Geir H. Haarde:
    Virðulegi forseti. Ég get ekki á mér setið að benda á að hæstv. forsrh. vék sér undan að svara því sem mér finnst vera meginmálið í spurningu málshefjanda, þ.e. því hver sé staða þessa sjóðs ef lagaákvæðin um hann ná ekki fram að ganga hér á Alþingi. Vinnubrögðin í hv. fjh.- og viðskn. Ed. koma því ekkert við. Það er ekkert verið að kvarta undan því hvernig þar er unnið. Það sem skiptir máli er: Hvað skeður ef þessi sjóður nær ekki fram að ganga á Alþingi? Hver er staða þeirra sem hafa fengið þar lán og hver er ábyrgð ráðherranna sem bera ábyrgð á því að það er farið að veita lán í stórum stíl úr sjóði sem engin trygging er fyrir að meiri hluti alþingismanna styðji?