar skuldir greiddar niður sem nemur 1525 millj. kr. og staðan við Seðlabanka og sjóður munu batna um 844 millj. kr.
Innlendar lántökur umfram greiddar afborganir eru áætlaðar 475 millj. kr.
    Heildarlántökuþörf ríkissjóðs á árinu 1989 er áætluð 4,7 milljarðar kr. og á að afla þess fjár að öllu leyti með sölu á spariskírteinum ríkissjóðs. Afborganir af teknum lánum ríkissjóðs eru áætlaðar 6,6 milljarðar kr. Á árinu 1989 er því ráðgert að greiða niður skuldir A-hluta ríkissjóðs um tæpa 2 milljarða kr. eins og áður sagði.
    Heildargreiðslur ríkissjóðs af teknum lánum á árinu 1989 eru 13,9 milljarðar kr. eða um 18% af heildartekjum. Þar af eru vextir um 10%. Á móti nema innborganir af veittum lánum ríkissjóðs alls 5,4 milljörðum. Hrein greiðslubyrði ríkissjóðs vegna afborgana og vaxta á lánareikningum nemur því 8,5 milljörðum eða um 11% af heildartekjum á árinu 1989. Þetta hlutfall er áætlað um 9% á árinu 1988.
    Eins og oft áður ríkir óvissa um væntanleg lánskjör, bæði á innlendum og erlendum lánsfjármörkuðum á næstu missirum. Innlend lán ríkissjóðs eru flest bundin föstum vöxtum. Um 35% af erlendum lánum ríkissjóðs eru með breytilegum vöxtum og eru þau að mestu í bandaríkjadölum. Meðalvextir erlendra lána á árinu 1988 eru taldir verða um 7,7% en munu hækka í 8% á árinu 1989. Breytilegir vextir á dollaralánum sem koma til greiðslu í ár eru áætlaðir að meðaltali um 7,5% og í áætlun næsta árs er miðað við að þessir vextir verði um 8,5%. Gróft áætlað leiðir einnar prósentu lækkun breytilegra vaxta á erlendum lánsfjármarkaði til um 140 millj. kr. lækkunar á vaxtagreiðslum ríkissjóðs út á við á heilu ári.
    Gert er ráð fyrir að skuldir A-hluta ríkissjóðs til lengri tíma en eins árs nemi um 68 milljörðum kr. í árslok 1988 eða sem svarar til um 25% af vergri landsframleiðslu. Á móti kemur að útistandandi kröfur ríkissjóðs vegna veittra lána eru um 47 milljarðar þannig að hreinar skuldir ríkissjóðs eru áætlaðar um 23 milljarðar kr. í árslok 1988.
    Framlög úr ríkissjóði til fyrirtækja og sjóða í B-hluta hækka um rúmlega 600 millj. kr. eða tæplega 13% frá fjárlögum þessa árs og verða alls 5416 millj. kr. Hækkun framlaga felst í framlagi til Atvinnutryggingarsjóðs, 500 millj. kr., hækkun á framlagi til byggingarsjóðanna, 150 millj. kr., og hækkun á framlagi til Ríkisábyrgðasjóðs um 100 millj. kr. Skil í ríkissjóð frá tekjuöflunarfyrirtækjunum verða hins vegar 6239 millj. kr. samanborið við 4745 millj. kr. í fjárlögum þessa árs. Þarna er um að ræða rúmlega 31% aukningu og má rekja hana að mestu leyti til gildistöku nýrra áfengislaga í mars á næsta ári þegar heimilt verður að selja áfengt öl í verslunum ÁTVR. Skil Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins í ríkissjóð eru áætluð 5600 millj. kr. á næsta ári og þar af eru um 900 millj. kr. vegna bjórsölu. Stærsta einstaka framlagið er sem fyrr til Lánasjóðs ísl.

námsmanna. Það verður um 1617 millj. kr. og heimiluð lántaka 915 millj. kr.
    Framlög til byggingarsjóðanna verða 1800 millj. kr. og er áætlað að skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna aukist um 52% milli ára og nemi þau 9295 millj. kr. Ráðstöfunarfé til lífeyrissjóðanna eykst verulega, m.a. vegna iðgjalda af yfirvinnu. Kaup þeirra á skuldabréfum er áætlað að verði áþekk og á þessu ári hvað varðar hlutfall af ráðstöfunarfé. Af þessum sökum aukast veitt lán byggingarsjóðanna um 41% frá endurskoðaðri áætlun fyrir þetta ár og hækka því verulega að raungildi.
    Framlag í Ríkisábyrgðasjóð er byggt á áætlunum um hve mikið af kröfunum muni falla á ríkissjóð vegna ríkisábyrgða en vænta má aukinna vanskila í því harðæri sem ríkt hefur á undanförnum mánuðum.
    Framlag til Skipaútgerðar ríkisins lækkar úr 155 millj. kr. í 61 millj. kr. en mismunurinn er nú færður sem framlag í A-hluta til endurskipulagningar strandferða.
    Önnur stór framlög til B-hluta fyrirtækja og sjóða eru lítið breytt milli ára en til þeirra má telja 171 millj. kr. til Þjóðleikhúss, 138 millj. kr. til Póst- og símamálastofnunar og 233 millj. kr. til Orkusjóðs.
    Í uppsetningu B-hluta fjárlaganna er gert ráð fyrir að rekstur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar standi undir sér, þar á meðal greiðsla vaxta og afborgana. Til þess að endar næðu saman varð þó að breyta rekstraráætlun flugstöðvarinnar verulega frá upphaflegri áætlun stofnunarinnar. Hún gerði ráð fyrir um 25 millj. kr. lántöku vegna rekstrar og um 6 millj. kr. vegna afborgunar á lánum. Þessar áætlanir fólu því í sér um 11% rekstrarhalla á Flugstöð Leifs Eiríkssonar á næsta ári. Jöfnuði var náð í frv. með því að lækka rekstrargjaldaáætlun stofnunarinnar um nær 20% og gera ráð fyrir að tekjur vaxti um nær 15% umfram verðlagsbreytingar. Hins vegar er ekki séð fyrir á þessu stigi hvernig þessar áætlanir fá staðist og mun því miður að öllum líkindum verða verulegur halli á rekstri flugstöðvarinnar á næsta ári.
    Sölu varnarliðseigna er ætlað að skila 50 millj. kr. í ríkissjóð. Þessi upphæð er mikil hækkun frá því sem nú er. Fjárhæðin er hins vegar miðuð við þá lágmarksfjárhæð sem talist getur viðunandi miðað við eðlilega kostnaðarreikninga hjá þessu fyrirtæki. Náist hún ekki er óhjákvæmilegt að endurskipuleggja þessa starfsemi, ef hún á ekki að vera fjárhagsleg og
rekstrarleg byrði á ríkissjóði, og sinna þeirri þjónustu sem stofnunin á að veita með öðrum hætti.
    Í samræmi við þá útgjaldastefnu að draga úr ríkisframkvæmdum eru fjárfestingar í B-hluta fjárlaganna nær óbreyttar að krónutölu frá gildandi fjárlögum. Veigamestu fjárfestingarnar eru sem fyrr á vegum Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, Póst- og símamálastofnunar, Rafmagnsveitna ríkisins og Ríkisútvarpsins. Fjárfesting Ríkisútvarpsins er miðuð við 10 millj. kr. lægri upphæð en í gildandi fjárlögum eða 185 millj. kr. Fjárfesting Rafmagnsveitna ríkisins er lækkuð um 34 millj. kr. frá gildandi fjárlögum og verður 176 millj. kr. en mesti niðurskurðurinn felst

hins vegar í fjárfestingum hjá Pósti og síma samkvæmt frv. Þar er gert ráð fyrir að verja 204 millj. kr. til fjárfestingar á næsta ári en fjárlög þessa árs heimiluðu 577 millj. kr. til fjárfestingar. Þessi mikla lækkun hefur skiljanlega valdið nokkurri umræðu og skal hún því skýrð nánar.
    Áætlanir fyrirtækisins miðuðu við að verja rúmlega 900 millj. kr. til fjárfestingar á næsta ári eða sem samsvarar 80% af samanlagðri fjárfestingu annarra fyrirtækja í B-hluta fjárlaga. Þetta er há upphæð, ekki síst þegar beita þarf ströngu aðhaldi í ríkisrekstri og hemja útgjöld til fjárfestinga jafnt sem rekstrar. Í annan stað er rétt að rifja upp að fyrirtækið er skuldugt við ríkissjóð vegna launagreiðslna og var áætlað að skuldin yrði um 150 millj. kr. um áramót. Í þriðja lagi er stefnt að því að gjaldskrárhækkanir verði í lágmarki á næsta ári. Stjórnendur Pósts og síma hafa sagt í blaðaviðtölum að tekjur hafi verið vanáætlaðar. Reynist það rétt eru það góð tíðindi en hins vegar er alls ekki tímabært að breyta ákvörðunum um fjárfestingar fyrr en sést í reynd á næsta ári hvort þessi tekjuauki birtist á borðinu án gjaldskrárhækkana.
    Hafa ber í huga þegar fjárfestingarupphæðir eru ákveðnar ár hvert að um er að ræða ákvörðunarstærðir miklu fremur en þegar gerð er rekstraráætlun. Þegar aðstæður krefjast aðhalds og samdráttar hlýtur fjárfesting óhjákvæmilega að verða fyrir valinu svo framarlega sem ekki er um að ræða brýnustu þörf á endurnýjun vegna slits og úreldingar tækja.
    Virðulegi forseti. Heildarfjárfesting hér á landi er áætluð 47,5 milljarðar kr. á árinu 1989 sem er um 3,3% samdráttur að magni til frá í ár. Hlutfall heildarfjárfestingar er áætlað 17,2% af landsframleiðslu og hefur það ekki verið lægra á síðustu 40 árum.
    Á árinu 1989 er talið að fjárfesting atvinnuveganna dragist saman um 4%. Gert er ráð fyrir samdrætti í öllum atvinnugreinum nema samgöngum en aukningin þar stafar af flugvélakaupum Flugleiða hf. að fjárhæð um 2,9 milljarðar kr. sem eru um 6% af heildarfjárfestingunni. Mestur er samdrátturinn áætlaður í fiskiskipum eða 35%, en fjárfesting í þeim hefur verið með mesta móti á árunum 1986--1988.
    Áætlað er að framkvæmdir við íbúðarhús verði svipaðar og í ár, en fjárfesting hins opinbera er talin dragast saman um rúmlega 3% á árinu 1989, en 4,5% aukning er talin að verði í ár. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við rafvirkjanir og rafveitur aukist um 16%. Stafar það af auknum framkvæmdum Landsvirkjunar við Blönduvirkjun. Gert er ráð fyrir 8% samdrætti í samgöngumannvirkjum á næsta ári. Samdrátturinn stafar einkum af minni framkvæmdum Póst- og símamálastofnunar sem áður var vikið að. Gert er ráð fyrir að nýframkvæmdir í vegagerð aukist um 4%. Sú tala byggist þó á breyttri skiptingu vegafjár milli viðhalds og nýframkvæmda þar sem hér er reiknað með að nær öll tekjuhækkunin á milli ára fari í nýframkvæmdir en viðhald dragist saman. Breyting heildarframkvæmdanna er því mun minni. Áætlað er að framkvæmdir við byggingar hins opinbera dragist saman um 6%, en fjórðungs aukning

framkvæmda er talið að verði á þessu ári.
    Hlutdeild opinberra framkvæmda í heildarfjárfestingu landsmanna á árinu er áætluð um 29% eða hin sama og á yfirstandandi ári.
    Áætlað er að heildarlántökur opinberra aðila, opinberra lánastofnana og atvinnufyrirtækja verði tæpir 30 milljarðar kr. samanborið við 21,5 milljarða í lánsfjárlögum yfirstandandi árs. Hækkunin stafar einkum af auknum kaupum lífeyrissjóða á skuldabréfum byggingarsjóðanna og nýjum lántökum Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins, Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina, Landsvirkjunar og Framkvæmdasjóðs Íslands. Ráðgert er að afla 15,6 milljarða kr. innan lands á árinu 1989 og 14,2 milljarða með erlendum lántökum, að langstærstum hluta vegna þarfa atvinnulífs og fyrirtækja.
    Hlutdeild innlendrar fjármögnunar af heildarlántökum á lánsfjáráætlun er um 52% samanborið við 56% í lánsfjárlögum 1988. Það hlutfall verður í reynd verulega lægra eða um 42% þar sem erlendar lántökur árið 1988 fara allnokkuð fram úr forsendum lánsfjárlaga.
    Áform um innlenda lánsfjáröflun á árinu 1989 eru 3,4 milljörðum kr. hærri en gert var ráð fyrir í lánsfjárlögum 1988 eða sem nemur 28%. Að teknu tilliti til verðbreytinga er aukningin á milli ára um 14%. Mest er hækkunin í umsömdum kaupum lífeyrissjóðanna á skuldabréfum frá byggingarsjóðunum eða um
52%. Samkvæmt áætlunum Seðlabankans verður ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna árið 1989 tæpir 17 milljarðar kr. samanborið við 12,7 milljarða á árinu 1988. Aukningin á milli ára skýrist einkum af vaxandi hlutdeild verðtryggingar í eignum sjóðanna, hækkandi raunvöxtum og breiðari iðgjaldastofni.
    Á grundvelli samkomulags um kaup lífeyrissjóða á skuldabréfum Húsnæðisstofnunar ríkisins og fenginnar reynslu er reiknað með að lífeyrissjóðirnir verji um 55% af ráðstöfunarfé sínu, eða 9,3 milljörðum kr., til kaupa á skuldabréfum húsbyggingarsjóðanna á árinu 1989. Óráðstafaður hluti lífeyrissjóðafjár er því áætlaður um 7,6 milljarðar kr.
    Óumsamin innlend lánsfjáröflun á árinu 1989 nemur 6,3 milljörðum kr. Er það örlítið hærri fjárhæð en í lánsfjárlögum 1988. Af þeirri fjárhæð er stærstur hlutinn áformuð sala á spariskírteinum ríkissjóðs eða 4,7 milljarðar. Sölu spariskírteina verður ávallt að skoða í samhengi við áætlaða innlausn eldri skírteina en mikið af því fé skilar sér aftur í nýjum bréfum. Innlausn eldri skírteina er áætluð 4,1 milljarður kr. á árinu 1989 og nemur hrein fjárþörf ríkissjóðs af sölu spariskírteina því einungis 600 millj. kr. samanborið við 1460 millj. kr. á árinu 1988.
    Þessi mikla lækkun á hreinni fjárþörf ríkissjóðs af sölu spariskírteina endurspeglar mikla lækkun á heildarlánsfjárþörf ríkissjóðs og á að stuðla að lækkun vaxta. Leitað verður áframhaldandi samninga við banka, sparisjóði og verðbréfasjóði um fyrirkomulag á sölu spariskírteina á árinu 1989.

    Önnur óumsamin lánsfjáröflun á innlendum fjármagnsmarkaði á árinu 1989 nemur 1,5 milljörðum kr. samanborið við 3 milljarða kr. í lánsfjárlögum 1988. Ekki er sett fram nákvæm áætlun um hvaðan eigi að afla þessa fjármagns en benda má m.a. á verulega aukið og óbundið ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna.
    Í lánsfjáráætlun 1988 voru erlendar lántökur til lengri tíma en eins árs áætlaðar um 9,3 milljarðar kr. á árinu 1988. Hins vegar stefnir í að innstreymi erlends lánsfjár verði mun meira en áformað var eða nærri því tvöfalt hærri upphæð, um 18 milljarðar kr. Að stærstum hluta skýrist munurinn af lántökum atvinnufyrirtækja með milligöngu viðskiptabanka og fjárfestingarlánasjóða sem urðu verulega meiri en áætlað var. Þá hefur meðalgengi gjaldmiðla breyst um 22% innan ársins en í lánsfjárætlun var gert ráð fyrir óbreyttu gengi.
    Loks er áformuð lántaka ríkissjóðs að fjárhæð 3400 millj. kr. til að fjármagna greiðsluhalla á árinu 1988 og skammtímaskuldir við Seðlabanka Íslands frá fyrra ári. Afborganir af löngum lánum eru taldar verða 6,9 milljarðar kr. og hreint innstreymi erlends fjármagns verður því um 11,1 milljarður. Er það um 4,4% af áætlaðri landsframleiðslu 1988.
    Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1989 gerir ráð fyrir að halli á viðskiptum við útlönd verði 12,4 milljarðar kr. eða um 4,5% af áætlaðri landsframleiðslu 1989. Í ár er reiknað með að viðskiptahallinn verði 11,6 milljarðar eða um 4,6% af landsframleiðslu ársins. Erlendar lántökur á árinu 1989 eru áætlaðar 14,2 milljarðar kr. og afborganir af löngum lánum 7,9 milljarðar. Talið er að aðrar fjármagnshreyfingar verði jákvæðar um 3,3 milljarða þannig að innstreymi erlends fjár er áætlað 9,6 milljarðar kr. Því vantar um 2,8 milljarða kr. upp á fjármögnun viðskiptahallans á árinu 1989 og versnar því gjaldeyrisstaðan sem því nemur. Í þessu sambandi er rétt að geta þess að útlit er fyrir að gjaldeyrisstaðan batni um 2 milljarða kr. á árinu 1988 vegna mikilla erlendra lántaka og því borð fyrir báru hvaða hana varðar.
    Erlendar skuldir Íslendinga til langs tíma eru taldar aukast um 12% á árinu 1988. Á sama tíma dregst landsframleiðslan saman um 1%. Þrátt fyrir þetta hækkar hlutfall langra erlendra lána af landsframleiðslu aðeins um 1,5% eða úr 40,6% 1987 í 42,1% á árinu 1988. Lítil hækkun hlutfallsins á milli ára skýrist af hækkandi raungengi íslensku krónunnar á yfirstandandi ári. Forsendur lánsfjáráætlunar 1989 gera ráð fyrir 7% hækkun á meðalgengi erlendra gjaldmiðla og 5,3% aukningu erlendra lána. Skuldahlutfallið í árslok 1989 er áætlað 44% af vergri landsframleiðslu ársins. Er þar tekið tillit til 1,6% samdráttar í vergri landsframleiðslu næsta árs, en á móti vegur nokkur hækkun raungildis íslensku krónunnar.
    Hreinar skuldir þjóðarbúsins eru taldar verða um 43,1% af vergri landsframleiðslu í árslok 1988. Forsendur áætlunarinnar fyrir árið 1989 gera ráð fyrir að þetta hlutfall hækki verulega á árinu 1989 og nemi

47,7% af vergri landsframleiðslu. Er það mun óhagstæðari þvóun en hlutfall langra erlendra lána sýndi hér að framan. Frávikið skýrist af því að löngu lánin sýna aðeins hluta af fjármögnun viðskiptahallans. Hrein staða þjóðarbúsins tekur til allra þátta til að mæta viðskiptahallanum, þ.e. langra lána, skammtímalántöku og rýrnandi gjaldeyrisstöðu.
    Áætlað er að greiðslubyrði erlendra lána verði um 16,5% útflutningstekna á árinu 1988 og aukist í 18% á árinu 1989. Greiðslubyrði erlendra lána var hæst á árinu 1984, 24,3%, en hefur lækkað síðan bæði vegna aukins útflutnings og vaxtalækkunar á erlendum lánamörkuðum. Meðalvextir erlendra lána eru áætlaðir um 7,7% á árinu 1988 og 8% á árinu 1989. Vaxtabyrði erlendra lána er áætluð um
8,6% af útflutningstekjum á árinu 1988 en um 9,7% á árinu 1989.
    Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið í máli mínu ber fjárlagafrv. fyrir árið 1989 það með sér að gerð er alvarleg tilraun til að snúa við á þeirri braut skuldasöfnunar og hallareksturs sem ríkisfjármálin hafa verið á undanfarin ár. Útgjaldahlið frv. felur í sér viðleitni til þess að stöðva útgjaldaþenslu ríkisins án þess þó að skerða margvíslega þjónustu á sviði velferðarmála, menningarstarfsemi, félagsmála og umhverfisverndar. Hin óhjákvæmilega aukna tekjuöflun er byggð á því að þeir sem mestar hafa tekjur og eignir beri stærstan hlut þeirra byrða sem óhjákvæmilegt er að leggja á þjóðina á þeim erfiðleikatímum sem fram undan eru.
    Það er mikilvægt fyrir íslensku þjóðina að sú meginstefna sem felst í þessu fjárlagafrv. nái fram að ganga. Frv. sjálft er hins vegar eingöngu upphafið á langri leið. Alþingi og þá sérstaklega fjvn. gegna mikilvægu hlutverki við að þróa áfram þá grundvallarstefnu sem hér hefur verið gerð grein fyrir og tryggja framkvæmd hennar á næsta ári. Ég vil nota þetta tækifæri til að lýsa eindregnum og einlægum vilja mínum til náins samstarfs við þingheim allan og fjvn. sérstaklega til að tryggja að við náum öll sameiginlegum árangri á þessu sviði.
    Á vettvangi atvinnulífsins er óhjákvæmilegt að fjöldi fyrirtækja þurfi á næstunni að taka erfiðar ákvarðanir. Heimilin í landinu munu einnig þurfa að laga sig að breyttum skilyrðum og sú aðlögun kann ýmsum að verða sársaukafull. Það er þess vegna mjög brýnt að Alþingi allt og ríkisstjórn sýni í reynd gott fordæmi. Verk okkar þurfa að endurspegla að við skjótum okkur ekki undan erfiðum ákvörðunum. Við verðum öll, Alþingi og þjóðin í heild, að horfa af fullri ábyrgð framan í þau vandamál sem við er að stríða í efnahagslífinu og í fjármálum ríkisins.
    Á næstunni er brýnt að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að geta fylgst með frá einum mánuði til annars hver framvindan verður í framkvæmd þess fjárlagafrv. sem samþykkt verður hér á Alþingi. Í þeim efnum ítreka ég óskir mínar um gott og náið samstarf við fjvn., Ríkisendurskoðun og Alþingi allt.
    Virðulegi forseti. Íslensk þjóð stendur nú á

tímamótum. Berum við gæfu til að snúa við óheillaþróun undanfarinna ára? Höfum við áræði og kraft til að takast á við erfið verkefni og hrinda í framkvæmd óþægilegum og sársaukafullum ákvörðunum?
    Fjárlagafrv. fyrir árið 1989 felur í sér tilraun til að svara þeim spurningum. Í því felst alvarleg viðleitni til þess að tryggja íslenskri þjóð á næstu árum betri lífskjör og traustari efnahag.
    Virðulegi forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjvn.