Helgidagafriður
Þriðjudaginn 22. nóvember 1988

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Herra forseti. Ég vil taka það fram út af ummælum hv. þingmanna að það verður að sjálfsögðu aldrei sett tæmandi upptalning um það hvernig málum skuli háttað á þessum dögum, heldur ber að virða almennan vilja sem kemur fram í lögunum. Það má vel vera rétt að skilja megi það svo t.d. að heimilt sé að hafa bensínsölur opnar eftir kl. 18 á aðfangadag, en ég held að það sé alveg ljóst að sá almenni vilji sem er hér á landi og þau almennu viðhorf sem hér ríkja eru með þeim hætti að litlar líkur eru á að slíkt sé gert. Þar af leiðandi er e.t.v. ekki brýn nauðsyn að taka það fram. Hins vegar er ekkert á móti því að taka það skilmerkilega fram í þessu sambandi.
    Að því er varðar t.d. stjórnmálafundi á tímabilinu kl. 10--15 á sunnudögum liggur ljóst fyrir að það er almenn venja og þykir sjálfsagt að stjórnmálamenn vinni um helgar hér á landi. Ég býst ekki við að stjórnmálamenn séu sérstaklega ánægðir með þá tilhögun mála að það skuli þykja sjálfsagt að þeir vinni um allar helgar. Væri e.t.v. stjórnmálamönnum mest þægð í því ef umferð þeirra væri bönnuð að öllu leyti á sunnudögum þannig að þeir yrðu að vera heima hjá sér. ( PP: Og kosningarnar líka?) ( Gripið fram í: Þær eru komnar á laugardaga.) Það er að sjálfsögðu ekki ætlunin með þessu frumvarpi að setja almennar starfsreglur fyrir stjórnmálamenn, langt í frá. Hins vegar hefur sú venja viðgengist, og ég vænti þess að hún verði áfram í heiðri höfð, að ekki skuli halda almenna fundi eða stjórnmálafundi meðan messað er í viðkomandi byggðarlögum. Ég hygg að flestir stjórnmálamenn hafi virt það í gegnum tíðina. Ég á ekki von á því að stjórnmálamönnum muni fara svo mikið aftur að þeir taki upp nýja siði í þeim efnum og því ekki nauðsynlegt að það komi skilmerkilega fram í lögum.
    Að því er varðar spil og spilamennsku inni á heimilum, sem hv. þm. Sighvatur Björgvinsson nefndi, er rétt að taka það skýrt fram að ákvæði frv. eiga ekki við um athafnir inni á heimilum, t.d. að því er varðar á hvað fólk horfir í sjónvarpi. Það nær ekki til þess hvað gerist inni á heimilum. Ég vænti þess að hann geti verið alveg rólegur í þeim efnum, enda ekki ætlun frv. að fjalla um þau atriði.
    Vegna þess sem hv. þm. Páll Pétursson sagði, að frv. dragi í allt of miklum mæli dám af norskum siðum vil ég ekki fallast á það. Að vísu erum við að einhverju leyti komnir af Norðmönnum og höfum flutt hingað með okkur siði þeirra. En almennt má segja að frv. tekur mið af breyttum tímum og framkvæmd þessara mála. Það er verið að draga úr ýmsu því sem áður var, eins og ég tók sérstaklega fram í framsögu minni. Auðvitað má deila um það hvað upptalningin skuli vera nákvæm. Það verður samt að reikna með því að þar gæti samræmis. T.d. tel ég enga ástæðu til þess að leyfa veðreiðar og hestamannamót en banna kvikmyndasýningar á hverjum tíma. Og ég tel alveg jafnnauðsynlegt fyrir hestamenn eins og stjórnmálamenn að taka tillit til helgidaga og þeirrar helgi sem á að hvíla yfir þeirri starfsemi sem þá fer

fram. Starfsemi kirkjunnar er mikilvæg í þessu landi og hestamenn verða að gjöra svo vel að viðurkenna það sem aðrir.