Fyrirspyrjandi (Geir H. Haarde):
Virðulegi forseti. Mér er ljúft að taka hér til máls, en ég vil helst ekki gera það í fjarveru virðulegs ráðherra. Ég skal gjarnan falla frá orðinu ef forseti vill taka fyrir næsta mál. ( Forseti: Ég mun athuga hverju það sætir að hæstv. fjmrh. er ekki kominn hér í salinn.) Mér þætti afar vænt um það.