Helgidagafriður
Þriðjudaginn 22. nóvember 1988

     Páll Pétursson:
    Herra forseti. Ef deildin felst á að afgreiða þetta mál þá tel ég óhjákvæmilegt að það verði lagfært í mjög verulegum atriðum og ég vísa til ágætra og réttmætra athugasemda hv. síðasta ræðumanns. Mér finnst þetta mál mótast um of af norskum heittrúarviðhorfum aftan úr öldum sem ekki eiga við nú um stundir. Ég tel eðlilegt og sjálfsagt að guðsþjónustuhald sé varið fyrir truflun og ekki sé gengið á rétt þeirra manna sem það stunda. En ég sé ekki ástæðu til þess að ganga svo langt sem hér er gert í að hindra eðlilega og siðlega starfsemi og lama þjóðfélagið með þeim hætti sem hér er lagt til að gera og koma í veg fyrir eðlilegt og heilbrigt tómstundastarf. Ég geri mjög sterka athugasemd við greinarnar um t.d. íþróttir, hvernig þar er á málum haldið. Varðandi það hvort stjórnmálafundir séu leyfðir eða ekki þá kann að vera hægt að flokka þá undir íþróttamót, en þá væntanlega íþróttamót atvinnumanna, a.m.k. í mörgum tilfellum.