Fyrirspurn um innflutning á hundum
Fimmtudaginn 24. nóvember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Vegna orða hv. 2. þm. Vestf. skal það upplýst að skáldinu Steini Steinarr barst aldrei svar frá borgarstjóranum í Reykjavík.
    Forseti vill hins vegar vinna að því nú að svar berist við þeirri fsp. sem hér um ræðir og hefur náð samkomulagi við hæstv. ráðherra um að það verði reynt.