Helgidagafriður
Þriðjudaginn 22. nóvember 1988

     Sighvatur Björgvinsson:
    Herra forseti. Það er oft siðvenja, þegar einhver atriði í lögum orka tvímælis, hvernig beri að túlka þau, að þá er gáð í athugasemdir þær sem viðkomandi lagafrv. fylgdu. Hafi lagagreinin verið samþykkt óbreytt frá því sem í frv. stóð er skýringa á hvernig beri að túlka hana leitað akkúrat þar.
    Í 3. tölul. 4. gr. frv. segir að á þeim u.þ.b. 60 dögum sem hv. síðasti ræðumaður ræddi um, þ.e. á öllum sunnudögum á tímabilinu kl. 10--15, á öðrum degi jóla, nýársdag, skírdag, öðrum degi páska, uppstigningardegi o.s.frv. séu skemmtanir, þar sem happdrætti, bingó eða svipuð spil eru höfð um hönd, bannaðar. Á bls. 8, í skýringum við 4. gr., segir orðrétt, herra forseti: ,,Í 3. tölul. er vikið að skemmtunum þar sem happdrætti eða bingó eða svipuð spil eru höfð um hönd. Þykir rétt að hafa sérákvæði um þetta efni. Hér getur verið um einkasamkvæmi að ræða, þ.e. ekki þarf skemmtun að vera opinber.``
    Ég get ekki túlkað þetta öðruvísi en svo að á þessum tíma, öllum þessum dögum, á tímabilinu frá 10--15 og þar á meðal á þeim heilu sólarhringum sem þarna er um rætt, sé lagt bann við hvers konar happdrætti, bingói eða spilum sem stunduð eru þó ekki sé um opinber samkvæmi að ræða, þ.e. á einkaheimilum, á einkasamkomum, hjá fjölskyldum og öðrum slíkum aðilum. Ég verð að segja eins og er að mér finnst þetta gjörsamlega fráleitt. Og ef það er rétt, eins og hæstv. ráðherra sagði hér áðan, að hvað svo sem líður ákvæði laganna, t.d. um það að heimila eigi sjoppum, blómaverslunum, brauðbúðum, bensínsölustöðvum og öðrum slíkum að vera opnar eftir kl. 18 á aðfangadag --- ef hæstv. ráðherra telur að það verði ekki gert hvers vegna er þá verið að setja lög um að slíkt sé heimilt? Og af hvaða ástæðu er verið að binda í lög ákvæði eins og þau sem ég var að lýsa hér áðan sem samkvæmt grg. frv. geta orðið túlkuð þannig að jafnvel í fjölskyldusamkvæmum sé mönnum óheimilt á þessum tímum að taka sér spil í hönd? Þetta eru ákvæði sem eru langt aftan úr forneskju og eru ekki í nokkru samræmi við það þjóðfélag sem við lifum í nú. Það er auðvitað ástæðulaust, og þá vitna ég bara til orða hæstv. ráðherra, að vera að setja lög á árinu 1988 sem eru ekki í samræmi við þá siði og venjur sem þjóðin lifir við. Og ef, eins og hæstv. ráðherra síðan segir, ástæðulaust er að ætla að þessum lagaheimildum verði fylgt, hvers vegna erum við þá að setja þetta í lög, ef menn lýsa því yfir jafnóðum og menn mæla fyrir málunum að menn geti eins átt von á því að ekkert sé farið eftir þessum lögum?