Fyrirspurn um innflutning á hundum
Fimmtudaginn 24. nóvember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna orða hv. 5. þm. Vesturl. hlýtur forseti að fallast á að svar við umræddri fsp. er ekki í samræmi við það sem um var spurt. Forseti vill því fara þess á leit við hæstv. landbrh. að hann endurskoði það svar sem nú liggur fyrir hinu háa Alþingi og leggi fram svar að nýju þar sem nánar verður svarað því sem um var beðið.