Sala ríkisfyrirtækja
Fimmtudaginn 24. nóvember 1988

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Til nánari skýringar skal það tekið fram að Eimskipafélag Íslands er ekki almenningur. Og ef hv. þm. Geir H. Haarde skilur ekki muninn á eign almennings í fyrirtækjum og einkavæðingu sem byggist á stórfyrirtækjum óska ég eftir því að hann eigi sérstakar viðræður við flokksbróður sinn, Eyjólf Konráð Jónsson, sem kann glögg skil á muninum á þessu tvennu.