Páll Pétursson:
Frú forseti. Ég þarf ekki langan tíma. Ég verð að játa að ég varð fyrir vonbrigðum með ræðu hæstv. utanrrh., þ.e. niðurstöðu hennar.
Hvað varðar ávítanir til starfsmanna sendiráðsins, sem ég nefndi í minni fyrri ræðu, þá vitnaði ég þar til Dagblaðsins í dag og viðtals við hæstv. utanrrh. og mér er kunnugt um að starfsmenn þar telja sig ekki í neinni skömm, ekki bera neina sök á því að þeir hafi ekki upplýst ráðherra sinn um gang mála á allsherjarþinginu með eðlilegum fyrirvara. Og sem betur fer hafa þær góðu fréttir borist að öll nótt er ekki úti enn. Það var nefnilega ákveðið á allsherjarþinginu að fresta afgreiðslu þessara tillagna. Atkvæðagreiðslan fer ekki fram fyrr en á mánudag svo að það er enn þá tími til þess að breyta um afstöðu.
Ég lít svo á að málefnasamningurinn sem við gengum frá og eigum að starfa eftir sé sú forskrift, utanríkismálakafli hans, sem við treystum utanrrh. til þess að fara eftir og ég nefni einungis tvo punkta sem ég tel að með þessari afgreiðslu, sem hann hefur nú beitt eða hótað að beita á allsherjarþinginu, brjóti hann gegn. Einn liður utanríkismálaályktunarinnar er að þessum markmiðum verði m.a. náð með stuðningi við baráttu fyrir mannréttindum hvar sem hún er háð og með því að stuðla að friðsamlegri og bættri sambúð þjóða. Ég tel að til þess að uppfylla þessi skilyrði þurfi utanrrh. að gefa fyrirmæli um það að atkvæði Íslands falli á þann hátt sem það féll í fyrra. Það er annað mál með Ísraelstillöguna vegna þess að það er ný tillaga. Þar hefur hann tækifæri til þess að móta sér stefnu og hann hefði þurft að samræma hana stuðningi við baráttu fyrir mannréttindum hvar sem hún er háð eins og við sögðum svo fagurlega í okkar málefnasamningi.
Spurningin um hvort stefnunni hafi verið breytt eða ekki: Utanrrh. lætur að því liggja að hann hafi ekki breytt stefnunni. Ég get ekki hjá því komist að telja að svo hafi verið. Það eru fleiri í umræðunum sem telja að stefnunni hafi verið breytt. Hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir tók m.a.s. svo til orða að stefnan hefði verið leiðrétt. Mér finnst vafasamt ,,kompliment`` við hæstv. utanrrh. hve sjálfstæðismenn eru ánægðir með afstöðu hans. Það hefði verið betra fyrir okkur alla ef við hefðum komið upp í kór sem berum ábyrgð á honum í utanríkisráðherraembættinu og þakkað honum fyrir hve hann stæði sig vel en ekki stjórnarandstæðingar.
Þessar frystingartillögur eru ekki að mínum dómi úreltar. Það mætti endurbæta þær, það mætti umskrifa þær og það mætti taka inn þætti sem hafa gerst síðan þær voru fyrst festar á blað. Það er svo með flest sem við skrifum að það er alltaf hægt að bæta það, en þær eru ekki úreltar. Það eru í þeim þættir sem eru fyllilega tímabærir og eðlilegt að hamrað sé á. Þó er það ekki meginmálið. Það er hin siðferðilega kúvending sem tekin er með því að rjúfa samstöðu Norðurlanda, ganga úr flokki menningar- og vinaþjóða og slást í för með annars konar liði. Það er það sem
er alvarlegast í þessu máli.
Ég ætla ekki að níðast á þolinmæði forseta og þarf ekki öðru við að bæta en því að nú vona ég að ráðherra minn, hæstv. utanrrh., noti þann frest sem hefur gefist, noti þá helgi sem fram undan er til þess að ráðfæra sig í fyrsta lagi við samráðherra sína og aðra ráðholla menn í stjórnarflokkunum, hugsa málið vandlega bæði nótt og nýtan dag og þá er ég viss um að á mánudagsmorgun verður hann tilbúinn með símskeyti til sendinefndar Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum þar sem hann leggur fyrir þá að greiða atkvæði eins og gert var á síðasta allsherjarþingi.