Valgerður Sverrisdóttir:
Hæstv. forseti. Ég kem ekki upp til að halda því fram að sauðkindin og sauðfjárbóndinn eigi ekki einhvern þátt í því að gróðureyðing hefur átt sér stað hér á Íslandi heldur til þess að vara eindregið við þeirri aðferð sem hæstv. viðskrh. hefur valið til að koma á úrbótum í þessum efnum sem ég þó efast ekki um að hann hafi áhuga á. Það er þetta sem ég vil leggja áherslu á.