Þorsteinn Pálsson:
Frú forseti. Ég skal freista þess að reyna að lengja ekki þessar umræður úr hófi fram. Ég tel að þær hafi verið mjög gagnlegar og varpað ljósi á stöðu þessa máls. Það vakti hins vegar alveg sérstaka athygli þegar hæstv. fjmrh. kom í ræðustólinn að hann gerði það að aðalefni ræðu sinnar að kvarta yfir því að stjórnarandstaðan skyldi ekki í dag hafa tekið til umfjöllunar stefnuleysi og úrræðaleysi ríkisstjórnarinnar almennt í efnahagsmálum. Hann gerði það að umkvörtunarefni að stjórnarandstaðan skyldi ekki hafa í dag tekið það hér til umræðu hvað ríkisstjórnin ætlar að gera í þeim efnum og að stjórnarandstaðan skuli ekki veita ríkisstjórninni nokkra leiðsögn um það hvernig bregðast eigi við um stjórn efnahagsmála og við það að bæta úr bágri stöðu atvinnugreinanna í landinu.
Það er öllum ljóst að það slitnaði upp úr stjórnarsamstarfi fyrrv. ríkisstjórnar vegna ágreinings um hvernig taka ætti á málum atvinnuveganna vegna þess að samstarfsflokkar Sjálfstfl. í þeirri ríkisstjórn vildu ekki á þeim tíma taka á þeim vanda og kröfðust þess að honum yrði skotið á frest. Menn hafa heyrt alveg skýrt og skorinort hvernig atvinnulífið í landinu hefur brugðist við. Það er alveg sjálfsagt að taka áskorun hæstv. fjmrh. um að hefja hér almennar umræður um nauðsyn aðgerða í efnahagsmálum fyrst hæstv. ráðherra kallar á aðstoð stjórnarandstöðunnar í þeim efnum.
Það er líka athyglisvert að talsmenn stjórnarflokkanna í þessari umræðu hafa lagt á það mikla áherslu að það væri ástæðulaust að fjalla um þetta mikilvæga mál hér á Alþingi. Hvers vegna er það ástæðulaust? Allir viðurkenna að þetta er mikilvægt mál. Allir viðurkenna að það hefur mjög mikla þýðingu varðandi atvinnuþróun í landinu. Ég man ekki betur en þetta hafi verið eina málið sem Alþfl. lagði áherslu á við myndun þessarar ríkisstjórnar, fékk að vísu ekki stefnu sína inn í stjórnarsáttmálann, en hæstv. iðnrh. hefur unnið að framgangi þess í ljósi þeirrar stefnumörkunar sem forveri hans hafði lagt og þeirra samninga sem forveri hans hafði lagt í þeim efnum. Hann á allar þakkir skildar fyrir það efni. Hann fær allan stuðning fyrir áframhaldandi vinnu á þeim grundvelli og svör hans voru mjög skýr og afdráttarlaus. Þó fannst mér gæta nokkurrar úrtölu þegar hæstv. ráðherra ræddi um að eins gæti farið að frumvörp um þetta efni yrðu ekki lögð fram fyrr en á öðru þingi. Auðvitað er ekkert hægt að segja fyrir um niðurstöður samninga og ég skil mætavel það sjónarmið hæstv. iðnrh. Hitt hefði þó verið fastara og í ákveðnari skorðum og einarðari stefna, að það yrði skýrt og skorinort tekið fram að að því væri stefnt að afgreiða nauðsynlegar lagaheimildir í þessu skyni á þessu þingi. Ég geri alveg ráð fyrir því að það sé í huga hæstv. ráðherra og komi kannski fram í hans máli í umræðunni, enda hefur hann til þess stuðning.
Þegar núverandi ríkisstjórn var mynduð var ljóst að Alþb. setti sig á móti stórvirkjunum og samningum
við erlenda aðila um álbræðslu. Alþfl. krafðist þess og gerði þetta reyndar að sínu eina máli við stjórnarmyndunina, en það kom aldrei fram hver væri afstaða forustuflokksins í ríkisstjórn, Framsfl. Það var þess vegna einkar athyglisvert að hæstv. fjmrh. upplýsti í umræðunni að það væri bullandi ágreiningur innan Framsfl. um þetta mál. Þar skiptust menn í tvo hópa. Það kom ekki fram í ræðu hæstv. forsrh. hver stefna Framsfl. væri í málinu. Ég skil það svo að hann sé ekki viðstaddur þessa umræðu í dag og tek undir það, sem hér hefur komið fram hjá hv. 5. þm. Reykv., að það er býsna algengt að hæstv. forsrh. dvelst annars staðar en á Alþingi, kannski í fílabeinsturninum, þegar umræður fara fram um mikilvæg mál. En það væri fróðlegt að fá að vita hver er stefna Framsfl. Við höfum heyrt skoðanir þess hluta sem hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson er talsmaður fyrir. En hver er stefna Framsfl. í málinu? Það væri býsna nauðsynlegt að fá fram.
Síðan segir hæstv. fjmrh. að Alþb. sé andstætt því grundvallaratriði um eignaraðild útlendinga sem fram komi í samningsdrögunum um hagkvæmniathugun. Hæstv. iðnrh. hafði hins vegar tekið fram að eignaraðildin yrði í þeim hlutföllum ef til samninga kæmi nema einhver þessara aðila drægi sig út og þá yrðu aðrir erlendir aðilar að koma þar í staðinn, enda hygg ég að út frá þessu hafi verið gengið. Hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson sagði: Þessir erlendu aðilar, sem með samningum við íslensk stjórnvöld hafa tekið að sér að gera hagkvæmniathugun, hljóta að vera í góðri trú um áframhaldandi vilja íslenskra stjórnvalda til þess að takast þetta verkefni á hendur. Ég tek alveg hjartanlega undir með hv. þm. Það væri meira en lítið skrýtið ef efnt væri til samningagerðar við erlenda aðila um hagkvæmniathugun af þessu tagi ef þeir viðsemjendur íslenskra stjórnvalda gætu ekki treyst því að það væri vilji til þess að hagkvæmniathuguninni lokinni að fara í samningaviðræður. En þá upplýsir hæstv. fjmrh. að einn flokkur sem að ríkisstjórninni stendur sé algerlega andvígur því grundvallaratriði að erlendir aðilar komi að þessari stóriðju. Nú veit ég ekki hvort marka má þessa yfirlýsingu því að það er mjög algengt að Alþb. gefi út sverar yfirlýsingar um grundvallaratriði en hafi þær svo að engu, kannski miklu algengara en hitt, í tilvistarkreppu sinni. Ef
marka má þessa yfirlýsingu hæstv. fjmrh. felst í henni yfirlýsing um að það eigi að draga hina erlendu viðsemjendur á asnaeyrunum inn í viðræður þegar fyrir liggur að Alþb. er andvígt eignaraðild í hugsanlegum samningum sem koma í kjölfarið. Yfirlýsing hæstv. ráðherra verður ekki skilin á annan veg. Það eigi að draga þá þingmenn Alþfl. og Framsfl., sem vilja vinna að framgangi málsins, á asnaeyrunum og finna svo einhver önnur rök í samningaviðræðum eða hagkvæmniathugun til að koma málinu fyrir kattarnef síðar. En ég bind satt að segja ákveðnar vonir við það og styðst þar við reynslu í gegnum tíðina að það sé lítið að marka yfirlýsingu af þessu tagi um stefnu Alþb., jafnvel þó að formaður
þess tali. Það er alveg ljóst að það er meirihlutavilji hér á Alþingi fyrir því að ganga í slíka samninga, koma þessum verkum fram til að auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi ef hagkvæmniathuganir eru á þá lund að það sé skynsamlegt og samningar takast. Ég hef trú á því og vona það satt best að segja að þá láti Alþb. undan þeirri grundvallarstefnu sem hæstv. fjmrh. lýsti.
En það breytir ekki því að í orðum hans felst það eitt að draga erlenda viðsemjendur ríkisstjórnarinnar, sem hann á sjálfur sæti í, á asnaeyrunum og draga þá þingmenn Alþfl. og Framsfl. sem styðja ríkisstjórnina á asnaeyrunum í málinu og það lýsir fremur ástandinu innanborðs í hæstv. ríkisstjórn en efni málsins.
Aðalatriðið er að þessi umræða hefur verið býsna þörf. Hún hefur varpað ljósi á hver afstaða einstakra aðila innan ríkisstjórnarflokkanna er í málinu þó að enn sé nokkuð á huldu um skoðanir framsóknarmanna í þeim efnum og kemur kannski ekkert á óvart. Aðalatriðið og meginniðurstaðan er þó sú að þrátt fyrir hinar sveru yfirlýsingar Alþb. er hér meirihlutavilji til að halda málinu fram ef hagkvæmniathugun og niðurstöður samninga benda í þá veru og leiða til þess að við getum haldið áfram á þeirri braut. Þeir þingmenn og stuðningsmenn ríkisstjórnarflokkanna sem hæstv. fjmrh. er nú að reyna að draga á asnaeyrunum mega eiga alveg vísan málefnalegan stuðning stjórnarandstöðunnar í því efni að koma þessu hagsmunamáli fram ef niðurstöður áframhaldandi athugana verða í þá veru. Það er kjarni þessa máls.