Ummæli viðskiptaráðherra um gróðurvernd
Fimmtudaginn 24. nóvember 1988

     Stefán Valgeirsson:
    Virðulegi forseti. Því miður var ég ekki staddur í salnum þegar þessar umræður hófust, en ég verð að átelja og harma að formenn Framsfl. og Alþfl. skuli ekki vera hér staddir og þessi umræða skuli fara fram án þess að þeir séu hér því að það er athyglisvert eftir trúlofunina sem gerðist um síðustu helgi að hæstv. viðskrh. skuli svo á sama augnabliki hafa slík ummæli eins og Morgunblaðið skýrir frá og mér skilst að hann hafi ekki borið til baka, hann hafi raunar staðfest að þetta sé haft rétt eftir.
    Ég hygg að þeir sem búa í strjálbýli muni mjög hrökkva við og ég er ekki viss um að menn hafi meira langlundargeð, þeir sem búa úti í strjálbýlinu, gagnvart Alþfl. eftir slík ummæli. Ég held að þegar þetta kemur ofan á þá umræðu sem vissir fjölmiðlar hafa tileinkað sér á síðustu árum sé orðið langt gengið.
    En ég harma að formennirnir skuli ekki vera hér og ég harma að þessi umræða skuli fara fram innan þeirra marka að menn geti í raun og veru ekki tjáð sig um þessi mál.