Fyrirspurn um innflutning á hundum
Fimmtudaginn 24. nóvember 1988

     Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
    Hæstv. forseti. Ég tel rétt að upplýsa vegna þessarar umræðu, sem fer nú of víða, að landbrh. á enga tík og yfirleitt ekki hundkvikindi þannig að til þess kemur ekki, eins og hér var þó leitt líkum að í máli síðasta ræðumanns, að vandkvæði hljótist af hundaeign landbrh.
    Ég held að það sé einnig rétt, hæstv. forseti, að upplýsa að meðferð þessara mála hefur verið til athugunar í landbrn. og tekin hefur verið ákvörðun um breytingar þar á, sem ætti að tryggja að okkar mati betur en hingað til hefur verið samræmda og trausta meðferð þessara mála, þar sem er ákvörðun um að koma á fót einangrunarstöð í Hrísey norður. Verður frá og með þessari ákvörðun ekki heimilaður neinn innflutningur á gæludýrum öðruvísi en að þau fari til einangrunar í þessari stöð undir eftirliti dýralækna og er þannig reynt að sjá betur fyrir því en áður var að um mjög trausta framkvæmd þessara mála sé að ræða. Ég hygg að það sé óþarfi, enda ekki ætlunin að ræða þessi mál hér efnislega, hæstv. forseti, að rekja það fyrir hv. alþm. hvers vegna mikillar varúðar er gætt í þessum efnum og reynt hefur verið eins og nokkur kostur hefur verið að halda undanþágum frá lögbönnuðum innflutningi þessara dýra í algeru lágmarki.
    Að öðru leyti hef ég engu við fyrra svar að bæta og vonast til þess að innan tíðar fáist það eins rækilega á hreint og kostur er, miðað við að ýmsu leyti óljósa löggjöf landsins í viðkomandi tilviki, hvort rétt sé eða skylt að birta nöfn viðkomandi einstaklinga í þessu tilviki.