Nýtt álver við Straumsvík
Mánudaginn 21. nóvember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill upplýsa í fyrsta lagi að þegar umræðan utan dagskrár var leyfð var ekki ljóst að svarið við fsp. hv. 12. þm. Reykv. kæmi fram í dag, enda hygg ég að það hafi engin áhrif á leyfi til utandagskrárumræðu. Það voru engar forsendur til þess að hafna þeirri beiðni og fer hún að sjálfsögðu fram.