Lánsfjárlög 1989
Þriðjudaginn 22. nóvember 1988

     Forseti (Guðrún Agnarsdóttir):
    Ég vil vekja athygli hv. þingdeildarmanna á því að forseti hafði hugsað sér að hafa fund til kl. sex, en nú hefur fundi verið fram haldið til tuttugu mínútur yfir sex. Það er ekki ætlunin að halda hér kvöldfund. Einn þingmaður hefur kvatt sér hljóðs, hv. 2. þm. Norðurl. e. Ég vil ekki biðja hann að stytta neitt mál sitt, en ef við ljúkum ekki þessum fundi fyrir kl. hálfsjö, þá mun ég leggja til að við höldum umræðunni áfram á morgun.