Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Áður en gengið verður til dagskrár hefur verið fallist á að hér fari fram nú þegar umræða utan dagskrár. Að ósk hv. 2. þm. Austurl. hefur verið fallist á þessa umræðu. Umræðan fer fram skv. síðari mgr. 32. gr. þingskapa, þ.e. um hana gilda ekki tímatakmarkanir heldur hinar almennu reglur 36. gr. um umræður. Umræðan fjallar um afstöðu utanrrh. á alþjóðavettvangi. Rætt hefur verið um að þingmenn reyndu að haga svo máli sínu að þessi fundur tefðist ekki fram úr öllu hófi og hefur verið reynt að miða við að honum kynni að geta lokið eigi seinna en kl. hálffimm og umræðunni þá helst ekki seinna en kl. hálffjögur, en forseti mun að sjálfsögðu á engan hátt hefta málfrelsi manna og verður auðvitað að fara að hætti um það mál.