Fyrirspurn um innflutning á hundum
Fimmtudaginn 24. nóvember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna orða hv. 3. þm. Reykv. og þeirra sem hér hafa talað vill forseti segja að þegar þessi fsp. barst til undirskriftar gerði forseti sér ekki grein fyrir að upplýsingar um það fólk sem fengið hefði að flytja inn hunda erlendis frá væru svo viðkvæmt einkamál að það gæti valdið vandræðum að sá nafnalisti birtist. Nú má vel vera að svo sé. En hæstv. ráðherra hefur fallist á að leita umsagnar um hvort við hæfi sé að birta slíkan lista og fyrir það vil ég þakka honum og vænti þess að hv. 5. þm. Vesturl. sætti sig við þá afgreiðslu mála og lúti þeirri niðurstöðu sem þær umsagnir gefa til kynna.