Veiting ríkisborgararéttar
Miðvikudaginn 23. nóvember 1988

     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar þar sem talin eru upp nöfn þeirra sem sótt hafa um ríkisborgararétt og lagt er til að veittur verði. Ég sé ekki ástæðu til að rekja þetta mál frekar. Það kemur fyrir hv. Ed. á hverju einasta Alþingi og er því kunnugt öllum.
    Ég vil leggja til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.