Albert Guðmundsson:
    Virðulegi forseti. Má ég fara fram á það að forseti endurtaki forsendur þessarar utandagskrárumræðu vegna þess að eins og hún stendur í mínu minni var kynnt að það yrði utandagskrárumræða á undan hefðbundinni dagskrá um utanríkismál. Ég sé ekki að neinn af þeim sem hafa talað, og ég hef hlustað á þá alla meira eða minna, meira frekar en minna, hafi haldið sig við utanríkismál.