Páll Pétursson:
Herra forseti. Það er rétt að undirstrika það sérstaklega hvað þetta er fráleitt ákvæði í 6. gr.: ,,Ákvæði 1. mgr. eiga ekki við um keppni vélknúinna farartækja . . . ``, þ.e. það má ekki keppa á vélknúnum farartækjum á sunnudögum fyrr en eftir kl. 15. Það má ekki keppa á loftförum fyrr en eftir kl. 15. Það má ekki hafa hestamannamót, sem er alveg fastur liður að séu haldin á sunnudögum, fyrr en eftir kl. 15. Og það má ekki keppa í íþróttum ef atvinnumenn eiga þar einhvern hlut að máli. Við megum t.d. ekki taka þátt í landsleikjum þar sem áhugamenn okkar leika nema þá að reka atvinnumennina úr landsliðinu. ( Gripið fram í: Hvernig er með skákmót?) Við getum ekki haldið skákmót. Og ekki einu sinni teflt biðskákir. Sjá menn ekki í hvaða óskaplega vitleysu menn eru að fara? Það er ekki hægt að hafa hrútasýningu. Þetta er bara fjarstæða. Þetta er bara fjarstæða. Það er ein leið til að gera frv. eðlilegt. Ég vil leyfa mér að benda nefndinni á leið til þess að gera þetta frv. skynsamlegt og gott, þ.e. að taka fyrstu þrjár greinar frv. ásamt gildistökugreininni, 10. gr., og gera þær að lögum og það yrðu ágæt lög.