Geir H. Haarde:
Virðulegi forseti. Ég skal ekki blanda mér í frekari deilur um þingsköp við hv. 2. þm. Austurl., sem gefur nú að vísu að jafnaði tilefni til heilmikilla umræðna.
Við umræður um stefnuræðu forsrh. hér í sl. viku vakti ég athygli á því að í ræðu hans var hvergi vikið að utanríkismálum og ég bar fram þá tilgátu að það væri vegna þess að um þau mál væri slíkur logandi ágreiningur í ríkisstjórninni að forsrh. forðaðist eins og heitan eldinn að færa þau í tal. Ég held að umræðan hérna í dag hafi sýnt að þetta var rétt tilgáta. Það er allt logandi í ágreiningi innan ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarliðsins um utanríkismál og það er alvarlegt mál, eins og hér hefur verið bent á, vegna þess að það er mjög mikilvægt fyrir smáþjóð að standa saman um hagsmuni sína út á við.
En upphaf þessarar umræðu má rekja til atburða í vikunni og afstöðu utanrrh. til atkvæðagreiðslna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hv. 2. þm. Austurl. sagði reyndar að formaður Alþfl. hefði barið að röngum dyrum ef hann héldi að sú afstaða sem hann tók í vikunni væri afstaða sem samstjórnaraðilar hans gætu sætt sig við. Ég er hræddur um að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson berji ekki bara að röngum dyrum í þessum málum. Hann geltir upp í vitlaust tré eins og stundum er sagt af svona tilefni.
Við erum að tala um tvær tillögur sem breytt hefur verið um afstöðu í, reyndar þrjár. Tvær eru sama eðlis, um svokallaða frystingu kjarnavopna, önnur frá Indlandi og Rúmeníu, hin frá Svíþjóð og Mexíkó. Það vill svo til að við umræður um skýrslu utanrrh. fyrr á þessu ári, í febrúarmánuði á þessu ári, umræðu um skýrslu þáv. utanrrh., hæstv. núv. forsrh., gerði ég þessar tillögur einmitt að umtalsefni og gagnrýndi mjög með hvaða hætti þáv. utanrrh. fór með þau mál, gagnrýndi mjög hvernig hann breytti þá afstöðu Íslands til þessara tillagna frá því að sitja hjá og í það að greiða þeim atkvæði. Ég rakti það, og það er í þingtíðindum frá því 26. febr. sl., hvers vegna ég taldi að þetta væru rangar ákvarðanir og ekki bara rangar í sjálfu sér heldur rangar vegna þess að þær stönguðust á við þá meginstefnu sem Íslendingar hafa skrifað undir og tekið þátt í að móta á vettvangi Atlantshafsbandalagsins. Menn verða stundum að gæta að því á vettvangi utanríkismála að vera sjálfum sér samkvæmir og þegar menn hafa skrifað undir samþykktir og stefnu á vettvangi okkar bandalagsríkja innan Atlantshafsbandalagsins er auðvitað fráleitt að koma síðan á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og greiða þar tillögum atkvæði sem í raun ganga þvert gegn þeirri stefnu sem samþykkt var með bandalagsríkjunum.
Ég er reyndar ekki einn um þessa skoðun því að hæstv. þáv. utanrrh. Ólafur heitinn Jóhannesson lét þess getið í ræðu um skýrslu sína til Alþingis 1983 hvaða augum hann liti tillögur af þessu tagi. Ég hef áður lesið upp þessar tilvitnanir í Ólaf heitinn Jóhannesson og skal ekki ítreka þær hér, en kjarni málsins er sá að sú stefna sem Vesturlönd hafa barist
fyrir á vettvangi afvopnunarmála er farin að skila árangri. En frystingartillögurnar allt frá árinu 1982 hefðu þýtt að það væri verið að falla frá hinum tvíþættu áformum, Dual Track-ákvörðuninni svokölluðu, um að mæta Sovétmönnum með vopnauppbyggingu í Vestur-Evrópu en knýja þau samtímis að samningaborðinu. Stuðningur okkar við slíka tillögu á þeim tíma hefði auðvitað verið það sama og að koma í bakið á okkar bandalagsríkjum. Nú vill hins vegar svo til að þessi stefna Atlantshafsbandalagsríkjanna og þar með Íslands hefur skilað svo miklum árangri að frystingartillögurnar er orðnar gersamlega úreltar --- eða vilja menn fara að frysta hér vopn sem búið er að ná samkomulagi um að útrýma? Auðvitað er þetta mótsögn og auðvitað er það alveg rétt ákvörðun, sem utanrrh. hefur tekið, að breyta okkar atkvæði á þessum vettvangi í það fyrra horf sem hér hafði tíðkast allt þar til í fyrra. Ég fagna því að hann skuli ekki láta kúga sig í þessu stjórnarsamstarfi til að breyta gegn betri vitund í þessum málum.
Nú má vænta þess að fleiri tillögur sambærilegar þeirri sem ég var að tala um, tillögu Svíþjóðar og Mexíkó, komi til afgreiðslu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna síðar í haust. Ég vænti þess að utanrrh. verði þá jafntrúr samvisku sinni og hann hefur verið í þessari viku, t.d. þegar til afgreiðslu kemur tillaga Úkraínu og Tékkóslóvakíu um skilyrðislausa framkvæmd allra ályktana allsherjarþingsins um afvopnunarmál sem Ísland álpaðist til þess að samþykkja í fyrra --- ( Utanrrh.: Úkraínu og hverra?) Tékkóslóvakíu. --- að ég tel fyrir hrein mistök og að mjög óathuguðu máli og ég vona að það verði ekki látið henda okkur á nýjan leik.
En nú langar mig til að víkja örlítið að hinni tillögunni um málefni landanna fyrir botni Miðjarðarhafs sem hv. 2. þm. Austurl. gerði svo mjög að umtalsefni og reyndar fleiri ræðumenn. Ég er líka sammála afstöðu utanrrh. til þeirrar tillögu. Ég tel að það sé mjög varhugavert skref fyrir okkur Íslendinga á alþjóðavettvangi að ætla að ganga fram fyrir skjöldu með einhliða afstöðu í viðkvæmum deilumálum af þessu tagi, mjög varhugavert skref sem gæti haft alvarlegar afleiðingar. Mér dettur ekki í hug frekar en utanrrh. annað en
harma og fordæma ofbeldi sem Ísraelsmenn hafa orðið sekir um á herteknu svæðunum svokölluðu. Mér dettur auðvitað ekki annað í hug. Og ég treysti því, vegna þess að Ísrael er réttarríki og lýðræðisríki, að lögum verði komið yfir þá einstaklinga sem þar hafa farið með ofbeldi gegn saklausum borgurum. Ég treysti því að í réttarríki, eins og þar er, muni lögum verða komið yfir slíka menn. En hitt er ástæðulaust að vega að tilverurétti Ísraelsríkis eins og í raun er verið að gera með ályktunum sem ganga út á einhliða fordæmingar á störfum Ísraelsstjórnar.
Ég vil gjarnan greina frá því, virðulegi forseti, að það er víðar en á vettvangi Sameinuðu þjóðanna sem mál af þessu tagi koma fram. Á síðasta þingi Alþjóðaþingmannasambandsins, sem haldið var í
septembermánuði sl., var fram borin tillaga sem mér sýnist að sé mjög svipaðs efnis og sú tillaga sem utanrrh. hefur hér greint okkur frá og hefur verið rædd hér í dag þó ég hafi að vísu ekki borið þær nákvæmlega saman. Ég hef ekki haft tækifæri til þess. En þessi tillaga fjallaði um hina svokölluðu uppreisn almennings á herteknu svæðunum. Um þessa tillögu urðu mjög harðvítugar deilur eins og alls staðar þar sem reynt er að fjalla um þessi mál af ósanngirni.
Sannleikurinn er sá að á vettvangi Alþjóðaþingmannasambandsins koma saman þingmenn, bæði þjóðkjörnir og tilkjörnir með öðrum hætti, og bera saman bækur sínar, koma þar ekki í nafni sinna ríkisstjórna þó að fulltrúar kommúnistaríkjanna og raunar miklu fleiri landa hafi ekki aðra afstöðu þar en ríkisstjórnir landa þeirra. En á þessum vettvangi reyna menn gjarnan að koma sér saman um ályktanir um ýmis alþjóðleg deiluefni og það hefur oft gefið góða raun. Fyrir ári náðist t.d. í fyrsta sinn, að því er mér er kunnugt um, samkomulag milli Írana og Íraka um ákveðna lausn á þeirra deilum sem ég hygg að hafi átt nokkurn þátt í því að á endanum náðist þar vopnahlé þó ekki sé séð fyrir endann á þeirri deilu. En sú tillaga, sem ég geri hér að umtalsefni og borin var upp á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins, var mjög á eina hlið, var mjög eindregin fordæming á Ísraelsmönnum. M.a.s. svo mikil að langflest vestræn ríki treystu sér ekki til þess að koma þar nærri, jafnvel þó að mikil vinna hefði verið lögð í það í undirnefnd að samræma þarna sjónarmið og reyna að ná einhverjum sáttum um orðalag sem menn gætu orðið sammála um jafnvel þó að Ísraelsmennirnir sjálfir hefðu ekki treyst sér til þess að eiga þar aðild að. Auðvitað er það svo að þó að vestræn ríki hafi í gegnum árin stutt Ísraelsmenn eru það vinir sem fyrst til vamms segja og það eru vestrænir lýðræðissinnar og þingmenn á Vesturlöndum sem hafa hvað harðast gengið fram í að kvarta undan því við Ísraelsmenn þegar þeir hafa gert sig seka um ofbeldi eða einhvers konar yfirgang.
En í sem stystu máli, virðulegi forseti, vildi ég bara segja frá því að um þessa ályktun voru mjög skiptar skoðanir. Hún var að vísu samþykkt vegna þess að þau ríki sem ráða lögum og lofum hjá Sameinuðu þjóðunum eru auðvitað líka í miklum meiri hluta á vettvangi eins og hjá Alþjóðaþingmannasambandinu. Hún var samþykkt með 636:139 atkvæðum en 211 sátu hjá. Nú er það þannig að lönd fara með misjafnlega mörg atkvæði, allt frá 9 og upp í 22. Við Íslendingar höfum 9 atkvæði og sendinefndir hafa rétt til að skipta atkvæðum sínum. Í þessu tilfelli gerðum við það. Við hv. þm. Ólafur Þórðarson sátum í sæti Íslands á þessari ráðstefnu og skiptum með okkur atkvæðum þannig að 5 atkvæði voru nei en 4 sátu hjá og ég held að það sé ekki rangt með farið að ég hafi sagt nei, en hv. þm. Ólafur Þórðarson hafi setið hjá. Það var mjög svipað með önnur Norðurlönd. Það var allt til í því og af 55 sameiginlegum atkvæðum Norðurlandanna voru 11 já, 19 nei og 25 sátu hjá. Ég vildi gjarnan nota þetta
tækifæri til að greina frá því að það er víðar á vettvangi alþjóðlegs samstarfs sem menn verða að taka afstöðu til þessara mála. Þarna var það svo að mjög fáir vestrænir þingmenn treystu sér til þess að ganga fram fyrir skjöldu og fordæma Ísraelsríki með þeim hætti sem þarna var verið að gera og með þeim hætti sem mér sýnist að hafi verið alveg sambærilegur við þá tillögu sem er undanfari þeirra umræðna sem hafa farið fram í dag.
Málið snýst nefnilega ekki um einhliða fordæmingu á einum eða neinum, hvorki Ísraelsmönnum né Palestínumönnum, sem auðvitað eiga sinn rétt og sem auðvitað verður að koma fram við af fullri sæmd og reisn. Auðvitað eiga þeir sinn rétt sem verður að virða. En málið snýst ekki um að fordæma þessa aðila eins og utanrrh. sagði réttilega. Málið snýst nú um að koma þessum aðilum saman að samningaborði. Við eigum að leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að koma á alþjóðlegri ráðstefnu um þessi mál, ekki til að þvinga Ísraelsmenn eða Palestínumenn, deiluaðilana, til að sætta sig við einhverja lausn sem t.d. ríkin í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna geta fallist á heldur til að fá þau til að ræða hvert við annað og ná sameiginlegri niðurstöðu. Það verður aldrei komist að niðurstöðu um vanda þessara ríkja fyrr en deiluaðilarnir sjálfir fást til þess að tala saman. Það liggur fyrir grunnur að slíku starfi, að slíkri lausn með ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 242 og 337 og það eru þær ályktanir sem skipta máli en ekki áróðurskenndar yfirlýsingar allsherjarþingsins sjálfs þar sem ofstæki hefur því miður allt of oft náð yfirhöndinni yfir eðlilegri og heilbrigðri skynsemi.