Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Að gefnu tilefni vill forseti taka fram að formenn þingflokka voru látnir vita af þessari umræðu þannig að það er ekki við forseta að sakast þó hv. 2. þm. Norðurl. e. hafi ekki af því heyrt.
    Jafnframt vill forseti taka fram að verkstjórn hér í þinginu það sem af er þessu löggjafarþingi hefur verið mjög svipuð og verið hefur og á engan hátt lakari.