Fjárlög 1989
Fimmtudaginn 10. nóvember 1988

     Sighvatur Björgvinsson:
    Virðulegi forseti. Umræða hefur staðið lengi dags og miðað við orð hv. síðasta ræðumanns eru líkur á því að hún standi áfram lengi kvölds. Kemur mér þá í hug saga sem ég heyrði einu sinni frá því þegar haldinn var framboðsfundur í Ögri við Ísafjarðardjúp í gamla daga, fyrir daga núverandi kjördæmaskipunar, og voru þá m.a. í framboði þeir ágætu menn Sigurður Bjarnason fyrir Sjálfstfl. og Friðfinnur Ólafsson fyrir Alþfl. Luku þeir sínum framsögum og talaði Sigurður síðastur. Var síðan mælendaskrá opnuð og kvaddi sér þá hljóðs Baldur bróðir Sigurðar og talaði drjúga stund og var það ekkert óvanalegt. Þegar Baldur hafði lokið máli sínu, þá kvaddi sér hljóðs Björn bróðir Sigurðar og var það mun sjaldgæfara að það gerðist og talaði drjúgt lengi. Þegar hann hafði lokið máli sínu varð nokkur bið á því að fleiri kveddu sér hljóðs. Þá sagði Friðfinnur: ,,Heyrðu, Sigurður. Ætlar ekki mamma þín að segja eitthvað líka?`` Það er kannski eins með hv. þm. Sjálfstfl. að þeir eru allflestir búnir að tala og það væri kannski ástæða til að spyrja hv. 2. þm. Reykn., sem gegnir svona móðurhlutverki þeirra hér á þingi, hvort ekki væri nú rétt að mamman segði nokkur orð líka.
    Ég ætla að taka það fram fyrir hönd okkar alþýðuflokksmanna að við stöndum að sjálfsögðu að þessu fjárlagafrv. eins og aðrir stjórnarsinnar með þeim eðlilegu fyrirvörum sem eru um öll mál sem til Alþingis koma af hálfu ríkisstjórnar, þau verða að sjálfsögðu skoðuð í meðförum Alþingis. Sjálfsagt verður sitthvað þar sem menn við betri aðgát telja rétt að breyta kannski eitthvað. Það er ekkert óvanalegt. Þannig hafa fjárlagafrv. alltaf verið afgreidd og þannig verða þau afgreidd. Menn hafa rætt mikið um forsendur þessa frv. og sýnist sitt hverjum um það. En menn mega ekki gleyma því að í Ólafslögum er kveðið á um að fjárlagafrv. skuli byggja á forsendum þjóðhagsáætlunar. Það hefur verið gert nú þannig að fjárlagafrv. þetta er byggt á áætlun Þjóðhagsstofnunar um þjóðhagshorfur á næsta ári lögum samkvæmt. Það er ekkert sem hæstv. ríkisstjórn getur valið um eða hafnað. Þetta ber henni að gera. Þannig ber henni að leggja fjárlagafrv. sitt fram. Og eins og vaninn er má síðan að sjálfsögðu búast við því að Þjóðhagsstofnun komi á fund fjvn. fyrir 3. umr. og lokaafgreiðslu fjárlaga. Þá kemur hún væntanlega eins og vani er með nýja þjóðhagsspá og verður þá fjárlagafrv. endurskoðað eins og vani er með tilliti til þess. Hér er því ekki um neitt annað að ræða en hefðbundna og eðlilega afgreiðslu. Gagnrýni menn þjóðhagsspá Þjóðhagsstofnunar þá gefst mönnum kostur á að fá endurskoðaða áætlun áður en fjárlagafrv. verður afgreitt þannig að þær forsendur, sem hér eru lagðar til grundvallar, eru þær forsendur sem bestar finnast í dag. En eins og önnur mannanna verk geta þær forsendur breyst, og hafa oftast nær breyst í meðförum frá því að fjárlagafrv. hefur fyrst komið til kasta Alþingis þangað til það var afgreitt.
    Auðvitað verður málum ekkert öðruvísi háttað nú en jafnan áður þannig að það er ástæðulaust að hafa

hér langt mál um forsendur fjárlagafrv. Þær eru hinar sömu eins og Þjóðhagsstofnun kemst að niðurstöðu um í sinni þjóðhagsáætlun og hæstv. fjmrh. og ríkisstjórn ber lögum samkvæmt að leggja fjárlagafrv. fram miðað við þær forsendur. Menn geta síðan að sjálfsögðu deilt um það hvort þeim sýnist þessar forsendur sennilegar eða ósennilegar, en í þeim umræðum sem hér hafa farið fram hef ég ekki heyrt neinn koma fram, ekki einu sinni með hugmynd um þær forsendur t.d. í verðlags- og launamálum sem þeir mundu heldur kjósa að hafa fyrir fjárlagafrv. og telja réttlátari og sennilegri en þær sem frv. byggist á. Þannig að þó svo að menn gagnrýni þessar forsendur þá er enginn, ekki heldur hv. síðasti ræðumaður sem hér talaði, reiðubúinn að leggja fyrir þingið hvaða aðrar forsendur væru þá e.t.v. nærtækari, sem væru þá líklegri til að standast dóm reynslunnar en þær sem Þjóðhagsstofnun leggur til grundvallar í sinni þjóðhagsáætlun. Menn geta auðvitað farið mörgum orðum um það að þetta séu sennilegar eða ósennilegar forsendur en menn hafa ekki getað bætt um betur þrátt fyrir sínar löngu ræður og mikla málaskraf.
    Við höfum einnig samþykkt það og stöndum að því með hinum stjórnarflokkunum að tryggja það við fjárlagaafgreiðsluna að ríflegur rekstrarafgangur geti orðið hjá ríkissjóði á árinu 1989. Og þó svo að skiptar skoðanir kunni að vera milli stjórnarflokkanna um einstök framkvæmdaatriði nýrrar tekjuöflunar, þá er meginatriðið ljóst. Við munum afla þeirra tekna sem til þarf og að sjálfsögðu munu þau mál verða skoðuð hér í þinginu eins og önnur mál. Ég vek athygli á því að auðvitað verður að ná um það samkomulagi, ekki bara innan stjórnarinnar sem verður ekki mikið vandaverk vegna þess að við erum sammála um niðurstöðurnar og allar megináherslur í því sambandi, heldur verður einnig að fá meiri hluta Alþingis í báðum deildum til samstarfs um afgreiðslu þeirra mála. Þar reynir á í fyrsta lagi íslenskt þingræði og í öðru lagi á ábyrgð alþingismanna. Þar reynir á hvort Alþingi Íslendinga er þess megnugt að takast á við erfið og vandasöm úrlausnarefni og leysa þau. Þar reynir á hvort ábyrgð þingmanna nær lengra en til þess eins að samþykkja útgjöld, hvort ábyrgð þeirra nær þá það langt að þeir treysti sér til að
afgreiða tekjuöflun til þeirra útgjalda sem þeir eru reiðubúnir að samþykkja í fjárlagaafgreiðslu. Þetta er sjálfsagt nýtt og óvanalegt hlutverk sem bíður alþingismanna bæði í stjórn og stjórnarandstöðu því að það er ekki vanalegt að hér á Íslandi starfi ríkisstjórn sem ekki hefur öruggan meiri hluta fyrir fram í báðum deildum Alþingis, en þeim mun meira reynir á þingræði okkar Íslendinga og á ábyrgð einstakra þingmanna hvernig þeir taka á málum við þær aðstæður. Sjálfsagt mun þjóðin fylgjast vel með því hvaða afstöðu menn hafa hér á Alþingi til einstakra mála af þessum toga.
    Þrátt fyrir það sem menn kunna að segja hér úr þessum ræðustól, þá er ég sannfærður um það að þegar til kastanna kemur mun ábyrgð alþingismanna vega þyngra en ímyndaðir skammtímahagsmunir

einstakra flokka og flokksforingja. Ég hef því ekki ástæðu til að ætla það, og læt mér ekki einu sinni koma það í hug, að Alþingi sé ekki reiðubúið að takast á við að afgreiða þau erfiðu mál sem allir eru sammála um að verður að afgreiða frá Alþingi á þessum vetri með einum eða öðrum hætti, því að enginn ræðumanna hér í dag hefur t.d. haldið því fram að það sé ástæðulaust að draga saman seglin, að það sé ekki þörf á því að reyna með ábyrgum hætti að takast á við þau fjárhagsvandamál sem blasa við ríkissjóði.
    En það nægir ekki að vilji alþingismanna standi til þess að afgreiða ríkissjóð með rekstrarafgangi með afgreiðslu fjárlagafrv. Þar standa spjótin líka á ráðherrum hæstv. ríkisstjórnar, m.a. með hvaða hætti þeir eru reiðubúnir til að standa að því að leggja sínar hugmyndir fyrir Alþingi og fjvn. í þá veru að hin einstöku ráðuneyti standi við þær ákvarðanir, samþykktir og tillögur sem ráðuneytin gera um t.d. einstaka framkvæmdaþætti í fjárlagafrv. til Alþingis. Þá kemur spurningin um það hvort einstakir ráðherrar eru fremur fulltrúar ráðuneyta sinna í ríkisstjórn eða sjálfstæðir yfirmenn sinna ráðuneyta sem ætla að marka þá stefnu sem þeir hafa samþykkt í fjárlagafrv. og ætla að standa að afgreiðslu hennar jafnt á Alþingi sem í ríkisstjórn.
    Ég vek athygli hæstv. fjmrh. og þingmanna allra á því að það skiptir ekki minna máli að hæstv. ráðherrar standi í reynd við þær afgreiðslur sem þeir hafa gert tillögur um í fjárlagafrv. að Alþingi hafi á einstaka málum. Það skiptir ekki minna máli að þeir standi við sínar eigin ákvarðanir í því sambandi heldur en hitt að alþingismenn séu allir af vilja gerðir til þess að reyna að afgreiða ríkissjóð hallalausan. Það mun auðvitað koma í ljós hvort líklegt sé að á það megi treysta.
    Það eru að sjálfsögðu mörg og mjög merkileg stefnumarkandi málefni í því frv. sem hér er lagt fram. Ég ætla ekki að hafa um þau mörg orð vegna þess að mér og öðrum fjárveitinganefndarmönnum gefst kostur á að fjalla nánar um það í meðferð málsins í fjvn. Ég vil aðeins minna á tvennt. Í fyrsta lagi er stefnt að því í fjárlagafrv. að auka sjálfræði og sjálfstæði stofnana ríkisins. Það tel ég vera rétt, en vil hins vegar minna á vegna afgreiðslu Alþingis fyrir einu ári síðan að ef gera á kröfu til stjórnenda stofnana, t.d. þeirra stofnana sem í B-hluta eru, að þeir standi við þær afgreiðslur sem Alþingi ræður í fjárlögum, við afgreiðslu fjárlaga hverju sinni, ef gera á kröfu til þess að stjórnendur stofnananna virði þá niðurstöðu hvað varðar útgjaldaramma sinna stofnana, þá verður náttúrlega framkvæmdarvaldið líka að gæta þess að virða þá með sama hætti þá afgreiðslu sem Alþingi gerir á tekjustofnamálum þessara stofnana og gjaldskrármálum. Það nær náttúrlega ekki nokkurri átt ef verið er að afgreiða útgjöld B-hluta stofnana og tekjuforsendur þeirra að þeim sé breytt í miðjum klíðum hvað tekjurnar varðar, þessum stofnunum sé neitað um þær gjaldskrárhækkanir sem voru forsendur fyrir afgreiðslu Alþingis á útgjaldarömmum þeirra, þannig að það sé gersamlega ómögulegt fyrir

stjórnendur þessara stofnana að ná þeim árangri sem Alþingi hefur ákveðið. Ef gera á kröfur til stjórnenda stofnananna að þeir standi við þann útgjaldaramma sem Alþingi hefur markað verða þeir að gera kröfur til stjórnvalda um að stjórnvöld breyti ekki þeim tekjuforsendum sem eru fyrir því að við þessa útgjaldaramma verði staðið. En ég tel að í frv. sé verið að marka mjög ákveðna, afdráttarlausa og sterka stefnu um sjálfræði stofnana sem ég er fylgjandi og treysti því að Alþingi afgreiði málið í þá veru að hægt verði að halda áfram því verki sem hafið var á yfirstandandi ári í því sambandi.
    Í annan stað vil ég nefna það sem einnig er rætt um í fjárlagafrv. og í greinargerðum þess, en það er ákvörðun ríkisstjórnarinnar og vilji hæstv. fjmrh. til þess að koma upp virku launaeftirliti hjá ríkinu og stofnunum ríkisins. Það hefur komið fram að á síðasta ári hafi fjölgað hjá ríkinu og ríkisstofnunum um 334 stöðugildi umfram samþykktar heimildir. Þetta hefur raunar gerst án þess að fagráðuneyti hafi getað við ráðið og án þess að fjmrn. og launadeild hafi getað komið í veg fyrir þessa þróun og hafi getað tryggt það að staðið yrði við þær afgreiðslur, hvað varðar laun og ráðningarmál, sem Alþingi hefur gert. Til þess að hægt verði að koma í veg fyrir þessa sjálfvirku útþenslu í launamálum ríkisins verður auðvitað að koma upp virku eftirliti, í fyrsta lagi hjá þeim fagráðuneytum sem eiga að bera ábyrgð á
rekstri viðkomandi stofnana og hins vegar hjá launadeild fjmrn. og ríkisféhirði sem eiga að greiða þessi laun. Ég lýsi ánægju minni með það að hæstv. fjmrh. og ríkisstjórnin skuli hafa tekið þá ákvörðun að koma slíku eftirliti upp því að á því er ekki vanþörf.
    Það gleður mig einnig að hæstv. fjmrh. skuli hafa óskað eftir auknu samstarfi við fjvn. Alþingis og Alþingi m.a. um slík mál, um eftirlit með framkvæmd fjárlaga og um samstarf almennt á milli Alþingis og fjvn. annars vegar og framkvæmdarvaldsins og fjmrn. hins vegar og ég held að ég tali þar fyrir munn allra fjárveitinganefndarmanna, bæði minnihlutamanna og meirihlutamanna, þegar ég lýsi því yfir að við fögnum því að sjálfsögðu og erum reiðubúnir til samstarfs við hæstv. fjmrh. um slík mál.