Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Það mun vera rétt hjá hv. 3. þm. Reykv. að svo er að sjá sem ekki sé nægilegur fjöldi þingmanna á þessum fundi. Forseta hefur verið dálítið erfitt um að sjá það vegna þess að eins og áður er sagt er tölvan í borðinu ekki í gangi, en eftir ítrekaðar hringingar sýnist ekki vera nægilegur þingmannafjöldi hér til að mál þetta verði tekið fyrir og því verður því frestað um sinn.