Nýtt álver við Straumsvík
Mánudaginn 21. nóvember 1988

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi máls míns staðfesta það sem kom fram hjá forsrh. að ekkert samkomulag hefur verið gert um þetta mál sérstaklega fyrir fram. Ég bendi hins vegar á að í sáttmála stjórnarinnar eru skýr ákvæði um það að orkulindir landsins skuli nýttar til atvinnuuppbyggingar. Það er einmitt í þeim anda sem athuganir fara nú fram á þessu máli.
    Ég vil ekki lengja þessar umræður en vind mér að því að svara þeim spurningum sem hv. 1. þm. Reykv. beindi til mín.
    Málshefjandi spurði fyrst um hagkvæmniathugun á nýju álveri og framvindu þess verks. Þessi athugun er, eins og fram hefur komið, gerð á vegum fjögurra álfyrirtækja, þeirra Swiss Aluminium frá Sviss, Granges Aluminium frá Svíþjóð, Alumined frá Hollandi og Austria Metall frá Austurríki. Samkomulag um þessa athugun var gert, eins og fram kom hjá málshefjanda, á sl. sumri. Þessi athugun stendur nú yfir og henni vindur fram með eðlilegum hætti.
    Ég hef nýlega skipað ráðgjafarnefnd til þess að vera tengiliður af Íslands hálfu við þetta verk til að tryggja að réttar upplýsingar um íslenskar aðstæður og um íslensk sjónarmið í þessu mikilvæga máli verði notaðar í þessari athugun. Ég sé á þessari stundu enga ástæðu til að ætla annað en að þessari athugun ljúki snemma á næsta ári.
    Ég legg á það sérstaka áherslu að þessi athugun miðist við ýtrustu kröfur um mengunarvarnir, um hollustuhætti á vinnustað, um góð samskipti starfsmanna og stjórnenda og auk þess verði kannað í tengslum við þessa athugun á álbræðslu hvort ekki sé vænlegur kostur að koma hér á fót úrvinnslu úr bráðnu áli og e.t.v. endurvinnslu úrgangsáls.
    Stefnt er að því að undirbúningsvinnunni verði lokið á fyrri hluta næsta árs, þannig að unnt verði að taka endanlega ákvörðun í þessu máli á grundvelli samkomulagsins einhvern tíma á því ári. Ákvörðun um það hvort ráðast skuli í að byggja verksmiðju verður tekin innan 90 daga frá því nauðsynlegum undirbúningi er lokið, þó í síðasta lagi fyrir lok næsta árs. Þetta eru formsatriðin í sambandi við þessar ákvarðanir.
    Ég vildi geta þess að ráðgjafarnefndin sem ég hef nýlega skipað hefur það verkefni að fylgjast með hagkvæmniathugun fyrirtækjanna fjögurra og veita upplýsingar um íslenskar aðstæður sem skipta miklu máli --- og auðvitað verður engin hagkvæmniathugun gerð á slíku máli af erlendum aðilum nema með slíkum tengilið. Þarna koma m.a. við sögu verð og afhendingarskilmálar á orku og íslensk skattamál.
    Ég hef lagt það fyrir þessa samráðs- og ráðgjafarnefnd að hafa náið samstarf við þá aðila sem fara með þau mál sem tengjast þessari athugun hér á landi, t.d. fjmrn., heilbrrn., Landsvirkjun, Hafnarfjarðarbæ, Hollustuvernd ríkisins, Náttúruverndarráð og Vinnueftirlit ríkisins. Ég vil taka fram að sá starfshópur, sem málshefjandi vitnaði til,

hafði erindisbréf sem var skrifað sumarið 1986 af þáv. iðnrh., hv. núv. 5. þm. Reykv. Albert Guðmundssyni. Hafði starfshópurinn samkvæmt því mjög takmarkað verkefni: Að ræða við Ísal um hugsanlega stækkun álversins í Straumsvík. Það verkefni er löngu tæmt og erindisbréf starfshópsins því úr sér gengið.
    Ég vil líka taka það fram hér í hv. Sþ. að ég hef falið Þjóðhagsstofnun í samráði við Byggðastofnun og Orkustofnun að kanna þjóðhagsleg áhrif aukinnar álframleiðslu. Ég hef skipað nefnd sérfræðinga til að vera þessum stofnunum til ráðuneytis í verkinu og til þess að semja skýrslu um langtímauppbyggingu orkufrekrar stóriðju hér á landi, ekki síst með tilliti til æskilegrar búsetu- og atvinnuþróunar og uppbyggingar raforkukerfisins. Ákvarðanir um mál eins og hér er til umræðu þarf að taka þannig að falli sem best að íslensku atvinnulífi, að því hagskipulagi sem við viljum sjálfir hafa. Það er ekki nóg að vísa til fyrri athugana í málinu eins og mér fannst aðeins vaka í máli hv. málshefjanda. Þetta er mál sem hefur ekki fengið viðhlítandi könnun að mínu áliti en fær hana nú. Þessi athugun verður á vegum þeirra stofnana ríkisins sem hafa almenna starfsábyrgð á slíkum málum, en ekki á vegum markaðsskrifstofu iðnrn. og Landsvirkjunar eins og áður var ætlað.
    Þá kem ég að því að málshefjandi spurði hvort flutt yrði á þessu þingi stjórnarfrv. um samninga um nýja álbræðslu ef niðurstaða hagkvæmniathugunar yrði jákvæð. Það liggur auðvitað í augum uppi að reynist niðurstöður hagkvæmniathugana jákvæðar, bæði varðandi rekstrarhagkvæmni og þjóðarhag, þá verður leitað heimildar Alþingis til að gera samninga um slíka framleiðslu og um virkjanir sem nauðsynlegar kynnu að reynast vegna slíkrar framleiðslu. Annaðhvort yrði þetta með heimildarlögum eða leitað yrði staðfestingar Alþingis á gerðum samningum. Báðar fyrirmyndirnar eru til um samninga um orkufreka stóriðju. Hvenær þetta yrði gert er ekki unnt að fullyrða nú, en það verður gert þegar málið er til þess þroskað. Hvorki fyrr né síðar.
    Málshefjandi spurði líka hvort athugun á þjóðhagslegum áhrifum álbræðslu yrði síðar á ferðinni en athuganir fyrirtækjanna fjögurra á rekstrarhagkvæmni. Ég sé á þessari stundu enga ástæðu til að ætla annað en að könnun á
þjóðhagshlið málsins verði lokið á þeim tíma sem við höfum til umráða til að taka ákvarðanir í málinu á næsta ári. Ég bendi líka á að hin þjóðhagslega athugun er ekki eitthvað sem tefur málið. Hún er jafnmikilvæg eða jafnvel mikilvægari en þær athuganir á rekstrarhagkvæmni sem fara fram á vegum fyrirtækjanna fjögurra.
    Þá spurði málshefjandi hvort ríkisstjórnin fylgdi þeirri stefnu að hvert álfyrirtækjanna fjögurra ætti fjórðung í hugsanlegu félagi um nýja álbræðslu. Ég get ekki á þessari stundu svarað þessu á annan veg en þann að í því samkomulagi sem þessi fjögur fyrirtæki hafa gert með sér um hagkvæmniathugun, sem er þeirra viðskiptalega samkomulag, er gengið út frá því um endanlega skiptingu hlutafjár ef til félagsstofnunar

kæmi, en hins vegar er ekkert hægt að fullyrða um þetta mál á þessu stigi. Ef einhver aðilanna kynni að óska að draga sig í hlé kæmu aðrir í skarðið, það er það eina sem ég get sagt á þessari stundu, ef úr þessu verður alvara.
    Ég vil að lokum láta þess getið vegna umræðna um þingsköp fyrr á þessum fundi að ég hef sent hæstv. forseta ítarlegt skriflegt svar við fsp. frá hv. 12. þm. Reykv. Kristínu Einarsdóttur um undirbúningsathuganir vegna aukinnar álframleiðslu á Íslandi. Ég vona að þetta svar hafi nú borist þingmönnum. Ég harma að það skyldi dragast svo sem raun ber vitni að gefa þetta svar. Fyrir því voru þær ástæður ekki síst að fjarstaddir voru þeir starfsmenn sem mest höfðu um málið fjallað svarið skyldi samið. Ég bið hv. þingheim forláts á töfinni en vona að nú hafi verið bætt úr.
    Að lokum þetta: Við athuganir á álmálinu og öðrum nýiðnaðarmálum mun ég leggja höfuðáherslu á tvennt: Fullkomnustu mengunarvarnir vegna ytra umhverfis slíkrar starfsemi og hins vegar á hollustuhætti á vinnustað sem ekki verður að fundið. Þetta hvort tveggja hlýtur að verða ófrávíkjanleg krafa af hálfu Íslendinga. Þar verður hvergi til slakað.