Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Það hafa orðið hér miklar umræður í framhaldi af inngangi mínum við þessa utandagskrárumræðu og ég sé ástæðu til að þakka þá umræðu fyrir mitt leyti. Hún ber vott um að það hefur verið rík þörf á því að taka þessi mál hér upp í þinginu og þau tilefni sem til þess voru þó að menn líti misjöfnum augum á það eins og ekki er óeðlilegt og ég þóttist raunar vita fyrir fram. Ég ætla að leitast við í ekki mjög löngu máli að koma að örfáum atriðum varðandi þau efni sem leiddu til þessarar umræðu af minni hálfu.
Ég vil þá fyrst koma að viðbrögðum hæstv. utanrrh. í ræðu hans áðan þar sem hann eðlilega reyndi að færa rök og skýra ástæður fyrir afstöðu sinni. Ég tel að það hafi ekki komið fram af hálfu ráðherrans neinar viðhlítandi skýringar á þeirri niðurstöðu sem hann komst að í sambandi við þau tvö málefni sem ég hef gagnrýnt og ég ætla að benda á nokkra þætti sem að því snúa.
Lítum fyrst til Palestínumálsins. Hæstv. ráðherra og raunar ýmsir fleiri sem hafa reynt að verja hans niðurstöðu og hans málstað hafa lagt að jöfnu þá aðila sem takast á innan þess svæðis sem við köllum Palestínu. Hæstv. ráðherra taldi sig ekki geta átt hlut að því að fordæma framferði Ísraelsmanna gagnvart fólki á herteknu svæðunum vegna þess að meintir aðrir aðilar, sem stunduðu hermdarverk á þeim sömu svæðum, væru ekki fordæmdir í leiðinni. Ég held að þeir sem hafa uppi svona málflutning þyrftu að setja sig betur inn í aðstæðurnar sem fyrir liggja og ég tel að hv. 2. þm. Vestf. hafi í sínu máli, skýru máli sem hann flutti um stöðuna á þessum svæðum, sagt margt af því sem ég vildi sagt hafa og get tekið undir. Það er ekki sambærilegt á nokkurn hátt ríkið Ísrael með sínum herstyrk og þolendur þess hernáms, sem hefur verið viðvarandi frá 1967, varnarlaust fólk á þeim svæðum sem hrakið hefur verið af lendum sínum og úr heimkynnum sínum og ráðist er að með vopnum með þeim hætti sem dæmi hafa verið rakin um hér í umræðunum. Þetta er að mínu mati ekki frambærilegur málflutningur. Við getum tekið undir almennar fordæmingar á hryðjuverkum og hermdarverkum, en við hljótum að velta fyrir okkur þeim aðstæðum sem að baki liggja hverju sinni þegar við kveðum upp dóma um slíkt.
Ég er ekki að verja neinar árásir gagnvart vopnlausu fólki og get tekið þátt í almennri fordæmingu á slíku framferði, en ég vísa hins vegar til þess sem fram kemur í samþykkt Alþjóðasambands jafnaðarmanna, sem hæstv. ráðherra var að leitast við, og ég gagnrýni það ekki, að stauta sig fram úr í þýðingu, en þar kemur fram eindregin og einörð fordæming á framferði Ísraelshers, eins og hæstv. ráðherra raunar kom að í sínu máli, á sama hátt og einstakir hópar eru fordæmdir sem hafa beitt hermdaraðgerðum eða árásum gegn borgaralegum fórnarlömbum á yfirráðasvæði Ísraelsmanna. Þarna er tekið undir kjarna þess máls sem fyrir lá í tillögu Sameinuðu þjóðanna sem hæstv. ráðherra gat ekki
tekið undir. Í þeirri tillögu kemur hins vegar fram margt fleira en fordæmingin ein eins og fram kemur ef menn lesa tillöguna og ég fór yfir hana hér áðan þannig að hún liggur fyrir í þingtíðindum.
Jafnframt stendur í ályktun Alþjóðasambands jafnaðarmanna sem samþykkt var sl. vor, í lauslegri þýðingu, með leyfi virðulegs forseta: ,,Við styðjum viðleitni Palestínumanna til að finna samkomulagslausn til friðar. PLO gæti lagt fram mikilvægan skerf í friðarátt með því að breyta þjóðarsáttmála sínum, National Charter, í þá veru að viðurkenna Ísraelsríki.``
Þetta stendur þarna og snertir þann þátt sem að hefur verið vikið hér í umræðunni, að menn vilji tryggja réttindi Ísraelsmanna innan öruggra landamæra. Ég tek undir það markmið en ég spyr: Hvernig ætla menn hernuminni þjóð, Palestínumönnum, að taka fyrir fram afstöðu til ríkis sem hefur ekki skilgreint landamæri sín á annan hátt en fyrir liggur? Hlýtur ekki slíkt að verða niðurstaða samkomulagsumleitana en ekki forsenda og upphaf? Hvar liggja fyrir yfirlýsingar og skilgreiningar af hálfu valdamanna í Ísrael um hver séu þau landamæri sem þeir vilji draga um ríki sitt og á bás sem þeir hyggjast skammta Palestínumönnum? Ég spyr hæstv. utanrrh. og ég spyr þá sem hafa borið þetta fram sem röksemd í sínu máli hér við umræðuna.
Ég get stytt mál mitt hér varðandi Palestínuþáttinn með vísan til þeirrar þáltill. sem hér liggur fyrir og ég er 1. flm. að. Hún verður rædd hér í þinginu innan skamms. Þar gefst tækifæri til að fara yfir einstaka þætti í þessu máli, bæði sögulegar röksemdir og stöðuna í nútímanum.
Ég bendi á að í tillögutextanum er að finna vísan til ályktunar Sameinuðu þjóðanna frá 29. nóv. 1947, þeirrar ákvörðunar sem leiddi af sér stofnun Ísraelsríkis sem m.a. hv. 4. þm. Vestf. vék að í sínu máli. En ég vara menn við því að ætla að fara að meta ástandið í dag eða taka afstöðu til mála út af tilfinningalegum forsendum vegna glæpaverka sem framin hafa verið gegn gyðingum, m.a. í Evrópu, og ætla með einhverjum hætti að fara að milda dóminn yfir rangmætu, óréttlætanlegu framferði Ísraelsstjórnar gagnvart Palestínumönnum á hernumdum svæðum, óbreyttum borgurum. Slíkt er ekki frambærilegt, slíkt er ekki Ísraelsmönnum til framdráttar því að það sem gengur mér og ég vænti flestum sem ræða þessi mál til er það að leysa þessa deilu, að þessi deila megi leysast með friðsamlegum hætti, að forða
Ísraelsmönnum frá þeirri ógæfu að feta þá braut áfram, þá slóð sem þeir hafa gengið að undanförnu og sem felur í sér feigðina ef áfram verður haldið að óbreyttu.
Og eins og kom hér fram í máli hv. þm. frá Kvennalistanum sem hér hafa talað við umræðuna er það ekki frambærilegt og það er ekki hægt að ætla að fara að taka afstöðu til þessa máls út frá forsendum liðinnar tíðar og með vísan til þess sem þar hefur gerst. Við getum ekki afsakað óréttlætanlegt framferði í dag með einhverju sem unnið hefur verið af
forfeðrum okkar á fyrri tíð.
Ég ætla, virðulegur forseti, að láta þetta nægja varðandi Palestínumálið en ég ætla að koma í örfáum orðum að hinum þáttunum, frystingartillögunni . . . ( Forseti: Leyfist mér að trufla ræðumann andartak. Það er ljóst að þessi umræða er nú komin langt fram yfir það sem talað var um og mér er ómögulegt að halda fundinum áfram lengur en til í hæsta lagi korter yfir sex. Þá verð ég að fresta þessum fundi. Ég vil spyrja hv. ræðumann hvort hann eigi langt mál eftir.) Virðulegur forseti. Ég á ekki langt mál eftir. Ég hef ekki ætlað mér að halda hér langa ræðu frekar en í upphafi.
Ég skil það svo að mér leyfist að halda áfram máli mínu og ég ætlaði að víkja aðeins að frystingartillögunum, afstöðu hæstv. ráðherra og annarra sem hafa varið afstöðu hans í því máli. Ég tel að rök hæstv. ráðherra og málflutningur í þá átt að þetta séu úreltar tillögur, færi jafnvel stöðu mála til baka ef samþykktar væru og framkvæmdar, vera gersamlega út í hött og óframbærilegar.
Hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson tók t.d. undir þennan málflutning hæstv. ráðherra og af máli hv. þm. mátti skilja að við ættum sem allra minnst að vera að blanda okkur í deilur stórveldanna, að við ættum ekki að gera mikið að því að vera að flytja okkar mál á alþjóðavettvangi um þessi atriði þar sem það væri niðurstaða úr samningum stórveldanna sem skæri úr. Auðvitað skiptir það máli hver lokaniðurstaðan verður hjá þeim sem hafa vígtólin, stýra þeim og stjórna og framleiða þau, en það er illa komið fyrir smáþjóð ef hún ekki vill nýta rétt sinn á vettvangi þjóðanna til þess að halda fram sínum skoðunum, þeim sem hún telur réttar og leiða til betri stöðu heimsmála. Ég vísa þessum málflutningi því algerlega á bug. Ég vek athygli á því að í þessum tillögum og þá sérstaklega í tillögu Svíþjóðar og Mexíkó er að finna fjölmörg atriði sem mundu bæta stöðu mála stórkostlega ef samþykkt yrðu og framkvæmd. Hér hefur verið bent á af einstökum talsmönnum, t.d. af hv. þm. Guðrúnu Agnarsdóttur, að bann við tilraunum með kjarnavopn, væri það framkvæmt, væri það samþykkt af báðum risaveldunum og við það staðið, væri að sjálfsögðu gífurleg framför í sambandi við vígbúnaðarkapphlaupið. Ég minni á það að annað risaveldanna gerði tilraun til þess að koma á samkomulagi um slíkt bann með því að halda að sér höndum í eitt og hálft ár en það var ekki komið til móts við það. Það voru bundnar vonir við að það leiddi til gagnkvæmrar stöðvunar tilrauna með kjarnavopn. Svo var því miður ekki. Bæði risaveldin halda uppi slíkum tilraunum nú neðan jarðar og eru að þróa vopnabúnað, nýjan vopnabúnað m.a. sem tengist geimvopnum.
Það er því ekki frambærilegt að samþykkt á þessum svonefndu frystingartillögum sé spor til baka, þýði í rauninni frystingu vopnanna og hindrun á samkomulagi um afvopnum. Slíkt er gersamlega út í hött. Hæstv. ráðherra afgreiddi í rauninni þetta mál með almennum athugasemdum en vék ekki að
einstökum þáttum tillagnanna. Ég tók eftir því í hans málflutningi. ( JBH: Jú, hann gerði það.) Hann fór um þetta almennum orðum til þess að reyna að slá ryki í augu fólks sem fylgist með þessum málum. Ég gagnrýni það um leið og ég gagnrýni þá niðurstöðu sem hann hefur komist að í þessu máli en hefur enn tækifæri á að breyta því enn mun ekki vera búið að greiða atkvæði um þessi mál á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Virðulegur forseti. Ég hefði ástæðu til þess að víkja hér að mörgum fleiri þáttum en ég ætla ekki, vegna þeirra aðstæðna sem virðulegur forseti hefur minnst á, að hafa þessa ræðu mína öllu lengri.
Ég vil að lokum segja það að sú ríkisstjórn sem nú situr og sem hæstv. utanrrh. situr í var ekki mynduð um neitt einstakt atriði eins og skilja mátti á máli eins hv. þm. Hún var ekki mynduð sérstaklega um utanríkismál eða sérstaklega um atvinnumál. Í hennar verkahring er málasviðið allt, einnig utanríkismál, og hv. þm. Páll Pétursson hefur farið með í sinni ræðu það sem fært var til bókar í þeim efnum á milli stjórnarflokkanna. Þess vegna skiptir meðferð utanríkismála á vegum þessarar ríkisstjórnar mig og aðra sem eru stuðningsmenn stjórnarinnar miklu máli og getur ráðið úrslitum um viðhorf mitt til þessarar ríkisstjórnar alveg eins og er um aðra mikilsverða þætti. Ég minni á það hér um leið og ég heiti á hæstv. ráðherra að hugleiða sitt valdsvið og verksvið og leitast við að gera það með opnum huga og öðru hugarfari og öðrum vinnubrögðum en birst hafa okkur undanfarna daga.