Helgidagafriður
Þriðjudaginn 22. nóvember 1988

     Sighvatur Björgvinsson:
    Herra forseti. Það er eitt og annað sem kemur manni nokkuð á óvart við að lesa þetta frv., bæði þægilega og óþægilega á óvart. Meðal þess sem kemur skemmtilega á óvart er sá kirkjulegi kansellístíll sem mjög víða kemur fram í frv. og grg. þess. Ég vil, hæstv. forseti, lesa skemmtilegt dæmi hér um þar sem segir í athugasemd um 3. gr.: ,,Þá er ákvæðið að sínu leyti viðbót við t.d. 4. gr. með því að ekki skiptir máli hvers konar starfsemi eða háttsemi um er að ræða ef hún truflar guðsþjónustuhald o.fl. Oftast mundi háttsemin fara fram í grennd við kirkju, en ekki þarf það þó að vera.`` --- Þetta er svona gamalt orðalag fornt þar sem sleginn er varnagli við öllum hugsanlegum uppákomum þó ekki sé tekið fram hversu fjarri kirkju háttsemin megi vera til þess að teljast háttsemi er varðar við lög, en um það geta að sjálfsögðu verið nokkuð deildar meiningar.
    Ég vil einnig vekja athygli hv. þm. á því að ég sé ekki betur en að samkvæmt ákvæði 5. gr. frv. sé verið að heimila lyfjabúðum, bensínsölum, brauð- og mjólkurbúðum, blómasölum og söluskálum að vera opin og stunda sína starfsemi eftir kl. 18 á aðfangadag jóla og held ég það geti varla verið hugmynd hvorki kirkjuþings né hæstv. kirkjumálaráðherra og kirkjumálaráðuneytis. En í 5. gr., þar sem talin er upp sú starfsemi sem undanþegin er banni því sem greinir í 4. gr., er sérstaklega nefnt varðandi lyfjabúðir, bensínsölur, brauð- og mjólkurbúðir, blómasölur og söluskála að starfsemi þeirra sé undanþegin banni því sem greinir í 4. gr. á öðrum dögum en þeim sem frá er greint í 2. tölul. 2. gr. En það er ekkert minnst á 3. tölul. þar sem er gert ráð fyrir því að helgidagafriður á aðfangadag skuli hefjast kl. 18 eins og vani er. Ekki verður ráðið af þessu annað en það að hugmyndir séu uppi um það að heimila starfrækslu lyfjabúða og bensínsala, brauð- og mjólkurbúða, blómasala og söluskála eftir kl. 18 á aðfangadag jóla. Tel ég þá vart horfa til aukinnar guðskristni í þessu landi að svo skuli gert og held að þetta hljóti að vera einhver misskilningur hjá frumvarpssmiðum.
    En það var nú eiginlega enn annað atriði, herra forseti, sem vakti fyrir mér, og við ræðum hér á eftir. En áður vildi ég þó drepa á tvö atriði. Í athugasemdum við 4. gr. frv. segir m.a. á bls. 8 að meðal þess sem þar er lagt bann við séu skemmtanir ,,þar sem happdrætti eða bingó eða svipuð spil eru höfð um hönd`` og tekið er fram: ,,Hér getur verið um einkasamkvæmi að ræða, þ.e. ekki þarf skemmtun að vera opinber.`` --- Það er sem sé verið að leggja bann á þessum tímum við hvers konar spilum eins og happdrætti og bingóum jafnt þó um sé að ræða slíka starfsemi í heimahúsum eða meðal fjölskyldna þar sem tekið er fram að þetta skuli banna jafnvel þó svo að ekki sé um opinberar samkomur að ræða. Nú er þetta siðvenja sem hefur gengið öld fram af öld á Íslandi að fjölskyldur grípi, ja kannski ekki þegar háheilagast er en a.m.k. á sumum þessara hátíðisdaga kirkjunnar, til þess að dunda sér við einhvers konar spil í sínum eigin heimahúsum. Ég fæ ekki betur séð en að gert sé

ráð fyrir því að þetta sé óheimilt þó ég fái ekki séð hvernig eigi að framfylgja því banni. Því vart held ég að hugmyndin sé sú að senda af stað löggæslusveitir til þess að gá að því á mestu hátíðisdögum íslenskrar kirkju hvort einhverjir stundi spil í heimahúsum við slík tækifæri. Þetta ætti nú að minna á dansbannið hér á öldum áður hjá kirkjuyfirvöldum þegar gengið var hart eftir því að menn hefðu ekki um hönd danslist í heimahúsum á hátíðisdögum kirkjunnar. En þetta finnst mér nú nokkuð langt seilst.
    Enn fremur vek ég athygli á ákvæðum 6. gr. þar sem m.a. bann sem þar er um að ræða er skýrt svo að mót hestamanna falli ekki undir bannákvæði 4. gr., en keppni í hestamennsku og annað því um líkt eigi að falla undir bannákvæði 6. gr. --- Ég veit ekki um það hestamannamót þar sem ekki á sér stað einhvers konar keppni í hestamennsku og finnst það furðu sæta ef heimila á hestamönnum að koma saman en ekki heimila þeim að iðka þá vinnu sem er kjarni í flestum hestamannamótum sem verið hafa á voru landi. Ég held að það verði líka afskaplega erfitt að túlka þetta ákvæði til fullnustu. Enn fremur er gert ráð fyrir því að heimiluð séu á þessum dögum mót íþróttamanna en þá því aðeins að enginn atvinnumaður taki þátt í slíku móti. Og meðal þeirra íþróttamanna sem ekki mega keppa, þótt ekki séu atvinnumenn, eru íþróttamenn í bifreiðaíþróttum og í fluglist.
    Ég spyr: Ef talið er eðlilegt að áhugamenn, við skulum segja í handknattleik eða í fótbolta, fái að keppa á þessum tímum, sem ég skal ekki dæma um út af fyrir sig, hvernig stendur þá á því að áhugamenn um bifreiðaíþróttir eða fluglist mega ekki keppa við slík tækifæri? Og hvernig ætla menn að taka á því erfiða máli ef upp skyldi koma að einn eða tveir atvinnumenn hefðu hugsað sér að slæðast með í keppni áhugamanna? Ætti þá að banna keppnina vegna þess að lögin kveða svo á að atvinnumönnum sé óheimilt að keppa á sömu dögum og áhugamönnum er heimilað að keppa? Mér finnst farið að verða talsvert erfitt að túlka þessi ákvæði og kæmist sjálfsagt margur löggæslumaðurinn að því fullkeyptu sem ætti að skera úr um hvað væri rétt og
hvað væri ekki rétt í sambandi við þessar túlkanir. Ég vara mjög við því að menn reyni að hnýta niður í lög með slíkum hætti venjubundna starfsemi sem menn hafa stundað árum og áratugum saman og jafnvel um aldir hér á landi. Ég held að svo lengi sem hin óskráðu lög í þessu efni eru virt, eins og flestir ef ekki allir gera, þá ættu menn að hugsa sig um tvisvar eða jafnvel þrisvar áður en þeir taka upp svona fyrirmæli í lagasetningu.
    Að lokum, herra forseti, nokkuð sem varðar kannski okkur stjórnmálamennina, því e.t.v. er þetta frv. til laga um stundarfrið fyrir okkur, þá sé ég ekki í neinni tillögugreininni að gert sé ráð fyrir því að fundir á vegum stjórnmálaflokka séu hvort heldur er bannaðir eða leyfðir. Það er tekið hérna sérstaklega fram um helgidagafrið að þá sé starfsemi óheimil sem tengist opinberu skemmtanahaldi eða sýningum, dansskemmtunum, fjölleikahúsum, revíusýningum,

leiksýningum, balletsýningum, kvikmyndasýningum o.s.frv. Nú býst ég varla við að hæstv. ráðherra, sem flytur þetta mál, láti sér til hugar koma að stjórnmálafundir séu heimilaðir á þessum helstu hátíðisdögum íslensku þjóðkirkjunnar fremur en þessi starfsemi sem ég hef hér rakið. En það væri gaman að fá lagskýringu á því frá hæstv. ráðherra hvort stjórnmálastarfsemi að hans áliti mundi þar flokkast undir dansskemmtanir eða fjölleikahús eða revíusýningar eða ballettsýningar eða leikfimisýningar eða kannski vörusýningar, ef verið er að kynna nýja frambjóðendur, nú eða viðskipti svo maður hafi ekki einu sinni orð á því. Ég held því að full ástæða sé til þess að sú nefnd sem fær þetta frv. til meðferðar kíki aðeins á bak við þann kansellístíl sem í frv. felst og hugi eitthvað svolítið að almennri skynsemi í landinu.