Albert Guðmundsson:
    Virðulegi forseti. Ég hélt mig vera farinn að skilja minna og minna um hvað dagskráin væri, en nú verð ég að segja að ef það er rétt að hv. 2. þm. Austurl. sé dagskrárefnið líst mér ekki á það. En ég vil bara ítreka ósk mína um að fá það skýrt frá forseta hvort ekki eru á dagskrá utanríkismál utan dagskrár.