Kosning í stjórnarnefnd ríkisspítalanna
Fimmtudaginn 24. nóvember 1988

     Ragnhildur Helgadóttir:
    Frú forseti. Það er náttúrlega ekki nægilegt að þingmenn séu í húsinu ef þeir eru ekki á þingfundinum. Ég verð þess vegna að lýsa undrun minni á því að kosning skuli tekin fyrir og beðið um lista á meðan fundurinn sjálfur er ekki ályktunarfær, en það er hann ekki fyrr en yfir helmingur fundarmanna er hér í salnum.