Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Forseti leggur ekki dóm á það fyrir hverra hönd hv. þm. taka til máls. Hins vegar hefur forseti reynt að sjá svo til að það kæmi fram málsvari . . . (Gripið fram í.) Vissulega, en þannig háttar til um þetta mál að hér eru mikil tímatakmörk og þess vegna er reynt að sjá til þess að þingmenn úr öllum flokkum geti komist hér að. ( AG: Forseti getur ekki gert það að flokksmáli.) Forseti er ekki að gera þetta að flokksmáli.