Ragnhildur Helgadóttir:
Frú forseti. Ég vil andmæla þessu því að hv. 2. þm. Austurl. flutti hér frumræðu sem hefur sennilega verið um það bil þrjú hjörl að lengd. Hún fól í sér yfirlýsingar vítt og breitt um afstöðu þessa og hins í stjórnarliðinu, einkanlega þó sjálfs hæstv. utanrrh., og samanburð á utanríkismálastefnu hans og utanríkismálastefnu hæstv. forsrh. sem var áður utanrrh. Þannig var að þessu vikið vítt og breitt og það þarf enga orðabók til að sjá að í þessu fólst lýsing á alvarlegu vandamáli margra stjórnmálaflokka.