Fyrirspyrjandi (Guðmundur Ágústsson):
Virðulegi forseti. Á þskj. 49 legg ég fram fsp. til hæstv. fjmrh. um breytingu á gjalddaga söluskatts. Fsp. er í þrem liðum og er á þessa leið:
,,Stendur til að breyta gjalddaga söluskatts frá því sem nú er þannig að eindaga söluskatts beri upp á sama dag og útborgun greiðslukorta?
Ef svo er, hvenær má búast við að sú breyting komi til framkvæmda?
Ef svo er ekki, eru þá í undirbúningi aðrar aðgerðir til að létta smásöluversluninni að fjármagna skilvísa greiðslu söluskatts?``
Sú breyting hefur orðið á verslunarháttum á undanförnum árum að neytendaviðskipti hafa breyst frá staðgreiðslu í það að seljendur neysluvarnings og ýmiss konar þjónustu láni viðskiptamönnum sínum andvirði vörukaupanna eða þjónustunnar í allt að 40 daga. Viðskipti þessi, sem fara fram með svokölluðum greiðslukortum, hafa eftir því sem notkun þeirra hefur aukist haft veruleg áhrif í þjóðfélaginu. Þessir breyttu viðskiptahættir hafa aukið mjög verulega á fjármagnskostnað seljenda vöru og þjónustu sem lána viðskiptamönnum sínum með þessum hætti. Sérstaklega hefur þetta bitnað hart á fyrirtækjum í matvöruverslun, en talið er að á milli 40 og 70% allra viðskipta í matvöruverslun fari fram með greiðslukortum. Hinn aukna fjármagnskostnað í verslun má einnig rekja til þess að greiðslu innheimts söluskatts og útborgunardag greiðslukortafyrirtækjanna ber ekki upp á sama dag. Gjalddagi söluskatts er 15. hvers mánaðar og eindagi 25., en útborgunardagur greiðslukortafyrirtækjanna er yfirleitt 2. hvers mánaðar þar á eftir.
Til að fjármagna skilvísa greiðslu söluskatts í þessa fáu daga hefur það farið í vöxt að greiðslukortanótur séu seldar í bankastofnunum og verðbréfamörkuðum á háum vöxtum eða með þeim hætti að fyrirtæki grípi til þess ráðs að gefa út innistæðulausar ávísanir til að standa skil á söluskattinum. Rekstur verslunarfyrirtækja með þessum hætti getur ekki gengið til lengdar og getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar, ekki aðeins fyrir fyrirtækin sjálf heldur og bankastofnanir sem fyrirtækin versla við og einnig ríkissjóð þegar til gjaldþrots fyrirtækjanna kemur. Á þessum grunni er fsp. lögð fram, hvort til standi að breyta gjalddaga og eindaga söluskatts.
Á það má benda að við skattkerfisbreytinguna um sl. áramót, þegar söluskattur var settur á matvæli, breyttist staða matvöruverslana. Stærri hluti veltunnar varð söluskattur og þegar það kom saman við aukna notkun greiðslukorta gerði það versluninni enn erfiðara fyrir að standa skil á sínu. Í mínum huga er hér aðeins spurning um réttlæti og að ríkisvaldið eins og atvinnufyrirtækin taki mið af breyttum viðskiptaháttum og þeirri þróun sem orðið hefur á undanförnum árum.