Fjárlög 1989
Fimmtudaginn 10. nóvember 1988

     Egill Jónsson:
    Virðulegi forseti. Það hefur vissulega vakið nokkra eftirtekt, þegar fram fer 1. umr. um fjárlög nýrrar ríkisstjórnar, hversu slælega stjórnarliðið hefur sótt fundinn og sýnir það reyndar með nokkuð ótvíræðum hætti hversu lítinn áhuga það hefur fyrir fjárlagafrv., og e.t.v. fyrir þessari ríkisstjórn. Sérstaklega er það eftirtektarvert, eins og raunar hefur verið minnt á áður í umræðunni, að ráðherrar Framsfl. hafa ekki mætt til þessa fundar og reyndar einungis örfáir þm. flokksins. Stundum hefur það verið svo að ekki einn einasti þm. Framsfl. hefur verið staddur á fundinum. Þetta er ekki síst eftirtektarvert í ljósi þeirrar staðreyndar að menn hafa verið hér með frýjunarorð gagnvart stjórnarandstöðunni. Þetta kom t.d. mjög greinilega fram í ræðu formanns fjvn., hv. þm. Sighvats Björgvinssonar, sem hafði um það mörg orð að ríkisstjórnin gæti ekki mikið ein og að Alþingi hefði mikla ábyrgð, m.a. í sambandi við afgreiðslu fjárlaga. Menn yrðu að sýna þar mikla ábyrgð og ráðdeild og kallaði hann stjórnarandstöðuna mikið til þeirra verka. Það verður vissulega fróðlegt að fylgjast með því hvernig formaður fjvn. vinnur hin þýðingarmiklu störf, hve mikið samráð verður þar haft við minni hlutann í nefndinni og hversu samkvæmur hann verður sínum eigin orðum hér á þessu kvöldi.
    En þetta er þeim mun athyglisverðara þegar ljóst er hversu ríkisstjórnin er sjálfri sér sundurþykk og kannski er eitt skýrasta dæmið þar um það sem fram kom í útvarpsfréttum núna í kvöld þar sem hv. 2. þm. Austurl., sá þekkti maður Hjörleifur Guttormsson, lýsti því yfir að ef ekki linnti þeim uppákomum sem ríkisstjórnin hefði orðið fyrir á þessum degi og hinum síðustu hlyti það að valda miklum brestum í stjórnarsamstarfinu. Og það var helst svo að skilja að hér væri að vænta till. til þál. frá einhverjum þm. Alþb. og Framsfl. sem gengi mjög gegn stefnu núv. utanrrh. Ég minni sérstaklega á þetta og vek athygli á því að stjórnarliðinu er nær að tala um sína eigin þingmenn og kalla þá til ábyrgðar heldur en að hafa uppi frýjunarorð við stjórnarandstöðuna.
    Það fer nú ekki hjá því að stefna ríkisstjórnarinnar sé að skýrast. Þar um vitnar m.a. sú umræða sem fór hér fram um stefnuræðu forsrh. og það sem í þeirri ræðu var tilgreint. Á þessum degi og þessu kvöldi er verið að fjalla um fjárlög og reyndar er lánsfjáráætlunin líka kynnt í grg. fjárlagafrv. þannig að málin fara að sjálfsögðu öll að skýrast. Nú stendur einnig svo á að í Ed. hefur farið fram umræða um bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar. Henni er nýlega lokið og þar skýrðust mál líka. Ef öll þessi mál eru nú borin saman við ræður ráðherranna og yfirlýsingar við stjórnarmyndun skýtur þar sannarlega skökku við. Þó verður ekki annað sagt en að hægt sé að finna ákveðin tengsl á milli bráðabirgðalaganna og fjárlaganna og mun ég víkja sérstaklega að því hér síðar.
    Nú vildi svo til fyrir nokkrum dögum að inn á borð hjá mér barst blað þeirra framsóknarmanna í Kópavogi þar sem því var að sjálfsögðu slegið upp að

nýr forsrh. hefði tekið við og ný forusta væri komin í landið. Í blaðinu var birt stórt viðtal við forsrh. og í fyrirsögninni að þessu viðtali segir: ,,Hjól atvinnulífsins verða að snúast af krafti.`` Og í undirfyrirsögn segir, með leyfi virðulegs forseta: ,,Margt hefur verið ritað og rætt um einstaka liði fyrstu aðgerða nýju ríkisstjórnarinnar. Hver er megintilgangur aðgerðanna án þess að farið sé út í einstaka liði og hvar munum við sjá áhrif þeirra?`` er forsrh. spurður um. Og svar hans er: ,,Tilgangurinn með aðgerðunum er að fá hjól atvinnulífsins til þess að snúast með krafti.`` Boðskapur forsrh. er hvernig hjólin eigi að fara í gang og snúast af krafti.
    Nú var leitað eftir því í umræðunni um bráðabirgðalögin að fá vitneskju um það hjá ríkisstjórninni hvernig þessi gangsetning ætti að fara fram. Það helsta sem var hægt að greina í þeim efnum var að raungengi íslensku krónunnar yrði að lækka um 15% án þess að til gengisfellingar kæmi. Og þegar á það er litið að laun í landinu eru um tveir þriðju hlutar af heildartekjum liggur ljóst fyrir að ef launin eiga einungis að bera sinn hlut af verðlækkuninni í landinu þurfa þau að lækka um 10%. Þetta er í rauninni nákvæmlega það sama og fram kemur í fjárlagafrv. og þetta er eina tilvikið þar sem ég hef orðið þess var að skýrt samband væri á milli bráðabirgðalaganna og fjárlagafrv. Í fjárlagafrv. er gert ráð fyrir að raunlækkun á launum verði um 10--15%, í rauninni nettó, en á móti gætu í mesta lagi komið 2--3% launahækkanir. Þetta stenst því á. Það er því er alveg ljóst mál hvernig ríkisstjórnin ætlar að koma hjólunum í gang. Það er með því að lækka launin og halda verðlaginu þannig niðri. Og væntanlega er öllum ljóst til hvers það leiðir að því er varðar atvinnulífið í landinu.
    Hér hafa verið skýrðar með greinilegum rökum aðalforsendur fjárlagagerðarinnar og við hvað fjárlagafrv. er sérstaklega miðað. Eins og reyndar hefur komið fram áður er gert ráð fyrir því að verðlagshækkun innan lands verði 12%, erlendar verðhækkanir 7% og launabreytingar um 8%. Á þessu byggir fjárlagafrv. Og þegar litið er á þau launamarkmið sem fjárlagafrv. byggir á, þ.e. 10% kjaraskerðing í landinu, og hvaða viðbrögð þau markmið hafa fengið hjá forustusveit verkalýðsins og launþeganna er það að sjálfsögðu alveg
ljóst á hve miklum brauðfótum fjárlagafrv. stendur.
    Það vekur líka eftirtekt í þessari umræðu hvernig menn tala um nauðsyn á skattahækkunum og þó öllu frekar hvernig þær eru sérstaklega forsvaraðar. Á fjmrh. er helst svo að skilja að skattarnir eigi allir að koma úr Arnarnesinu. Þar er viðmiðunin. Þess vegna er fróðlegt að íhuga hvernig þessir póstar eru í fjárlögunum. Ég hygg að það hafi villt nokkuð um fyrir mönnum sem hafa farið yfir frv. að þeir hafa fyrst og fremst virt fyrir sér prósentutölur. Ef menn skipta nú þessari skattahækkun á aðalpóstana, þá er hún með þessum hætti:
    Eignarskattar eru áætlaðir munu hækka um u.þ.b. 860 millj. kr., tekjuskattur um 2 milljarða 650 millj.

kr., söluskattur um mjög svipaða upphæð, eða 2 milljarða 600 millj. kr., og gjöld af innflutningi um rúmlega 2,6 milljarða kr. Þetta gerir tæplega 9 milljarða kr. af þeirri 10,8 milljarða kr. skattahækkun sem um er að ræða. Því er fróðlegt að íhuga að langstærsti hlutinn af þessari skattheimtu er óbeinu skattarnir, skattarnir sem ganga inn í neysluna og fólkið í landinu borgar án tillits til þess hver efnahagur þess er. Beinu skattarnir hækka þannig um u.þ.b. 3,5 milljarða kr. en óbeinu skattarnir um rúmlega helmingi hærri tölu, eða um 7,3 milljarða kr., ef trúa má því sem fram kemur í fjárlagafrv. Það er afar eftirtektarvert að á sama tíma og ríkisstjórnin er með þá áætlun uppi að laun í landinu lækki um 10% á fjárlagaárinu verði óbeinir skattar hækkaðir helmingi meira en beinu skattarnir, þótt hlutfallið í prósenttölum breytist.
    Það er svo annað mál að að sjálfsögðu er mikil óvissa með þessa skattheimtu alla saman og af þeirri ástæðu var m.a. afar fróðlegt að hlusta á mál formanns fjvn. sem var m.a. að tala mikið fyrir skattahækkunum í landinu og hafði reyndar uppi um það þau orð líka að það væri furðulegt að þingmenn hér í þessari almennu umræðu kæmu ekki með skýrari vitnisburð um aðstæður í þessum málum en Þjóðhagsstofnun hefði tök á. Það er hins vegar afar eftirtektarvert að fylgjast með því hvernig spár hafa gengið manna á milli í þjóðfélaginu. Ég skal nefna um það eitt dæmi: Það er gert ráð fyrir því í forsendum fjárlagafrv. að innflutningur á bifreiðum verði álíka mikill á næsta ári og á þessu ári, eða um 13--14 þús. bifreiða. Þessi innflutningur hefur minnkað mjög á síðustu mánuðum þessa árs. Þeir sem hins vegar annast þennan innflutning gera ráð fyrir því að tala innfluttra bifreiða verði um 6--7 þúsundir. Og með því að hér er gert ráð fyrir því í forsendum fjárlagafrv. að innflutningsgjöld af bifreiðum muni nema 1,2 milljörðum kr. má ætla, með tilliti til þess hvað innflytjendur áætla í þessum efnum, að sú tala sé ofmetin um 600 millj. kr., ein út af fyrir sig.
    Það er reyndar margt annað sem veldur mikilli óvissu eins og hefur komið hér fram í umræðunni á þessum degi, og þá ekki síst að því er varðar söluskattinn. Bensíngjald er reyndar ríflega áætlað líka, mætti kannski frekar búast við samdrætti á þeim pósti enn fremur, þrátt fyrir það að um 500 millj. kr. af skattstofni vegafjár verði nú tekið yfir í ríkissjóð ef farið verður að tillögum hæstv. fjmrh. Það verður vissulega fróðlegt að fylgjast með því hér á Alþingi hvað hinir hugprúðu vegagerðarmenn, ekki síst í Alþb., sem hafa verið með mikil svigurmæli á undanförnum árum um sviksemi í vegamálum, hafa til málanna að leggja í þessum efnum.
    Það sem skiptir þó kannski meginmáli er sú mikla óvissa sem er um stuðning við þessi skattaáform ríkisstjórnarinnar. Það er reyndar gífurlega mikið mál, eitt út af fyrir sig, að hér skuli vera lagt fram fjárlagafrv. sem byggir á margháttaðri annarri löggjöf sem þarf að setja hér á Alþingi í framhaldi af fjárlagafrv. þegar fyrir liggur að ríkisstjórnin hefur

ekki til þess þingstyrk. Það er býsna mikið alvörumál og sýnir kannski enn einu sinni hversu mikla virðingu ríkisstjórnin ber fyrir Alþingi og íslenska lýðveldinu þegar hér er haldið áfram með lagagerð, ekki ómerkari en fjárlögin sjálf, sem byggir á margháttuðum öðrum ákvörðunum í framhaldi af fjárlagafrv. sem þarf að styðjast við meiri hluta í báðum deildum. Það vekur vissulega undrun að ekki skuli koma fram áhyggjur um það hér við þessa umræðu nema frá formanni fjvn. Hann er þó líklega blessanlega laus við það að þurfa að koma þeim málum í gegnum nefndir og í gegnum umræðu hér á Alþingi.
    Það hefur verið mikið talað um það, og þá sérstaklega af hæstv. fjmrh., hve myndarlega væri tekið til við niðurskurð á ríkisútgjöldum og á það lögð alveg sérstök áhersla að nú ættu að renna upp miklir tímar sparnaðar og ráðdeildar í þessu þjóðfélagi. Það skyldi þó ekki vera að hér hefði heyrst eitthvað líkur boðskapur áður, kannski við sama tækifæri fyrir einu ári síðan. Sá hæstv. ráðherra sem nú gegnir embætti utanrrh. hafði orð á því hér á dögunum að það hefði orðið honum mikill skóli að vera fjmrh. þann tíma sem hann gegndi því starfi. Það er sjálfsagt rétt að það hafi verið honum mikill skóli, en það var hins vegar dýr skóli fyrir íslensku þjóðina vegna þess að nemandinn brást. Og það má þakka fyrir að ekki sé að hefjast ný skólaganga sem muni fara eitthvað líkt.
    Eins og ég sagði hefur verið býsna mikið um það talað að það ætti að auka ráðdeild og bæta meðferð ríkisfjár og það hefur reyndar verið einn
aðalboðskapurinn. Í þeim efnum, eins og stundum í annan tíma, hefur hæstv. forsrh. ekki verið eftirbátur annarra í yfirlýsingum þótt almennt sé hann nú talinn einn orðvarasti ráðherra norðan Alpafjalla og jafnvel þó víðar sé leitað. En það hefur nýlega komið fram í málgagni framsóknarmanna ákaflega mikilvæg yfirlýsing frá forsrh. í þessum efnum. Þetta gerðist 3. nóv. og þá á forsíðu Tímans. Þar er yfirskriftin: ,,Steingrímur Hermannsson um fjárlög og efnahagsástand í viðtali við Tímann í gær.`` Síðan kemur hér fram í undirfyrirsögn, með leyfi forseta: ,,Steingrímur Hermannsson forsrh. sagði í viðtali við Tímann í gær að hann væri ánægður með fjárlagafrv. það sem lagt hefur verið fram. Hann segir niðurskurð mikinn og hafi framsóknarráðherrar gengið manna drengilegast fram í þeim aðgerðum og aðrir hefðu mátt taka sér þeirra forgöngu til fyrirmyndar.`` Hæstv. forsrh. talar sérstaklega um drengskap í þessum efnum, drengileg vinnubrögð framsóknarmanna, og drengileg vinnubrögð við niðurskurð í þeirra ráðuneytum. Og það út af fyrir sig hlýtur að vekja eftirtekt, ekki síst með tilliti til framkomu formanns Framsfl. í fyrrv. ríkisstjórn, þegar hann talar núna sérstaklega um drengskap í sambandi við niðurskurð ríkisútgjalda.
    Það er býsna eftirtektarvert að leggja ofurlítið mat á þennan drengskaparniðurskurð hæstv. forsrh. og ráðherra Framsfl. alveg sérstaklega. Ráðuneyti hæstv.

forsrh. sjálfs hækkar að meðaltali um 17%, en ef það á hins vegar að meta sérstaklega hvernig statt er á því heimili hefur forsrh. náð árangri í einum lið að því er varðar sparnað og niðurskurð og það er Byggðasjóður. Það er sá liður sem fékk að gjalda þessa sérstaka drengskapar Steingríms Hermannssonar, formanns Framsfl. Þróun mála í sjútvrn. skýrist með því að í hinum nýju húsakynnum ráðuneytisins var varið til innréttinga á sl. ári 17,1 millj. kr. Sú fjárveiting er ekki inni í fjárlagafrv. nú sem eðlilegt er vegna þess að það er búið að búa um sjútvrn. að því er þetta varðar. Það er hins vegar komin ósk til fjvn. um áframhaldandi innréttingar í sjútvrn. Það er búið að koma þeirri ósk inn bakdyramegin. Það er nú drengskapurinn á bænum þeim. Það fer reyndar ekki mikið heldur fyrir sparnaði hjá hæstv. heilbr.- og trmrh., nema þá helst ef væri á liðum sem honum tókst ekki að færa niður á þessu ári þrátt fyrir að það væri áformað við síðustu fjárlagagerð. Ég held að Framsfl. hafi fallið á þessu prófi. Ég held að það sé ekki neinn drengskapur á bak við þennan niðurskurð sem hæstv. forsrh. sjálfur gefur einkunn af þessu tagi. Og það er alveg augljóst mál að í þessum efnum eru til miklu meiri drengskaparmenn í ríkisstjórninni en ráðherrar Framsfl. Mér sýnist t.d. að sá ráðherra sem sérstaklega fer með byggðamálin, málefni hinna dreifðu byggða, sé miklu meiri drengskaparmaður en allir ráðherrar Framsfl. samanlagt, og meira að segja mikið meira en það. Ég tala nú ekki um ef farið er yfir landbúnaðarmálin í þessu fjárlagafrv.
    Það var lagt fram fjárlagafrv. af Jóni Baldvini Hannibalssyni fyrir rúmlega einu ári síðan sem fékk býsna kaldar kveðjur og miklar breytingar voru gerðar á, sérstaklega að því er varðaði málefni í íslenskum landbúnaði. En það fjárlagafrv. sem verið er að fjalla hér um í dag gengur miklu lengra fram í því að skera niður í landbúnaðarmálum en gerðist meira að segja í ráðherratíð Jóns Baldvins Hannibalssonar. Ýmsir af allra verðmætustu póstum sem landbrn. fjallar um og sem byggðir eru á landbúnaðarlöggjöfinni eru ýmist þurrkaðir út, gjörsamlega hreint, eða eyðilagðir þannig að þeir hljóta að hrökkva út á allra næstu árum. Svona mikinn drengskap hafa ráðherrar Framsfl. ekki sýnt í niðurskurði, svo að notuð séu orð hæstv. forsrh. Og ef haldið er áfram að líta betur á afgreiðslu byggðamálaráðherrans batnar ekki þegar farið er að líta á gróðurverndarmálin sem eiga að vera svo afar hugstæð núv. ríkisstjórn. Slíka meðferð fengu þau ekki einu sinni hjá Jóni Baldvin fyrir rúmu ári síðan. Þannig er landgræðslu- og gróðurverndaráætlun sem byggir á afar víðtæku samkomulagi innan Alþingis skorin niður um 50%. Það er hvorki meira né minna.
    Það vekur nokkra eftirtekt hvernig fjallað er um málefni Landgræðslunnar og Skógræktarinnar í fjárlagafrv. Þannig er sagt frá því t.d. í sambandi við Landgræðsluna að einn liður hennar hækki um 34% sem við fljótan yfirlestur mætti ætla að væri sá málaflokkur í heild sinni, en þegar dæmið er lagt saman kemur í ljós að hækkunin er ekki einu sinni á móti verðlagsforsendum. Svona hefur nú tekist vel til

að því er varðaði þessi stóru áform um að bæta landið okkar og vernda gróður þess. Þannig mætti lengur telja. Nálega allir póstar sem snerta samgöngumál, þýðingarmestu málin fyrir landsbyggðina, sem snerta landbúnaðarmál, annað en rekstur, er skorið niður. Nálega eini marktæki niðurskurðurinn sem sést er í málefnum hinna dreifðu byggða vítt um landið. Ég sakna vissulega þess að sumir þeir alþýðubandalagsmenn sem hafa á síðustu árum haft hvað hæst í þessum efnum, eins og samþingsmaður minn Hjörleifur Guttormsson, 2. þm. Austurl., skuli ekki hafa fylgst með þessari umræðu í dag.
    Það væri fróðlegt að bera saman allan þann mikla áhuga, sem hefur verið hjá Alþb. í tíð tveggja síðustu ríkisstjórna, og allar þær orðræður, sem þaðan hafa komið og hafa lýst með svo greinilegum hætti áhuga þeirra á málefnum landbúnaðarins og hinna dreifðu byggða, við það sem gerist þegar Alþb. er
einrátt í þessum málum, hefur bæði fjmrh. og svo líka fagráðherrann, bæði ráðherra samgöngumála og landbúnaðarmála.
    Nei, virðulegi forseti, niðurskurðardrengskapur hæstv. forsrh. og Framsfl., eins og hann sjálfur orðar það, er ekki stór í sniðum á móti því hvað hjartað er stórt í Alþb. um þessar mundir. Það er svo annað mál að það verður býsna fróðlegt að fylgjast með því við afgreiðslu fjárlaga, m.a. í fjvn. og síðar við afgreiðsluna á Alþingi, hvað Framsfl. ætlar að gera í þessum málum. Það er kannski óþarfi að það sé spurt um það því að svo vildi nú til að þegar var verið að mynda þessa ríkisstjórn var formaður Framsfl. spurður um það hvort ekki væri erfitt fyrir Framsfl. að ná samstöðu við Alþfl. um landbúnaðarmál. Nei, svaraði formaður Framsfl., þar er ekki um neinn ágreining að ræða. Og skilst nú þá kannski einhverjum betur það sögufræga samkomulag sem þeir formenn þingflokkanna, Framsfl. og Alþfl., hv. þm. Eiður Guðnason og Páll Pétursson, gerðu fyrir einu ári síðan en við sjálfstæðismenn hrundum við síðustu fjárlagagerð. Hins vegar fer náttúrlega ekkert hjá því að auðvitað hljóta menn að veita því mikla athygli, ekki einungis bændur landsins, og ekki einungis landsbyggðarfólk, heldur þjóðin öll, hvort bændablóðið sé með öllu hætt að renna í æðum framsóknarmanna hér á Alþingi.
    Ég má kannski aðeins minna á það í þessu sambandi að það eru aðeins örfáir dagar frá því að málgagn þeirra framsóknarmanna lét frá sér fara mikilvægan boðskap í landbúnaðarmálum. Þetta var í leiðara í Tímanum sem birtist sl. þriðjudag. Ég má til með að fara um það örfáum orðum, ekki síst vegna þess að núna við uppgjör sauðfjárafurða hefur það skeð í fyrsta sinn frá því að búvörulögin voru sett að bændur hafa ekki fengið greiðslur sem þeir eiga rétt á lögum samkvæmt. Það var reyndar góður kostur að hæstv. landbrh. svaraði fsp. minni fyrr á þessum degi einmitt um þetta efni. Það má segja að þar hafi ríkisstjórnin fallið í fyrsta sporinu sem hún þurfti að taka í sambandi við afgreiðslu mála landbúnaðarins. En í leiðara Tímans segir svo, með leyfi hæstv.

forseta:
    ,,Hins vegar slæddist eitthvað óheppilegt inn í búvörulögin. [Er þetta reyndar illskiljanlegt þó að trúlega sé þetta nú skrifað af fyrrv. menntmrh.] Fyrir ákafan þrýsting frá Sjálfstæðisflokknum var látið undan þeirri kröfu að afnema samvinnuskipulagið í sölu búfjárafurða. Framsóknarmenn gengust undir þessa óæskilegu nýskipan afurðasölunnar í trausti þess að viðeigandi afurðalánakerfi yrði sett á laggirnar í kjölfar þess að samvinnuskipulagið var lagt af og hin félagslega samábyrgð framleiðenda jöfnuð við jörðu með einni lagagrein. Það mátti hver maður sjá að þessi bylting í grónu skipulagi, sem nýkapítalistar og verslunarauðvald Sjálfstæðisflokksins knúðu fram, krafðist í senn nýs lánakerfis og nýs rekstrarforms afurðastöðva, ekki síst sláturhúsa.``
    Þá hafa menn það hverjir það voru sem réðu því að bændur fengju greiddar afurðir sínar með sama hætti og gerist í hinum almennu viðskiptum hér á landi. En því rifja ég þetta sérstaklega upp að nú er Sjálfstfl. ekkert fyrir í þessum efnum. Alþb. var á móti þessari löggjöf, Alþfl. líka, og nú liggur það fyrir að Framsfl. er samkvæmt því sem hér segir á móti því að bændur fái afurðir sínar greiddar með skilvísum hætti. Af hverju og hvað er þá til fyrirstöðu? Af hverju er þessu ekki breytt? Menn ættu að spyrja bændur landsins hvernig þeim lítist á þau mál.
    Ég hef rifjað þetta sérstaklega upp hér vegna þess að sú aðför sem farin er að landbúnaðinum í þessu fjárlagafrv. er hættuleg. Það hafa náðst fram mikilvæg markmið í framleiðslumálum landbúnaðarins á síðustu árum og bændur hafa með ótrúlegum hætti náð tökum á því að aðlaga búskap sinn að breyttum háttum. Auðvitað hlýtur svo byggðin að ráðast af því hvernig þeirri atvinnugrein verður gert kleift að þróa sig áfram. Þetta fjárlagafrv. gengur gegn því að slík þróun geti átt sér stað. Ákvæði frv. eru þess vegna stórhættuleg fyrir landbúnaðinn í landinu.
    Nú hef ég rakið þá helstu pósta sem ég vildi leggja áherslu á í þessari umræðu. Mér er að sjálfsögðu eins farið og öðrum þeim þm. sem eiga sæti í fjvn. að þar gefst tóm til að fjalla um hina einstöku þætti fjárlagafrv. og af þeirri ástæðu hef ég ekki rætt þá þætti svo sérstaklega ítarlega við þessa umræðu. Það er hins vegar vert að leggja á það áherslu að þetta frv. er borið fram á hinum mestu brauðfótum. Meira að segja hæstv. fjmrh. sjálfur hefur bent á við þessa umræðu hve veikar forsendur væru á bak við ýmis þau markmið sem hér eru fram sett. Þar er meira um að ræða óskalista en að þau markmið geti á nokkurn hátt talist marktæk. Reyndar óttast ég að svo muni fara fyrir hæstv. núv. fjmrh. sem er að hefja sína skólagöngu, eins og fyrirrennari hans komst að orði hér á dögunum um sjálfan sig, að hann muni falla á því prófi og að þjóðin muni í þessu tilviki sem hinu fyrra bíða mikinn hnekki af.