Nýtt álver við Straumsvík
Mánudaginn 21. nóvember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna orða hv. 2. þm. Austurl. skal fram tekið að almennt eru skrifleg svör ekki tekin á dagskrá. Í öðru lagi var ástæða hv. 1. þm. Reykv. til þessarar umræðu sú og hann gat þeirrar ástæðu í bréfi til forseta þingsins að ráðherrar hefðu á undanförnum dögum gefið út ,,misvísandi``, eins og hv. þingmaður orðaði það, yfirlýsingar varðandi stöðu þessa máls. Það er því með öllu eðlilegt að þetta mál komi til umræðu hér, enda hefst nú umræðan.