Fjárlög 1989
Fimmtudaginn 10. nóvember 1988

     Óli Þ. Guðbjartsson:
    Hæstv. forseti. Hæstv. fjmrh. hefur flutt sína fyrstu fjárlagaræðu, sem er um leið stefnumörkun nýrrar hæstv. ríkisstjórnar. Venja er að frv. til fjárlaga sé fyrsta þingskjal á hverju þingi og sýnir það í sjálfu sér mikilvægi þessa máls, og auðvitað yfirskyggir fjárlagaafgreiðslan flesta aðra vinnu á fyrri hluta hvers venjulegs þings.
    Að þessu sinni er málum varið á annan veg en vant er. Frv. til fjárlaga 1989 er flutt á þskj. 75 og er 73. mál í Sþ. Skýringin er vitaskuld sú að núv. hæstv. ríkisstjórn settist að völdum aðeins fáum dögum fyrir þingbyrjun og því ekki óeðlilegt að hún þyrfti aukinn tíma til jafnviðamikilla ákvarðana og hér hljóta að liggja að baki til þess að koma frv. til fjárlaga fram með þeim hætti að sæmilegt lag væri á. Nú hefur það tekist, án þess að ég ætli hér í byrjun máls míns að kveða upp dóm um hvort eða hversu sæmilega eða ekki hafi til tekist. Ég kem e.t.v. að því síðar í máli mínu.
    Þegar á það er minnst að hér er naumlegar að staðið en vant er má heldur ekki gleymast að hæstv. ríkisstjórn, sem væntanlega stendur að þessu frv. til fjárlaga, hefur að vísu aðeins eins atkvæðis meiri hluta hér í Sþ. sem gæti þó tryggt framgang þess ef öllu væri til skila haldið. Hins vegar hefur hæstv. ríkisstjórn ekki nægan þingstyrk í Nd. Alþingis til þess að fylgja fram óhjákvæmilegum ákvörðunum sem fylgja mundu samþykkt á tekjuhlið fjárlagafrv. Það er e.t.v. þess vegna sem svo mjög frómar óskir komu fram um einstakt og mjög náið samstarf við allan þingheim, í fjvn. og víðar í máli hæstv. fjmrh. og sem voru síðan endurteknar í máli varaformanns fjvn., hv. 1. þm. Vesturl. Þar er því sýnilega teflt á tæpt vað og því með öllu óvíst hvernig til muni takast.
    Fyrstu spurnir úr stjórnarherbúðunum benda ekki til þess að jafnvel hinn naumi þingmeirihluti muni skila sér til fylgis við þá fjáröflun eða öllu heldur fjáröflunarleiðir sem hæstv. fjmrh. hafði boðað og kynnt í fjölmiðlum fyrir nokkru. Því er þegar sýnt að flest virðist nú vera hér á hverfanda hveli, jafnvel svo að hæstv. forsrh. neitar t.d. að um hafi verið samið að leggja á 12% íþrótta- og öryrkjaskatt sem hæstv. fjmrh. segir hins vegar frágengið mál og eina af forsendum frv., og hann endurtók það ríkulega og lagði áherslu á það í ræðu sinni hér fyrr í dag.
    Það á sýnilega ekki af okkur Íslendingum að ganga um samlyndið á stjórnarskútunni því hér eru það engir léttadrengir sem tala heldur sjálfir höfðingjarnir í hólnum. Hér er ekki einungis um að ræða karp milli tveggja einstaklinga sem öðrum kemur lítið eða ekki við. Hér er hins vegar verið að fjalla um og taka afstöðu til mála sem snerta hvern einasta borgara í landinu með einum eða öðrum hætti.
    Frv. til fjárlaga ríkisins 1989, frv. til lánsfjárlaga, sem að vísu hefur ekki formlega verið lagt fram enn en er þó væntanlega ákveðinn grunnur mikillar vinnu sem í fjárlagafrv. liggur, og seinast en ekki síst þjóðhagsáætlun 1989, sem lögð var fram af hæstv. forsrh. hinn 1. nóv. sl., eru allt saman mál sem snerta

grundvallarþætti þjóðarbúskaparins. Öll þessi frv. og lagasetningin sem af þeim leiðir eru hagstjórnartæki í starfsáætlun sem ríkisstjórn hlýtur að beita til þess að reka ríkiskerfið í heild sinni. Einnig er hér um að ræða tæki sem hafa munu ómæld áhrif á aðra þætti þjóðarhags okkar, svo sem verðlag, vexti, neyslu, tekjuskiptingu í þjóðfélaginu og þar með ráðstöfunartekjur almennings og atvinnuvega.
    Ekki færri en 29 töflur fylgja frv. að venju um hina ýmsu þætti fjárlagagerðarinnar og gefa þær yfirleitt allar býsna margbreytilegan fróðleik um þessi efni, um A- og B-hluta ríkissjóðs, um fjárfestingu í landinu, um fjármögnun, fjárfestingarlánasjóði, lífeyrissjóði, erlend lán og greiðslujöfnuð. Ekki verður undan því kvartað að þessi sundurgreining öll er hin greinarbesta og að auki fylgir eins konar syndakvittun allra ráðuneyta um útgefnar fjárheimildir frá 1. jan. til 30. sept. 1988, 93 að tölu og að upphæð 511 millj. 349 þús. kr. og kennir þar ýmissa grasa.
    Þegar athugaðar eru helstu hreyfingar á milli ára í þessu frv. til fjárlaga 1989 er nauðsynlegt við slíkan samanburð að hafa ætíð í huga breytingar helstu vísitalna í prósentum frá meðaltali ársins 1987 til meðaltals ársins 1989 samkvæmt forsendum frv. Þannig hækkar framfærsluvísitalan frá árinu 1987 til 1988 um 25,5% en ætluð hækkun framfærsluvísitölunnar til meðaltals á næsta ári er hins vegar 12%. Hækkun lánskjaravísitölunnar frá 1987 til 1988 var þannig 23,5% en er nú áætluð til hækkunar um 13% til meðaltals næsta árs.
    Með þessa þróun í huga er athyglisvert að athuga þróun á ráðstöfunartekjum heimilanna. Þær voru taldar hækka um 24% frá 1987 til 1988 en eru nú hins vegar einungis taldar munu hækka um 5% til meðaltals á næsta ári. Í þessum samanburði felst í hnotskurn mikill sannleikur um fjárlagafrv. og stefnuna sem í því felst. Á meðan allur tilkostnaður hækkar um 12--13% eiga ráðstöfunartekjur einungis að hækka um 5%. Um þetta geta menn lesið sér nánar til á töflu 9 í töfluauka frv. á bls. 355. Taflan sú arna lætur að vísu ekki
mikið yfir sér, en hætt er við að það sem að baki býr sé hins vegar ýmsum bitur sannleikur. Ef tekjuhlið frv. er athuguð nánar eru heildartekjur áætlaðar 76,1 milljarður kr. Það er 22,5% hækkun frá fjárlögum 1988, en þá voru heildartekjur áætlaðar 63 milljarðar. Áætluð útkoma ársins er hins vegar 66 milljarðar 486 millj. kr. Því er hækkun frv. um 16% frá þeirri viðmiðun og höfum í þeim samanburði hugfasta 5% hækkun ráðstöfunarteknanna og 12% hækkun framfærsluvísitölunnar.
    Nokkra athygli vekur í þessu sambandi að hækkun beinna skatta vegur snöggtum þyngra en óbeinna. Hækkun þeirra er um 70% frá fjárlögunum 1988 til þessa frv. á móti 24% hækkun óbeinna skatta við sömu viðmiðun.
    Við samanburð á gjaldahlið fjárlagafrv. við fjárlög 1988 og áætlaða raunútkomu þeirra kemur þetta í ljós: Niðurstöðutala frv. er 76,1 milljarður kr. miðað við 63 milljarða á fjárlögum 1988, eða hækkun sem nemur

20,7%. Áætluð útkoma ársins 1988 á gjaldahlið A-hluta ríkissjóðs er hins vegar 69,5 milljarðar og er hækkunin frá þeirri viðmiðun um 9,6%. Eflaust eru mönnum í fersku minni helstu einkenni fjárlaganna fyrir 1988 frá því sem áður hafði verið en þá hækkuðu skattar um 46,6% frá fjárlögunum 1987 og annálsvert var að fjárlög 1988 voru afgreidd án halla og nánast í jöfnuði. Nú liggur niðurstaðan um hvernig takist að ná því markmiði nánast fyrir. Eins og fram kemur í forsendum frv. 1989 er fjárlagahallinn 1988 ekki á núlli eða þar um bil, eins og menn reiknuðu með, heldur segir í þessum forsendum að fjárlagahallinn sé 2 milljarðar 981 millj. kr. Hæstv. fjmrh. gat þess ríkulega á fundi með heildsölum og fleiri valinkunnum mönnum í gær að sönnu væri nær að fjárlagahallinn mundi nálgast 4 milljarða, og þetta tók hann einnig fram hér í ræðu sinni áðan. Hallinn yrði því 4 milljörðum kr. frá því markmiði sem að var stefnt með fjárlögum ársins 1988.
    Hvers vegna ætli svo hörmulega og raunar sorglega hafi til tekist? Ekki skorti fyrrv. hæstv. ríkisstjórn þingmeirihluta, eins og núverandi hæstv. ríkisstjórn skortir í rauninni til þess að koma áformum sínum fram. Öðru var nú nær. Ég tel að fjögur meginatriði hafi valdið því hvernig til tókst.
    Í fyrsta lagi gengisfellingarnar þrjár og e.t.v. hve seint var gripið til hverrar um sig og nánast alveg án bráðnauðsynlegra hliðarráðstafana. Við afgreiðslu fjárlaganna í fyrra gagnrýndi Borgfl. eftir mætti að allt of lítils aðhalds gætti við rekstur ýmissa þátta ríkiskerfisins, svo sem ráðuneytanna sem eins og menn e.t.v. muna hækkuðu eigin framlög nánast til sjálfra sín svona frá 30% upp í, að því er mig minnir, 109% sem hæst var frá árinu á undan. Þegar verðlagsforsendurnar voru hins vegar aðeins 17--18% tóku þessir aðilar í sinn hlut 30--100% hækkun. Það var ekki samdráttar- eða aðhaldshljóð í þann tíð.
    Þegar líða tók á árið brast nánst innheimta söluskattsins, eins og hæstv. fjmrh. lagði hér verulega áherslu á í máli sínu fyrr í dag, svo að þar skorti víst um 3 milljarða um skeið, og jafnvel er talið að sú tala muni hækka undir árslokin. Þó að ýmsu sé þar um kennt, eins og einnig kom fram í máli hæstv. fjmrh., forðast menn --- og ég tek eftir því að það á við bæði menn úr röðum stjórnarandstæðinga og stjórnarsinna --- að minnast á eina meginástæðuna sem ég tel að þarna liggi að baki og er sú að skattprósentan sem þarna er um að ræða er allt of há og er þar af leiðandi mun fýsilegri kostur til undanskots en ella væri.
    Meginniðurstaðan af þessu ári, 1988, miðað við fjárlögin í fyrra er einmitt sú að hið eina söluskattsstig með þessari háu söluskattsprósentu hefur gersamlega mistekist í innheimtu. Og það er rangt af núv. valdhöfum og það væri rangt af núv. hv. Alþingi að taka ekki tillit til þessara staðreynda um stefnubreytingu í næstu framtíð.
    En fjórða og e.t.v. afdrifaríkasta ástæðan fyrir því hvernig til tókst um stjórn ríkisfjármálanna á Íslandi á því herrans ári 1988 er trúlega þensluhallinn sem

fólst í fjárlögunum sjálfum sem samþykkt voru hér á Alþingi í fyrra. En hvað er þá átt við með þessum þensluhalla? Megintilgangur hæstv. fyrrv. ríkisstjórnar við fjárlagagerðina í fyrra var, og er vísast enn hjá hæstv. núv. ríkisstjórn, annars vegar að stuðla að hjöðnun verðbólgu og hins vegar að minnka viðskiptahallann við útlönd og draga þannig úr skuldaaukningu erlendis a.m.k. Ef allt fjárlagadæmið, bæði A- og B-hluti, auk helstu fjárfestingarlánasjóða, er athugað í heild, miðað við fjárlögin 1988, var opinber lánsfjárþörf þá röskir 14 milljarðar kr. Þegar frá voru dregnir um 9 milljarðar vegna vaxtagreiðslna, bæði erlendis og innan lands, stóð lánsfé að upphæð um 5 milljarðar kr. eftir, auk fjárlagahallans sem nú er talið að verði um 3 milljarðar kr. eða jafnvel 4. Sem sagt 8 til 9 milljarðar í raunverulegt lánsfé. Og þá er spurningin: Fór þetta fé til framleiðniaukandi undirstöðugreina í þjóðfélaginu eða að of stórum hluta til þenslu og óarðbærrar eyðslu? Trúa mín er sú að því miður hafi hið síðara orðið raunin. Niðurstaðan með viðskiptajöfnuðinn bendir a.m.k. eindregið til þess. Um þetta leyti í fyrra, þegar hæstv. þáv. fjmrh. fékk fjárlög sín afgreidd, var gert ráð fyrir að viðskiptahallinn yrði 4,4 milljarðar kr. Niðurstaðan virðist hins
vegar ætla að verða, eins og kom fram í máli hæstv. fjmrh. áðan, nær 12 milljörðum kr., þreföldun frá markmiðinu frá því í fyrra.
    Þessi niðurstaða er vitaskuld ekkert annað en staðfesting á því að við höfum sannarlega lifað um efni fram, m.a. vegna þensluhallans sem var fólginn í fjárlögum afgreiddum fyrir árið 1988. Enda þótt nú sé gert ráð fyrir um 1 milljarði kr. í tekjuafgang á A-hluta fjárlaganna 1989 sýnist mér að ýmsar svipaðar hættur séu faldar í þessu frv. og urðu fjárlögunum 1988 að falli, einkum þegar lánsfjárþörf alls fjárlagadæmisins er athuguð. Lítum nánar á það dæmi: Lánsfjárþörf A-hluta fjárlaganna er áætluð 4,7 milljarðar sem er að vísu einungis 12% hækkun frá því í ár svo að í sjálfu sér má segja að sú breyting sé ekki út úr kortinu. Í B-hlutanum er hins vegar bætt um betur. Þar er gert ráð fyrir 9,3 milljarða kr. lánsfjárþörf vegna byggingarsjóðanna eða um 50% hækkun frá því sem er í ár. Má merkilegt heita ef sú ætlun mun ekki ýta undir verðbólguþróun og þenslu þegar fram í sækir. Ef lánsfjárþörf annarra opinberra sjóða, sem sumir kalla C-hluta ríkissjóðs, er athuguð kemur í ljós að þar er gert ráð fyrir 6,8 milljarða kr. lánsfjárþörf sem er hvorki meira né minna en 78,9% hækkun frá hliðstæðu í fjárlögunum 1988. Þegar þessi lánsfjárþörf öll í heild er saman dregin er hún 20,8 milljarðar kr. miðað við 14,2 milljarða í fjárlögunum 1988, eða 46,8% hækkun, enda er ekki áætlað að viðskiptahallinn verði röskir 4 milljarðar, eins og menn töldu um þetta leyti í fyrra að verða mundi í ár. Nei, nú er hann áætlaður á þrettánda milljarð kr., eða ekki fjarri því sem reyndin verður í ár. Mann sundlar við þá tilhugsun ef skekkjumörkin yrðu álíka í þessu dæmi að ári. Sannarlega vona ég að sú verði ekki raunin.

    Sumir álíta að vel kæmi til greina við aðstæður eins og ríkt hafa hér á landi undanfarin ár að gefa ætti lífeyrissjóðum og raunar landsmönnum öllum kost á að fjárfesta a.m.k. hluta aflafjár síns í erlendum verðbréfum og draga á þann hátt úr þenslu hér innan lands þegar þannig árar og að þar sé e.t.v. hluti þeirrar leiðar sem við verðum að feta okkur eftir við að minnka hlutfall erlendra skulda í þjóðarbúskap okkar. Ég tel að þessa leið mættu stjórnvöld gjarnan athuga nánar. Raunar kom það í ljós hér fyrr í dag að hæstv. viðskrh. hefur lýst sig nokkuð fylgjandi þeirri skoðun í svari við fsp. frá einum hv. þingmanna hér fyrr í dag.
    Hæstv. forseti. Mér hefur orðið nokkuð tíðrætt um þann þátt fjárlagafrv. sem tekur til lánsfjárþarfar. Nú vil ég taka skýrt fram að mér er vel ljós sá mikli og raunar yfirþyrmandi vandi sem þjakar atvinnulíf, ekki síst við útflutningsframleiðslu og einkum á landsbyggðinni hér á landi. Engu að síður tel ég að aldrei fremur en nú sé ástæða til að farið verði með mikilli gát og einkum að vanda vinnubrögð og kröfur til framlegðar og ekki síst sparnaðar og aðhalds í rekstri ríkiskerfisins sjálfs.
    Enn sýnist mér bregða fyrir nokkuð flausturslegum vinnubrögðum og jafnvel brydda á kjötkatlapólitík í því frv. til fjárlaga sem hér liggur fyrir. Ég nefni aðeins örfá dæmi: Hvers vegna ætli fjmrn. þurfi endilega að hækka tekjur sínar um 63%, sem er nokkurn veginn þreföld hækkun á við önnur ráðuneyti? Hver ætli sé ástæðan fyrir þessu þegar að vísu er aðeins um að ræða tiltölulega lítinn flutning mannafla sem í sjálfu sér liggur þarna að baki, en ég tel að hafi verið tiltölulega þarflaus?
    Framlag vegna Norræna verkalýðsskólans í Genf hækkar hins vegar um 248%, styrkur til dagblaðaútgáfu hækkar um 70%, en framlag vegna sjóvarnargarða lækkar hins vegar um 55% og framlag til Hallgrímskirkju þar sem er nú unnið að mjög dýrum viðgerðum lækkar um 30%. Eflaust munu gefast tækifæri til leiðréttinga á álíka atriðum og hér hefur lítillega verið minnst á í vinnu fjvn. Ég a.m.k. vænti þess að það tækifæri gefist á milli umræðna. Það er þó alltaf bót í máli að framlag til kvartananefndar, sem svo er kölluð, hækkar um 275%.
    Hæstv. forseti. Borgfl. er mótfallinn hlutfallslegri hækkun skatta og telur, eins og margoft hefur komið fram, að álagning matarskattsins hafi verið meiri háttar mistök sem leiðrétta verði við fyrsta tækifæri. Öruggt má t.d. telja að samdráttur í ferðaþjónustu, sem áður var vaxtarbroddur í atvinnulífi hér á landi og nú er staðreynd, eigi rót sína að rekja til þessa óheillaspors.
    Meginniðurstaða mín, hæstv. forseti, eftir þá athugun sem ég hef reynt að gera á þessu frv. til fjárlaga 1989, er að sömu hættumerki séu í því fólgin og voru í fjárlögunum 1988, nema að því tilskildu að mun betur takist til um aðhald og sparnað í ríkisrekstrinum sjálfum og að mun meiri aðgát verði í öflun og útdeilingu lánsfjár en hér virðist til stofnað. Ef ekki tekst betur til í þessum efnum en horfir er örvænt um meginmarkmiðin tvö, um lækkandi

verðbólgu og minni viðskiptahalla og þar með minnkandi skuldir ríkisins.