Lánsfjárlög 1989
Þriðjudaginn 22. nóvember 1988

     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Ég skal ekki lengja þessa umræðu, en að gefnu tilefni vil ég segja þetta vegna ummæla hv. þm. Eiðs Guðnasonar. Meginástæðan fyrir því að sjálfstæðismenn gátu ekki unnið með alþýðuflokksmönnum í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar var sú að við vorum ekki sammála um þá leið, sem alþýðuflokksmenn lögðu áherslu á, sem var niðurfærsluleiðin. Meiri hluti sjálfstæðismanna sem fjölluðu um þetta mál var á móti því að sú kjaraskerðing yrði sem niðurfærsluleiðin gerði ráð fyrir. Við vildum ekki taka þátt í því að lækka kaup láglaunafólks, þ.e. fólksins sem vinnur fyrir 40--60 þús. kr. mánaðarkaupi. Við vildum ekki taka þátt í því að lækka kaup þessa fólks beint um 3600 kr. miðað við 40 þús. kr. mánaðarkaup og 5300 miðað við 60. þús. kr. kaup eða sem nam 43.200 kr. á ári hjá þeim sem höfðu 40 þús. kr. og 63.600 kr. hjá þeim sem voru með 60 þús., eða sem svaraði heilum mánaðarlaunum á ári. Þessu neituðu sjálfstæðismenn þrátt fyrir forstjóranefndina. Ég legg áherslu á það að þetta komi skýrt til skila.
    Ef alþýðuflokksmenn hafa svo gjörsamlega gleymt sínum uppruna þá getur hv. þm. Eiður Guðnason fagnað því eins og hann vill að Sjálfstfl. hafi ekki myndað nema svo og svo margar ríkisstjórnir á liðnum áratugum. Það er betra að mynda ekki ríkisstjórnir heldur en gefa sig út fyrir það að vilja vinna fyrir fjöldann og svíkja það svo í hverri umferð fyrir þann metnað og hégóma sem er að troða sér í ríkisstjórn á Íslandi. Ef Alþfl. hefur það eitt í heiðri hverjir mynda stjórn og hverjir ráða og svíkja það sem þeir lofa, þá verði honum og Alþfl. að góðu.